Birgir hættir sem forstjóri Íslandspósts

Íslands­póstur greinir frá því í dag að Birgir Jónsson for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins hafi ákveðið að hætta störfum. Í færslu á LinkedIn seg­ist Birgir ekki finna sig nógu vel þegar „póli­tísk­ari sjón­ar­mið“ séu farin að skipta meira máli.

Birgir Jónsson, forstjóri Íslandspósts.
Birgir Jónsson, for­stjóri Íslands­pósts. Mynd: Birgir Ísleifur Gunnarsson

Birgir Jónsson for­stjóri Íslands­pósts hefur ákveðið að láta af störfum hjá félag­inu og hafa hann og stjórn félags­ins gengið frá sam­komu­lagi um starfs­lokin. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Íslands­pósti.

„Birgir hóf störf hjá Póstinum í byrjun júní 2019 og hefur frá þeim tíma ásamt stjórn og nýju stjórn­enda­teymi, stýrt félag­inu í gegnum mikið og far­sælt umbreyt­inga­ferli. Tekist hefur að treysta rekstr­ar­grund­völl fyr­ir­tæk­is­ins og skapa því sterk­ari stöðu til fram­tíðar. Þá hefur þjón­usta Póstsins verið bætt og aukin,“ segir í til­kynn­ingu Íslands­pósts um starfs­lokin. Þar kemur einnig fram að Birgir muni gegna starfi for­stjóra þar til eft­ir­maður hans hefur verið ráð­inn.

Segir ekki finna sig þegar pólitískari sjónarmið séu farin að skipta meira máli

Haft er eftir Birgi í frétta­til­kynn­ingu Póstsins að mik­ill við­snún­ingur hafi orðið í rekstri Íslands­pósts og að það hafi verið sannur heiður að fá að takast á við verk­efnið með öfl­ugum hópi starfs­manna um land allt.

„Næstu skref hjá mér eru óráðin en ég fer frá borði fullur þakk­lætis fyrir að hafa fengið að taka þátt í þessu skemmti­lega verk­efni og ég hlakka mikið til að sjá Póstinn blómstra sem aldrei fyrr í hönd­unum á öllu því góða fólki sem þar starfar,“ er sömu­leiðis haft eftir Birgi í til­kynn­ingu Íslands­pósts. 

Hann tjáir sig einnig um brott­hvarf sitt á LinkedIn-síðu sinni og seg­ist þar hafa notið verk­efn­is­ins, stærstu rekstr­ar­málin séu leyst og nú séu „önnur sjón­ar­mið og svo það sé bara sagt hrein út, póli­tísk­ari sjón­ar­mið“ farin að skipta meira máli.

„Þetta er kannski eðli­legt í ljósi eign­ar­halds­ins. Ég sem rekstr­ar­maður finn mig hins vegar ekki alveg nógu vel í slíkri stöðu og tel mig ekki hafa mikið að gefa í henni,“ segir Birgir á LinkedIn.

Fyrir hönd stjórnar Íslands­pósts þakkar Bjarni Jónsson stjórn­ar­for­maður Birgi fyrir góð störf og haft er eftir honum að margt hafi áunn­ist í rekstr­inum frá því að Birgir tók við starf­inu.

„Birgir hefur verið öfl­ugur starfs­maður sem hefur leitt umbreyt­inga­ferli hjá fyr­ir­tæk­inu, skapað góða liðs­heild og starfsanda. Stjórn félags­ins þakkar Birgi fyrir vel unnin störf og óskar honum vel­farn­aðar í fram­tíð­inni. Framundan eru krefj­andi verk­efni í stefnu­mótun og við að bæta enn frekar þjón­ustu hjá Íslands­pósti,“ segir stjórn­ar­for­mað­ur­inn í til­kynn­ingu.

Tók við erfiðu búi síðasta sumar

Birgir hóf störf á tíma­punkti þegar Póst­ur­inn um það leyti sem fyr­ir­tækið var að hefja miklar hag­ræð­ing­ar­að­gerðir vegna bágrar rekstr­ar­stöðu, en í sept­em­ber 2018 leit­aði Íslands­­­­­póstur á náðir rík­­­is­ins og fékk 500 millj­­­ónir króna að láni til að bregð­­­­ast við lausa­­­­fjár­­­­skorti eftir að Lands­bank­inn hafði lokað á frek­­­­ari lán­veit­ing­­­­ar til opin­bera hluta­fé­lags­ins. Nokkrum mán­uðum síð­­­­­­­ar, í des­em­ber 2019, sam­­­­þykkti Alþingi að lána fyr­ir­tæk­inu allt að millj­­­­arð til við­­­­bót­­­­ar.

Birgir tók við starfi for­stjóra af Ingi­mundi Sig­ur­páls­syni, sem hafði verið for­stjóri Íslands­pósts í 14 ár þegar hann sagði starfi sínu lausu í mars árið 2015. Birgir leiddi ýmis hag­ræð­ing­ar­verk­efni hjá Póstinum og fækk­aði stöðu­gildum hjá fyr­ir­tæk­inu um 14 pró­sent á síð­asta ári, niður í 721, og hefur þeim fækkað enn frekar á þessu ári.

Stjórn­endum var sömu­leiðis fækkað um 30 pró­sent í fyrra og einnig voru höf­uð­stöðvar Póstsins fluttar frá Stór­höfða í skrif­stofu­hús­næði í Höfða­bakka, í minna og ódýr­ara hús­næði, svo eitt­hvað sé nefnt.

Þessar breyt­ingar og fleiri segir Birgir að hafi umbreytt félag­inu, í færslu sinni á LinkedIn. „Fyr­ir­tækið var nálægt greiðslu­þroti í byrjun síð­asta árs en er nú eitt arð­samasta póst­fyr­ir­tæki á norðu­löndum og þar með mjög verð­mætt fyrir eig­anda sinn sem erum við öll, fólkið í land­inu. Þessi við­snún­ingur kemur ekki til vegna gjald­skrár­hækk­ana, eins og margir halda, enda hafa tekjur fyr­ir­tæk­is­ins dreg­ist mikið saman á sama tíma,“ skrifar Birgir.

Tap fyr­ir­tæk­is­ins í fyrra var þó 510 millj­ónir króna og kom fram að þetta tap mætti að mestu skýra með kostn­aði við end­ur­skipu­lagn­ing­una, sem færður var til bókar í fyrra. Sá hluti var 225,1 milljón króna.

Vaxta­ber­andi skuldir Íslands­pósts voru 1.953 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót og höfðu lækkað úr 2.761 milljón króna ári áður. Hand­bært fé frá rekstri var 562,2 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár