Ari Trausti ætlar ekki að bjóða sig fram aftur

Eini þing­maður VG í Suð­ur­kjör­dæmi mun ekki bjóða sig fram aftur í næstu Alþing­is­kosn­ingum.

Ari Trausti Guðmundsson, þingmaður VG.
Ari Trausti Guð­munds­son, þing­maður VG. Mynd: Bára Huld Beck

Ari Trausti Guð­munds­son þing­maður VG ætlar ekki að bjóða sig fram í næstu Alþing­is­kosn­ingum og mun því að öllum lík­indum ljúka sex ára þing­manna­ferli sínum næsta haust. Þetta kemur fram í grein eftir Ara á heima­síðu VG sem birt var í dag.

Í grein­inni seg­ist Ari hafa verið fullur orku og hug­mynda á þing­ferli sínum, bæði í stjórn og stjórn­ar­and­stöðu. Hann segir árang­ur­inn sem náðst hafi í stjórn­ar­sam­starfi VG við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Fram­sókn­ar­flokk­inn hafa verið veg­ferð­ar­innar virði og hafa knúið fram fram­farir í mörgum mála­flokkum, þótt þörf hafi verið á stærri eða rót­tæk­ari félags­legum umbóta­skrefum. [adspot]

Ari þakkar einnig fyrir sam­starfið með Katrínu Jak­obs­dóttur, sem hann segir hafa verið öfl­uga, rétt­sýna og trausta sem for­sæt­is­ráð­herra, auk þess sem hann hrósar Svandísi Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra og Guðmundi Inga Guð­brands­syni umhverf­is­ráð­herra fyrir að vera starfs­söm, glögg og skil­virk.

Ari Trausti er eini þing­maður VG í Suð­ur­kjör­dæmi, en flokk­ur­inn hlaut 11,8 pró­senta fylgi þar í síð­ustu Alþing­is­kosn­ingum árið 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár