Hræðileg hegðun Auðar, líðan Kristjáns Þórs, atvinnuleysi og öndun á ofurlaunum

Kjarninn rekur einn dýnamís­kasta umræðu­vett­vang lands­ins þar sem ýmis­konar pistlar og skoð­ana­greinar birt­ast á hverju ári. Hér eru þeir tíu sem voru mest lesnir á árinu 2020.

10. Fréttamenn Kveiks koma af fjöllum

„Frétta­menn Kveiks full­yrða nú að þeir hafi aldrei sett þessar ásak­anir fram. Það er með nokkrum ólík­ind­um. Var þá upp­lifun okk­ar, stjórn­enda og starfs­fólks Sam­herja og fjöl­margra ann­arra sem horfðu á Kveik, bara ein­tómir hug­ar­ór­ar? Vorum við ímynda okkur það sem við sáum og heyrð­um? Þá er ekki nema von að menn spyrji, um hvað var eig­in­lega þessi Kveiks­þáttur, þar sem fjallað var um Cape Cod, ef hann fjall­aði ekki um þau atriði sem Sam­herji vildi leið­rétta?“

Björgólfur Jóhanns­son, annar for­stjóri Samherja, skrif­aði grein og sagði það útúr­snún­inga og eft­irá­skýr­ingar að ásak­anir sem Samherji taldi að hefðu komið fram í Kveiks­þætti í nóv­em­ber í fyrra, hefðu ekki komið þar fram.

Lesið grein­ina í heild sinni hér.

9. Má bjóða þér skógarelda með kaffinu?

„Hafra­drykk­ur­inn Oatly nýtur síauk­inna vin­sælda víða um heim, sér í lagi á Íslandi. Mörgum finnst hann ómissandi í kaffið eða út á morg­un­korn­ið. Unn­endur drykkj­ar­ins muna eflaust eftir því þegar hann var ófá­an­legur síð­asta sumar og fólk barð­ist um síð­ustu fern­urnar á göngum kjör­búða. Á sama tíma geisuðu sögu­legir skóg­ar­eldar í Amazonfrumskóginum sem vöktu óhug um allan heim.

Getur verið að drykk­ur­inn og eld­arnir teng­ist og að hjá Oatly sé kannski óhreint mjöl í poka­horn­inu?“

Ísak Már Jóhann­es­son skrif­aði um sænska hafra­mjólk­ur­fram­leið­ann Oatly og ágrein­ing sem ríkir um umsvif hans.

Lestu grein­ina í heild sinni hér.

8. Hvernig líður þér, elsku vinur? Bara prýðilega takk, ég er með ykkur öll í vasanum

„Hvernig líður þér, elsku vin?

Bara prýði­lega, við erum búnir að arð­ræna Namib­íu­menn í mörg ár, höfum grætt fárán­lega mikið, syndum í pen­ingum, við mút­uðum, við komumst hjá því að borga skatt af gróð­anum, skildum ekki gat með krónu eftir í sam­fé­lag­inu. Hugsaðu þér, Kristján, við komum þarna inn þegar Íslend­ingar eru nýbúnir að byggja upp sjáv­ar­út­veg­inn, við njótum því trausts og nýttum okkur það til hins ítrasta. Við stálum ekki bara öllu steini létt­ara heldur fluttum vinnsl­una út á sjó eftir að búið var byggja upp verk­þekk­ingu í landi og þjálfa til þess þús­und manns. Við rændum þús­und fjöl­skyldum við­ur­væri sínu. Við skildum allt eftir í rúst. Þetta var svona rbb dæmi.

Ríða, búið bless?

[adspot]Ég bara segi svona. Við strák­arnir.

Æ, hvernig líður þér, elsku vinur?

Bara prýði­lega, ég hef þig í vas­anum.“

Í lok síð­asta árs skrif­aði Jón Kalman Stef­áns­son rit­höf­undur um íslensk stjórn­mál, Kristján Þór Júl­í­us­son, Samherja, RÚV og Mið­flokk­inn. Hann velti fyrir sér hvort við værum smám saman að missa sjónar á réttu og röngu á meðan púk­arnir á fjós­bit­anum fitn­uðu.

Hægt er að lesa pistil­inn í heild sinni hér.

7. Rannsóknin sem hvarf í Keflavík

„Þegar hæsti­réttur sýkn­aði sak­fellda af drápum á Geir­finni Ein­ars­syni og Guð­mundi Ein­ars­syni, bætt­ust tvö ný óupp­lýst manns­hvörf á borð lög­regl­unn­ar. Sem lög­reglu­mál urðu til ný óupp­lýst mál, þótt manns­hvörfin sjálf hafi átt sér stað fyrir 46 og nærri 47 árum síð­an. Fyrri rann­sókn á manns­hvör­f­unum lauk með þeirri dóms­nið­ur­stöðu að menn­irnir hefðu verið drepnir og hverjir hefðu drepið þá, þótt aldrei hefði verið upp­lýst hvað varð um lík­in. Þegar hæsti­réttur sýknar hina sak­felldu af dráp­un­um, verða manns­hvörfin laga­lega séð óupp­lýst á ný. Hvað ætlar lög­regla að gera í því?“

Soffía Sig­urð­ar­dóttir skrif­aði um hvarf Geir­finns Ein­ars­sonar, og rann­sókn­ina á því manns­hvarfi.

Lestu grein­ina í heild sinni hér.

https://kjarninn.is/skodun/2020-11-20-rannsoknin-sem-hvarf-i-keflavik/

6. Af hverju mál Þorvaldar Gylfasonar er bæði lítið og stórt

„Þor­vald­ar­málið er stórt, vegna þess að það er svo lít­ið. Eng­inn hefur heyrst minnst á þetta litla fræði­rit áður. En heift og hatur fólks á hægri væng stjórn­mál­anna á Íslandi á meintum póli­tískum and­stæð­ingum er svo stækt að það getur ekki hugsað sér að fólk með „rangar skoð­an­ir” fái nokkur fram­gang, hér­lendis eða ann­ars stað­ar, svo lengi sem þeir fái nokkru við ráð­ið. „Ég myndi ekki einu sinni treysta mér til að senda Þor­vald út í búð fyrir mig, jafn­vel þótt hann væri með miða,” segir Brynjar Níels­son á Facebook. Firr­ing þess­ara manna og heift og blindni á eðli­lega sið­venjur er alger.

Stóra myndin er þessi: Þessir menn hafa ekk­ert lært eftir allar umræður um frænd­hygli, skort á fag­mennsku og spill­ingu síð­ustu ára. Stóra vanda­málið á Íslandi er frænd­hygli og skortur a fag­mennsku.“

Aðsend grein eftir Gauta B. Egg­erts­son, pró­fessor í hag­fræði við Brown-háskól­ann, um mál Þor­valdar Gylfa­sonar.

Lestu grein­ina í heild sinni hér.

5. Staðreyndir og spurningar um Icelandair, Landssímareitinn og Lindvarvatn ehf.

„Í íslensku þjóð­lífi er því miður algengt að stjórn­mála­menn og fyr­ir­svars­menn eft­ir­lits­að­ila gefa yfir­lýs­ingar um að líf­eyr­is­sjóðir eigi að taka þátt í þessu verk­efni eða hinu, hvort heldur sem um er að ræða fjár­fest­ingu í grænum skulda­bréfum eða fyr­ir­mæli eft­ir­lits­að­ila um sjálf­sköpuð gjald­eyr­is­höft á kostnað líf­eyr­is­þega. Þá eru alþekkt dæmi þess að stað­bundnir líf­eyr­is­sjóðir taki þátt í verk­efnum á starfs­svæði sínum og séu ítrekað hvattir til að taka þátt í slíku. Eru jafn­vel dæmi um að líf­eyr­is­sjóðir hafi komið að félögum til að taka þátt í slíkum verk­efn­um.

Að sama skapi leggja starfs­menn fyr­ir­tækja áherslu á að fá líf­eyr­is­sjóði með í verk­efni eða taki þátt í fjár­fest­ing­um, s.s. útboði.“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, skrif­aði ítar­lega grein um mál­efni Icelandair, Lands­símareits­ins og Lind­ar­vatns. Þar sagði hann sam­an­tekt sína kalla á að óháð rann­sókn fari fram.

Lestu grein­ina í heild sinni hér.

4. COVID-19: Að vita betur en þeir sem best vita

„Það er grafal­var­legt mál - sér­stak­lega og sér í lagi við svona kring­um­stæður - að grafa undan til­trú fólks á til­mælum og ákvörð­unum hins opin­bera. Það ætti eng­inn að gera nema hafa mjög ríkar ástæður til og þá annað hvort vegna sér­fræði­þekk­ingar sinn­ar, eða upp­lýs­inga sem yfir­völd hafa ekki. Það eru til leiðir fyrir slíkar upp­lýs­ingar og það eru líka til leiðir til að koma áhyggjum sínum og spurn­ingum á fram­færi með hóg­værum hætti.

[adspot]Já, ykkur gengur gott til, en lík­lega er það besta sem þið getið gert til að við komumst sem best út úr þessu að hætta að gagn­rýna opin­berar ákvarð­anir og tala eins og þið séuð hand­hafar sann­leik­ans í þessu máli.

Það gæti hrein­lega bjargað manns­líf­um!“

Hjálmar Gíslason, fram­kvæmda­stjóri GRID og stjórn­ar­for­maður Kjarnans, skrif­aði um þá sem grafa undan til­trú fólks á til­mæli og ákvarð­anir hins opin­bera.

Lesið grein­ina í heild sinni hér.

3. Andað á ofurlaunum

„Í fljótu bragði dettur mér ekki í hug stétt sem stjórn­völd hafa nið­ur­lægt jafn­ræki­lega og hjúkr­un­ar­fræð­ing­ar. Kjara­bar­áttan kæfð með gerð­ar­dómi. Lög sett á verk­föll. Logið til um með­al­laun. Launin lækkuð í miðjum heims­far­aldri. Samn­ing­arnir látnir lafa lausir því hvað eiga hjúkr­un­ar­fræð­ingar svo sem að gera? Fara í verk­fall? Nei, nú fyrst missa ráða­menn and­ann af hlátri.

Anda. Muna að anda. Og muna að betla til baka hjúkr­un­ar­fræð­ing­ana sem við hröktum í önnur störf.

Því það er svo merki­legt að þegar mest á reynir eru það ekki náskyldir ráð­gjafar eða aðstoð­ar­menn ráð­herra sem við treystum á, þótt launa­seðlar bendi til ann­ars – nei, við treystum á mæður sem snúa til baka úr fæð­ing­ar­or­lofi með fimm mán­aða gömul börn á brjósti, ömmur á eft­ir­laun­um, fórn­fúsar frænkur og frændur – þetta eru mann­eskj­urnar sem við treystum á.

Svo næst þegar heil­brigð­is­ráð­herra hugar að and­ar­drætt­inum vona ég að í full­kominni hug­arró fái hún eft­ir­far­andi hug­mynd: Það þarf að hækka laun hjúkr­un­ar­fræð­inga.“

Dagur Hjart­ar­son rit­höf­undur skrif­aði um kjör hjúkr­un­ar­fræð­inga.

Lesið pistil­inn í heild sinni hér.

2. Dagur 366 án atvinnu

„Í dag eru 366 dagar eða heilt ár (hlaupár munið þið) síðan ég hef verið án laun­aðrar vinnu. Heilt ár án þess að vakna á morgn­ana, fara í rækt­ina eða sund, fengið mér morg­un­mat og farið síðan til vinnu. Komið heim seinnipart dags­ins, sest niður með kaffi og rætt við kon­una mína um hvernig vinnu­dagur okkar var[...]Ég á alveg tíu ár eftir á vinnu­mark­aðnum enda frískur og sprækur og held mér í formi með reglu­legri lík­ams­rækt og sundi. Þá ósk á ég heitasta að hafa vinnu í stað þess að sækja stöðugt um störf næstu tíu ár.

Það ræt­ist von­andi úr innan tíð­ar!“

Bjarni Jónsson skrif­aði grein um hvernig það er að vera atvinnu­laus í lengri tíma en vilja vinna. Bjarni fékk ýmis boð um störf eftir að greinin birt­ist og komst aftur inn á vinnu­markað í ágúst síð­ast­liðnum.

Lesið grein­ina í heild sinni hér.

1. Allt það hræðilega sem ég hef gert!

„Þetta og miklu meira til gerði ég á þessum aldri. Sumir gerðu eitt­hvað miklu gáfu­legra. En það skil­greinir mig ekki í dag, þó að ég geti flissað að þessu. Ég veit samt ekki hvernig það hefði verið ef netheimar hefðu verið orðnir eins og þeir eru í dag. Kannski hefði ég misst mann­orðið fyrir lífs­tíð, fyrir eitt­hvað af þessu, eða eitt­hvað af því sem ég man ekki einu sinni eft­ir. Ég var ekki með sömu dóm­greind og ég er með í dag, þó að henni sé svosem oft ábóta­vant í núinu. Ég var ung. Og vit­laus. Stundum skemmti­lega vit­laus, stundum hættu­lega. Og þess vegna hugsa ég núna, þegar ég sé ungar stelpur sjeimaðar í breskum miðlum fyrir ung­gæð­ings­legan dóm­greind­ar­brest: Þetta hefði getað verið ég!“

Auður Jóns­dóttir rit­höf­undur rifj­aði upp atvik frá sínum ung­dóms­árum og hrósar happi yfir því að ekki hafi verið til sam­fé­lags­miðlar á þeim tíma.

Lesið pistil­inn í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2020

Pistill

Sandra B. Franks

Far­ald­ur­inn yfir­skyggði allt

Á við­burða­ríku ári sem nú er liðið yfir­skyggði Covid-19 far­ald­ur­inn allt annað. Hann reyndi veru­lega á starfs­þrek heil­brigð­is­starfs­manna og ekki síst okkur sjúkra­liða. Mörg okkar voru í fram­lín­unni. Aðrir sjúkra­liðar stóðu vakt­ina í störfum sem ekki voru síður mik­il­væg. Ég er mjög stolt af því hve frá­bær­lega sjúkra­liða­stéttin hefur staðið sig í Covid far­aldr­inum. Hann hefur svo sann­ar­lega beint athygl­inni...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár