Íslandspóstur hagnast um 104 milljónir

Við­snún­ingur var í rekstri Íslands­pósts á síð­asta ári, sem skil­aði hagn­aði í fyrsta skiptið í þrjú ár. Samkvæmt for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins létti end­ur­skipu­lagn­ing og nið­ur­greiðsla lang­tíma­lána umtals­vert á félag­inu.

Skipu­lags­breyt­ingar, þar með talið upp­sögn 120 stöðu­gilda, og nið­ur­greiðsla lang­tíma­lána, létti á rekstri Íslands­pósts, sem skil­aði 104 millj­óna króna hagn­aði í fyrra. Þetta er í fyrsta skiptið sem Íslands­póstur skilar hagn­aði síðan árið 2017, en árið 2019 nam tap fyr­ir­tæk­is­ins 551 milljón króna. Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Íslands­pósts fyrir síð­asta ár.

Minni tekjur, enn minni kostnaður

Samkvæmt árs­reikn­ingnum minnk­uðu tekjur fyr­ir­tæk­is­ins á milli ára, og námu 7,5 millj­örðum krónum í fyrra, miðað við 7,8 millj­arða króna árið 2019. Hins vegar minnk­aði rekstr­ar­kostn­aður fyr­ir­tæk­is­ins enn meira, eða úr 7,5 millj­örðum í 6,8 millj­arða króna, á sama tíma.

Þar vógu þyngst laun og launa­tengd gjöld, sem lækk­uðu um 437 millj­ónir á árinu. Þessi sam­dráttur náð­ist með fækkun stöðu­gilda hjá fyr­ir­tæk­inu, en í lok síð­asta árs voru þau 601, miðað við 721 í árs­lok 2019.

Hagnaður Íslands­pósts í fyrra er svip­aður að stærð og hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins árið 2016. Hann var þó ekki jafn­stór og árið 2017, þegar hann nam rúmum 200 millj­ónum króna.

Líkt og Kjarninn hefur greint frá lét Birgir Jónsson af störfum sem for­stjóri Íslands­pósts í nóv­em­ber í fyrra. Birgir, sem starfað hafði hjá fyr­ir­tæk­inu frá júní­mán­uði árið 2019, tjáði sig um brott­hvarf sitt á LinkedIn-síðu sinni, en þar sagði hann stærstu rekstr­ar­mál Íslands­póst hafa verið leyst og að hann fyndi sig ekki í stöðu sinni þegar póli­tísk­ari sjón­ar­mið væru farin að skipta meira máli.

Nýr for­stjóri félags­ins er Þór­hildur Ólöf Helga­dóttir. Í frétta­til­kynn­ingu frá Íslands­pósti sagði hún að rekstr­ar­ár­ang­ur­inn væri alls ekki sjálf­gef­inn. „Árangur sem þessi er alls ekki sjálf­gef­inn, end­ur­skipu­lagn­ing og nið­ur­greiðsla lang­tíma­lána hefur létt umtals­vert á félag­inu og okkur tókst með sam­stilltu átaki stjórnar og starfs­fólks að bregð­ast við tekju­minnkun vegna minni inn- og útflutn­ings. Íslands­póstur er á réttri leið," bætti hún við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár