Hækka atvinnuleysisbætur næsta árs með sérstöku viðbótarálagi

Rík­is­stjórnin kynnti í dag enn frek­ari efna­hags­að­gerðir, sem ætlað er að veita fólki og fyr­ir­tækjum meiri fyr­ir­sjá­an­leika inn í vet­ur­inn. Grunnatvinnu­leys­is­bætur næsta árs verða rúmar 307 þús­und krónur.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar kynntu á blaða­manna­fundi í Hörpu í dag að tekin hefði verið ákvörðun um að hækka grunnatvinnu­leys­is­bætur næsta árs upp í 307.403 krónur, með sér­stöku við­bót­ar­á­lagi ofan á grunnatvinnu­leysi­bætur.

Hækkaðar greiðslur vegna fram­færslu barna atvinnu­leit­enda verða einnig fram­lengdar út næsta ár og des­em­ber­upp­bót atvinnu­leit­enda núna um næstu mán­að­ar­mót verður 86 þús­und krónur.

Þetta sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra gert til þess að koma til móts við þann fjölda fólks sem hefur orðið fyrir því áfalli að missa vinn­una vegna áhrifa heims­far­ald­ur­ins á efna­hags­lífið.

Heild­ar­kostn­aður rík­is­sjóðs við þessar þrjár aðgerðir er met­inn á 3,2 millj­arða króna, sam­kvæmt upp­lýs­inga­bæk­lingi um aðgerð­irnar sem rík­is­stjórnin hefur birt.

„Stóra verk­efnið er að tryggja að atvinnu­leysi verði ekki langvar­andi böl í íslensku sam­fé­lagi,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra á blaða­manna­fund­inum, sem reyndar var hald­inn án allra blaða­manna, vegna sótt­varna­ráð­staf­ana.

Rík­is­stjórnin kynnti á fund­inum fleiri aðgerðir, sem Katrín sagði að ætlað væri að koma til móts við almenn­ing og atvinnu­líf í land­inu og tryggja ákveð­inn fyr­ir­sjá­an­leika inn í vet­ur­inn.

Viðspyrnustyrkir sem gætu numið allt 20 milljörðum

Rík­is­stjórnin hefur sam­þykkt frum­varp um við­spyrnu­styrki, sem eru hugs­aðir fyrir þá rekstr­ar­að­ila sem verða fyrir að minnsta kosti 60 pró­sent tekju­falli í alm­an­aks­mán­uði á tíma­bil­inu 1. nóv­em­ber 2020 til 31. maí 2021, sam­an­borið við sama mánuð árið 2019.

Tvö við­mið um tekju­fall eru notuð til grund­vallar útreikn­ings styrk­fjár­hæðar:

  • 60-80% tekju­fall: 400 þús­und króna hámarks­styrkur fyrir hvert stöðu­gildi, að hámarki 2 millj­ónir króna.
  • 80-100% tekju­fall: 500 þús­und króna hámarks­styrkur fyrir hvert stöðu­gildi, að hámarki 2,5 millj­ónir króna.

Fjárhæð við­spyrnu­styrks getur verið að hámarki 90 pró­sent af rekstr­ar­kostn­aði, en þó aldrei hærri en sem nemur tekju­fall­inu á tíma­bil­inu.

Áætlað umfang þess­arar aðgerðar er sagt óvíst og mun fara eftir ásókn í styrk­inn. Þó segir rík­is­stjórnin áætlað að aðgerðin geti ekki kostað meira en 20 millj­arða króna.

Hluta­bóta­leiðin verður fram­lengd í núver­andi mynd fram til 31. maí 2021. Starfs­menn þurfa að vera í 50 pró­sent starfs­hlut­falli til að unnt sé að sækja um hluta­bætur.

Öryrkjar fá aukaeingreiðslu í desember

Örorku og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyr­is­þegar sem eiga rétt á líf­eyri á þessu ári munu fá 50 þús­und króna skatt­frjálsa ein­greiðslu í des­em­ber­mán­uði, til við­bótar við des­em­ber­upp­bót sem þessi hópur fær einnig.

Einnig kynnir rík­is­stjórnin við­bót­ar­hækkun til tekju­lágra örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyr­is­þega frá 1. jan­úar.

„Dregið verður úr inn­byrðis skerð­ingum í kerf­inu sem skilar tekju­lægstu örorku­líf­eyr­is­þeg­unum 7.980 kr. við­bót­ar­hækkun á mán­uði umfram þá 3,6% hækkun sem gert er ráð fyrir í frum­varpi til fjár­laga fyrir árið 2021. Heild­ar­hækkun bóta almanna­trygg­inga til tekju­lægstu líf­eyr­is­þeg­anna verður því 19.700 kr. eða 6,1% um ára­mót,“ segir í kynn­ing­ar­bæk­lingi rík­is­stjórn­ar­innar.

Heild­ar­um­fang þess­ara tveggja aðgerða í þágu örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyr­is­þega nemur 2,2 millj­örðum króna.

Aðgerðir fyrir barnafjölskyldur

Einnig kynnir rík­is­stjórnin að skerð­ing­ar­mörk í barna­bóta­kerf­inu verði hækkuð úr 3,9 millj­ónum króna á ári í 4,2 millj­ónir króna á ári hjá ein­stæðum for­eldrum og úr 7,8 millj­ónir í 8,4 millj­ónir hjá hjónum eða sam­búð­ar­fólki.

„Breyt­ingin skilar ein­stæðum for­eldrum með tvö börn og mán­að­ar­tekjur á bil­inu 350.000 til 580.000 kr. um 30.000 kr. hækkun barna­bóta á ári. Fyrir hjón/sam­búð­ar­fólk með tvö börn og sam­an­lagðar mán­að­ar­tekjur á bil­inu 700.000 til 920.000 kr. hækka barna­bætur um 60.000 kr. á ári,“ segir rík­is­stjórnin um þessa aðgerð, sem metin er á 830 millj­ónir króna.

Einnig verður stuðn­ingur við tóm­stunda­iðkun barna af tekju­lágum heim­ilum fram­lengdur inn í árið 2021 og des­em­ber­upp­bót verður greidd til for­eldra lang­veikra og alvar­lega fatl­aðra barna. Þá verður ráð­ist í ýmsar aðrar sér­tækar félags­legar aðferðir fyrir mis­mun­andi hópa í sam­fé­lag­inu, aldr­aða, fatlað fólk, inn­flytj­endur og börn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár