Stoðir orðinn stærsti eigandi Kviku banka

Fjár­fest­inga­fé­lagið Stoðir er nú stærsti ein­staki eig­andi Kviku banka eftir að hafa skipt á hluta­bréfum í TM fyrir hluta­bréf í bank­anum. Félagið er líka stærsti ein­staki eig­andi TM.

Fjár­fest­inga­fé­lagið Stoðir á nú 8,28 pró­sent hlut í Kviku banka. Það gerir Stoðir að stærsta eig­anda Kviku banka, en áður var Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna stærsti eig­and­inn með 7,6 pró­sent eign­ar­hlut.

Stoðir eru stærsti eig­andi trygg­inga­fé­lags­ins TM, en til­kynnt var um sam­runa þess og Kviku fyrir skemmstu. Félagið seldi í dag allan eign­ar­hlut sinn í trygg­inga­fé­lag­inu sem var umfram 9,9 pró­sent, en áður átti það 11,6 pró­sent. hlut. Fyrir selda hlut­inn var greitt með hluta­bréfum í Kviku.

Þetta kemur fram í flögg­unum til Kaup­hallar Íslands í kvöld. Þar segir orð­rétt: „Í ljósi fyr­ir­hug­aðs sam­runa TM hf. og Kviku banka hf. hafa Stoðir hf. dregið til baka umsókn sína um að fara með virkan eign­ar­hlut í TM hf. og hafa því nú selt þann hluta eign­ar­hlutar síns í TM sem var umfram 9,9 pró­sent, gegn greiðslu með hluta­bréfum í Kviku banka.“

Frétta­blaðið greindi frá því á mið­viku­dag að Stoðir hefðu und­an­farið verið að byggja upp stöðu í Kviku í gegnum fram­virka samn­inga en sá eign­ar­hlutur var þá skráður á þann banka sem samn­ing­ur­inn var gerður við, ekki Stoðir.

Stoðir verða áfram sem áður stærsti eig­and­inn í TM. Auk þess er félagið stærsti inn­lendi einka­fjár­festir­inn í Arion banka með 4,99 pró­sent hlut og stærsti eig­andi Símans með 14,86 pró­sent hlut.

Tilkynnt um sameiningu fyrir skemmstu

Stjórnir Kviku banka, TM og Lyk­ils sam­þykktu 25. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn að sam­eina félög­in, með fyr­ir­vara um að Fjár­mála­eft­ir­lit­ið, Sam­keppn­is­eft­ir­litið og hlut­hafar sam­þykki sam­run­ann. Gangi sam­run­inn eftir fá hlut­hafar í TM 54,4 pró­senta hlut í sam­ein­uðu félag­i en hlut­hafar í Kviku 45,6 pró­sent.

[adspot]Sam­kvæmt til­kynn­ing­u sem send var til Kaup­hallar Íslands þann dag höfðu stjórnir allra félag­anna farið yfir nið­ur­stöður við­ræðn­anna og sam­þykkt sam­runa­samn­ing. Samn­ing­ur­inn felur í sér að TM færi vátrygg­inga­starf­semi sína í dótt­ur­fé­lag sitt, TM trygg­ingar hf, sem verður svo í kjöl­farið dótt­ur­fé­lag nýs sam­ein­aðs félags af Kviku, TM og Lykli.

Mar­inó Örn Tryggva­son og Sig­urður Við­ars­son, for­stjórar félag­anna, munu áfram gegna stöðum sín­um gangi sam­ein­ingin eftir. Mar­inó Örn verður for­stjóri Kviku og Sig­urður verður for­stjóri TM trygg­inga.

Eiga eigið fé upp á 25 milljarða

Stoð­ir, sem hét einu sinni FL Group, töp­uðu 477 millj­ónum króna á fyrri hluta árs­ins 2020. Á sama tíma­bili í fyrra hagn­að­ist félagið um rúma tvo millj­arða króna. Tapið má rekja til breyt­inga á virði fjár­fest­inga­eigna sem lækk­uðu um 694 millj­ónir króna á tíma­bil­inu. Geng­is­hagn­aður upp á 318 millj­ónir króna vóg upp það tak.

Eignir Stoða voru metnar á 24,7 millj­arða króna í lok júní síð­ast­lið­ins og höfðu rýrnað um tæpan hálfan millj­arð króna frá ára­mót­um. Eignir Stoða skipt­ast að uppi­stöðu í fjár­fest­ingar upp á 19,3 millj­arða króna, reiðufé upp á 3,3 millj­arða króna og veitt lán upp á rúma tvo millj­arða króna.

Félagið skuldar hins vegar nán­ast ekk­ert og eigið fé þess því jafnt eign­un­um, eða 24,7 millj­arðar króna. Þetta kom fram í árs­hluta­reikn­ingi Stoða sem birtur var í sept­em­ber.

Tengsl við gamla FL Group

Stærstu hlut­hafar Stoða eru S121 ehf. (64,6 pró­sent), Lands­bank­inn (12,1 pró­sent) og sjóðir í stýr­ingu Stefn­is, sjóð­stýr­inga­fyr­ir­tækis Arion banka (10,12 pró­sent).

Stærstu end­an­legu eig­endur S121 hafa margir tengsl við gamla FL Group, annað hvort störf­uðu þar eða sátu í stjórn. Má þar nefna félög tengd Magn­úsi Ármann, sem var hlut­hafi í FL Group og sat í stjórn félags­ins, Örv­ari Kjærne­sted, sem var yfir starf­semi FL Group London fyrir hrun, og Bern­hard Boga­syni, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri lög­fræðis­viðs FL Group. Þá á Einar Örn Ólafs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Skelj­ungs, líka stóran hlut.

Auk þess á eig­in­kona Jóns Sig­urðs­son­ar, fyrr­ver­andi for­stjóra FL Group/­Stoða og núver­andi stjórn­ar­for­manns Stoða, og fjöl­skylda hennar stóran hlut. Með Jóni í stjórn­inni sitja Sig­­­ur­jón Páls­­­son og Örvar Kjærne­sted. Fram­­­kvæmda­­­stjóri félags­­­ins er Júl­­­íus Þor­finns­­­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár