Stoðir töpuðu tæpum hálfum milljarði króna á fyrri hluta ársins 2020

Stoðir, sem eru einn umsvifa­mesti einka­fjár­festir­inn á íslenska mark­aðnum, á eignir upp á tæpa 25 millj­arða króna og skuldar nán­ast ekk­ert. Verði af sam­ein­ingu TM og Kviku munu stoðir verða stærsti einka­fjár­festir­inn í báðum einka­reknu bönkum lands­ins.

Jón Sigurðsson, stjórnarformaður Stoða.
Jón Sig­urðs­son, stjórn­ar­for­maður Stoða. Mynd: N1

Stoðir, einn umsvifa­mesti einka­fjár­festir á íslenska hluta­bréfa­mark­aðnum í dag, tap­aði 477 millj­ónum króna á fyrri hluta árs­ins 2020. Á sama tíma­bili í fyrra hagn­að­ist félagið um rúma tvo millj­arða króna. Tapið má rekja til breyt­inga á virði fjár­fest­inga­eigna sem lækk­uðu um 694 millj­ónir króna á tíma­bil­inu. Geng­is­hagn­aður upp á 318 millj­ónir króna vóg upp það tak.

Eignir Stoða voru metnar á 24,7 millj­arða króna í lok júní síð­ast­lið­ins og höfðu rýrnað um tæpan hálfan millj­arð króna frá ára­mótum. Eignir Stoða skipt­ast að uppi­stöðu í fjár­fest­ingar upp á 19,3 millj­arða króna, reiðufé upp á 3,3 millj­arða króna og veitt lán upp á rúma tvo millj­arða króna.

Félagið skuldar hins vegar nán­ast ekk­ert og eigið fé þess því jafnt eign­unum, eða 24,7 millj­arðar króna.

Þetta kemur fram í árs­hluta­reikn­ingi Stoða sem birtur var nýverið.

Grunnurinn var Refresco

Þótt fyr­ir­ferð Stoða á íslenskum fjár­fest­inga­mark­aði hafi auk­ist veru­lega á síð­ustu árum þá á félagið sér langa sögu. Það hét áður FL Group og var meðal ann­ars stærsti eig­andi Glitnis banka fyrir hrun.

[adspot]Félagið fór í greiðslu­stöðvun þegar sá banki fór á haus­inn og kröfu­hafar þess tóku það yfir. Vorið 2017 keyptu svo félög, í eigu stórra hlut­hafa í TM sem voru margir hverjir lyk­il­­menn í FL Group á árunum fyrir hrun, ráð­andi hlut í Stoð­u­m.

Þá áttu Stoðir ein­ungis eina eign af viti sem átti eftir að vinna úr, hlut í hol­lenska drykkj­­ar­vöru­fram­­leið­and­­anum Refresco. Sá hlutur var seldur í mars 2018 eftir yfir­tökutil­boð og eftir sátu um 18 millj­arðar króna í Stoð­um. Þeir fjár­munir hafa verið not­aðir í fjár­fest­ingar á und­an­förnum miss­er­um.

Gömul tengsl

Stærstu hlut­hafar Stoða eru S121 ehf. (64,6 pró­sent), Lands­bank­inn (12,1 pró­sent) og sjóðir í stýr­ingu Stefnis, sjóð­stýr­inga­fyr­ir­tækis Arion banka (10,12 pró­sent).

Stærstu end­an­legu eig­endur S121 hafa margir tengsl við gamla FL Group, annað hvort störf­uðu þar eða sátu í stjórn. Má þar nefna félög tengd Magnúsi Ármann, sem var hlut­hafi í FL Group og sat í stjórn félags­ins, Örvari Kjærne­sted, sem var yfir starf­semi FL Group London fyrir hrun, og Bernhard Bogasyni, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri lög­fræðis­viðs FL Group. Þá á Einar Örn Ólafsson, fyrr­ver­andi for­stjóri Skelj­ungs, líka stóran hlut.

Auk þess á eig­in­kona Jóns Sig­urðs­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra FL Group/Stoða og núver­andi stjórn­ar­for­manns Stoða, og fjöl­skylda hennar stóran hlut. Með Jóni í stjórn­inni sitja Sig­­ur­jón Páls­­son og Örvar Kjærne­sted. Fram­­kvæmda­­stjóri félags­­ins er Júl­­íus Þor­finns­­son.

Gætu orðið stórir í tveimur bönkum

Helstu eignir Stoða eru 4,99 pró­sent hlutur í Arion banka, 14,86 pró­sent hlutur í Símanum og 11,66 pró­sent hlutur í trygg­inga­fé­lag­inu TM.

[links]Stoðir eru stærsti ein­staki eig­and­inn í bæði Símanum og TM, og langstærsti íslenski einka­fjár­festir­inn í Arion banka. Örvar og Einar Örn sitja báðir í stjórn TM, og Jón Sig­urðs­son er stjórn­ar­for­maður Símans.

Í byrjun viku var greint frá því að Kvika banki og TM hefðu ákveðið að hefja form­legar við­ræður um sam­ein­ingu bank­ans við Lykil og að trygg­ing­ar­fyr­ir­tækið verði dótt­ur­fé­lag bank­ans. Gert er ráð fyrir TM verði dótt­ur­fé­lag Kviku banka og að Lyk­ill sam­ein­ist Kviku banka. Þá er gert ráð fyrir að hlut­hafar í TM fái sem end­ur­gjald fyrir hluta­bréfin sín í TM 55 pró­senta hlut í sam­ein­uðu félag­i.

Gangi þetta eftir munu Stoðir verða stærsti ein­staki eig­andi sam­ein­aðs banka með um 6,4 pró­sent eign­ar­hlut. Fjár­fest­inga­fé­lagið verður þá líka orðið stærsti einka­fjár­festir­inn í báðum einka­reknu bönkum lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár