„Enn einn forsendubresturinn,“ segja Framarar um breytingar á borgarskipulagi

Knatt­spyrnu­fé­lagið Fram leggst gegn því að ekki verði heim­ilt að byggja íbúð­ar­hús­næði á skipu­lags­reit M22 í Úlf­arsár­dal og full­yrðir að borgin sé að valda sér enn einum for­sendu­brest­inum. Félagið seg­ist þurfa 15-20 þús­und íbúa í Graf­ar­holt og Úlf­arsár­dal.

Brot af umsögn Fram til skipulagsyfirvalda í Reykjavík.
Brot af umsögn Fram til skipu­lags­yf­ir­valda í Reykja­vík. Mynd: Skjáskot

Fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar á nýt­ingu svæðis í Úlf­arsár­dal, sem í aðal­skipu­lagi Reykja­víkur heitir M22, leggj­ast illa í Knatt­spyrnu­fé­lagið Fram og fleiri umsagn­ar­að­ila á svæð­inu, en borgin stefnir að því að ekki verði lengur heim­ilt að byggja íbúðir á umræddum reit.

Í umsögn aðal­stjórnar Fram segir að þetta sé „enn einn for­sendu­brest­ur­inn á því sam­komu­lagi sem Fram gerði við Reykja­vík­ur­borg um flutn­ing félag­ins í Úlf­arsár­dal,“ en þangað hefur Fram verið að flytja starf­semi sína í áföngum á und­an­förnum árum, úr Safamýri þar sem sögu­legar rætur félags­ins liggja.

Í svari Reykja­vík­ur­borgar við umsögn Framara segir að íbúða­heim­ildir á þessum reit hafi séu tak­mark­aðar í núver­andi skipu­lagi og því er haldið til haga að hverfið hafi ýmsa stækk­un­ar­mögu­leika, þó ekki séu byggðar íbúðir á svæði M22, sem á ein­ungis að verða undir atvinnu­starf­semi, sam­kvæmt til­lögu borg­ar­yf­ir­valda.

Reykja­vík­ur­borg segir enn­fremur að eftir sam­þykkt aðal­skipu­lags Reykja­víkur árið 2014 hafi legið fyrir að borg­ar­hlut­inn yrði með um 10 þús­und íbúum eða svipað og sé í Árbænum í dag, í bak­landi Fylkis. Í umsögn Fram er minnst á að þegar upp­bygg­ing í Úlf­arsár­dalnum hafi verið kynnt upp­haf­lega hafi lóðir á svæði M22 verið „aug­lýstar sem glæsi­leg­ustu lóðir borg­ar­innar og sein­ustu suð­ur­hlíðar Reykja­víkur.“

Þróunin hafi verið í andstöðu við það sem Fram gekkst undir

„Á Skyggn­is­braut var gert ráð fyrir versl­un­ar­rými og átti þjón­ustu­stigið að vera hátt, með yfir 20 þús­und íbúa í hverf­inu. Skipu­lags­þróun hverf­is­ins hefur í raun verið í and­stæðu við upp­haf­legt skipu­lag þar sem plönum fyrir hverfið var fljót­lega breytt í 10 þús­und íbúa hverfi og síðan niður í um þrjú þús­und. Í dag (26.11.2020) eru sam­tals 2.628 íbúar í Úlf­arsár­dal og Reyn­is­vatnsás,“ segja Framarar, greini­lega óhressir með stöðu mála.

Fram segir þró­un­ina vera í algjörri and­stöðu við það sem Fram hafi geng­ist undir þegar samið var um flutn­ing félags­ins í Úlf­ars­árs­dal og Graf­ar­holt árið 2008. Aðal­stjórnin minnir á að það þurfi að hafa sam­fé­lag í kringum sig til að reka íþrótta­fé­lag, sam­fé­lag „sem er nægj­an­lega stórt til að félagið geti end­ur­nýjað sig og við­haldið þeirri starf­semi sem félag­inu er upp­álagt að halda úti sam­kvæmt samn­ingi við Reykja­vík­ur­borg.“

[adspot]

„Til að það sé mögu­legt þarf að lág­marki 15-20 þús­und manna byggð í Graf­ar­holti og Úlf­arsár­dal. Eins er mik­il­vægt að þeir glæsi­legu inn­viðir sem núna eru í bygg­ingu fyrir Fram í Úlf­arsár­dal, ásamt menn­ing­ar­mið­stöð og sund­laug nýt­ist sem flestum. Það að hafa blóm­legt og fjöl­breytt íþrótta­starf í hverf­inu á eftir að gera Úlf­arsár­dal­inn að einu glæsi­leg­asta hverfi lands­ins en til þess að það verði verður Fram að hafa aðgang að stóru hverfi sem hefur fjöl­breytta mögu­leika fyrir íbúa þess,“ segir í umsögn Fram.

Aðal­stjórn Fram segir mikla ásókn í sér­býli í hverf­inu, sem sjá­ist vel á góðri sölu. „Ef þetta fal­lega svæði er tekið út af borð­inu þá verður vænt­an­lega ekk­ert skipu­lagt svæði í Reykja­vík fyrir sér­býli á næst­unni fyrir utan óljósar hug­myndir um svæðið austan við núver­andi byggð í Úlf­arsár­dal,“ segir í umsögn­inni.

Félagið seg­ist ekki leggj­ast gegn upp­bygg­ingu á atvinnu­hús­næði á svæð­inu en leggst algjör­lega gegn því að dregið verði úr fram­boði á íbúð­ar­hús­næði á þessu svæði, M22.

Einnig leggj­ast Framarar gegn því að „mjög gróf starf­semi fari inn á þetta dýr­mæta bygg­ing­ar­land“ og skemmi ásýnd svæð­is­inss og upp­lifun íbúa hverf­is­ins.

Í svari við svip­uðum athuga­semdum segja borg­ar­yf­ir­völd að skoðað verði í ljósi athuga­semda og mót­mæla „hvort rétt sé að þrengja skil­grein­ingu svæðis varð­andi atvinnu­starf­semi og setja rík­ari kröfur um umhverf­is­gæði.“ Þetta verði tekið til skoð­unar við mótun end­an­legrar til­lögu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár