Bólusetningu þjóðarinnar gæti verið lokið í júní, segir heilbrigðisráðuneytið

Ef allt gengur eftir, sem ekki er öruggt, gæti bólu­setn­ingu allra full­orð­inna gegn COVID-19 hér á landi verið lokið í júní. Þetta segir heil­brigð­is­ráðu­neytið í nýrri til­kynn­ingu, en búið er að setja bólu­setn­ing­ar­daga­tal í loftið.

Gangi allar for­sendur sem nú eru til staðar eftir gæti bólu­setn­ingu gegn COVID-19 verið lokið fyrir lok júní, sam­kvæmt nýju bólu­setn­ing­ar­daga­tali sem birt var af hálfu heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins síð­degis á föstu­dag.

Daga­talið er unnið í sam­vinnu við sótt­varna­lækni og byggir á fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingum um afhend­ingu bólu­efna og áætl­anir þar að lút­andi.

Því er ætlað að gefa fólki „vís­bend­ingu um hvenær lík­legt er að bólu­setn­ing hefj­ist í ein­stökum for­gangs­hópum“ og „er birt með fyr­ir­vara, enda að hluta til um áætlun að ræða sem mun taka breyt­ingum. Gangi for­sendur eftir lýkur bólu­setn­ingu gegn COVID-19 hér á landi fyrir lok júní næst­kom­andi,“ segir í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Þrjú bólu­efni eru þegar komin með mark­aðs­leyfi og í notkun hér á landi. Þetta eru bólu­efni Pfizer/BioNTech, AstraZeneca og Moderna. Fyrir liggur stað­fest áætlun um afhend­ingu þess­ara lyfja til loka mars. Þá liggur einnig fyrir að þessir fram­leið­endur áforma að hafa fyrir lok júní afhent bólu­efni fyrir sam­tals 190.000 ein­stak­linga.[links]

„Á grund­velli Evr­ópu­sam­starfs hefur Ísland gert samn­inga um kaup á Curavac og Janssen til við­bótar þeim þremur efnum sem þegar eru komin með mark­aðs­leyfi. Þá er Evr­ópu­sam­bandið að ljúka samn­ingi um bólu­efni Novavax sem Ísland fær hlut­deild í. Öll þessi lyf eru komin í áfanga­mat hjá Evrópsku lyfja­stofn­un­inni og þess vænst að þau fái mark­aðs­leyfi innan tíðar. Í samn­ingum um þessi bólu­efni kemur fram hve mikið fram­leið­endur þeirra áætla að geta afhent á öðrum árs­fjórð­ungi, þ.e. fyrir lok júní. Bólu­setn­ing­ar­daga­talið tekur mið af þessum upp­lýs­ingum en gögn hvað þetta varðar eru birt með fyr­ir­vara um að mark­aðs­leyfi liggja ekki fyrir og stað­festar afhend­ing­ar­á­ætl­anir ekki heldur,“ segir í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins, en vert er að minn­ast á að þessar áætl­anir eru í fullu sam­ræmi við það sem t.d. Danir kynntu fyrr í vik­unni.

Heil­brigð­is­ráðu­neytið seg­ist þó ætla, í sam­vinnu við sótt­varna­lækni, að upp­færa bólu­setn­ing­ar­daga­talið „eftir því sem bólu­setn­ing­unni vindur fram og eftir því sem nýjar upp­lýs­ingar ber­ast um bólu­efni og afhend­ingu þeirra.“[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár