Sóknarfæri vegna farsóttarinnar

Íslensk mál­nefnd segir í nýrri ályktun sinni um stöðu íslenskrar tungu að sókn­ar­færi hafi mynd­ast fyrir tungu­málið vegna far­sótt­ar­innar, sem nýta mætti til að hvetja fyr­ir­tæki til að bjóða þjón­ustu sína fram á íslensku, en ekki bara á ensku.

Ferðamenn á ferð í Reykjavík, í veröld sem var. „Enginn ætti að geta ferðast um Ísland án þess að komast að því að hér á landi er talað sérstakt tungumál en ekki aðeins enska,“ segir Íslensk málnefnd í nýrri ályktun.
Ferða­menn á ferð í Reykja­vík, í ver­öld sem var. „Enginn ætti að geta ferð­ast um Ísland án þess að kom­ast að því að hér á landi er talað sér­stakt tungu­mál en ekki aðeins enska,“ segir Íslensk mál­nefnd í nýrri ályktun. Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Þær breyt­ingar á ferða­mennsku og fyr­ir­tækja­rekstri sem fylgdu far­sótt­inni fela í sér sókn­ar­færi fyrir íslenskt mál og tæki­færi til við­horfs­breyt­ingar,“ segir í nýrri ályktun frá Íslenskri mál­nefnd um stöðu íslenskrar tungu. Íslensk mál­nefnd er skipuð af mennta­mála­ráð­herra og hefur meðal ann­ars það hlut­verk að álykta árlega um stöðu tung­unnar.

Mál­nefndin segir að þegar rýnt sé í umræðu um stöðu íslensku blasi við „ákveð­inn ímyndar- og við­horfsvandi,“ sem lýsi sér í því að íslenskt mál virð­ist ekki jafn mik­il­vægur þáttur í sjálfs­mynd Íslend­inga og áður var. Tungu­málið sé þannig gjarnan tengt við for­tíð sem ein­kennd­ist af ein­angrun og fátækt og bók­mennta­arf­ur­inn virð­ist skipta minna máli í heimi fjöl­breyttrar afþrey­ingar á ensku þar sem bók­lestur er á und­an­haldi.


Málnefnd segir að gera megi ráð fyrir að það hafi „tals­verð áhrif á við­horf til íslensku að um ára­bil hafa mik­il­vægar atvinnu­greinar snú­ist um við­skipti og þjón­ustu við útlend­inga sem veitt er á erlendum tungu­málum en lang­mest ensku“ og að það hafi komið ber­lega í ljós fyrr á árinu þegar túrista hættu að streyma til lands­ins vegna far­ald­urs­ins að rit­mál í ferða­þjón­ustu hafi verið nær ein­göngu á ensku eða öðrum erlendum málum.

„Það kom sér illa þegar mark­aðs­sókn tók nýja stefnu og hætt var að beina mark­aðs­efni að erlendum gestum vegna ferða­tak­mark­ana af völdum far­sóttar og því beint að þeim sem búa á Íslandi,“ segir í ályktun mál­nefnd­ar­innar.

En sem áður sagði er nú sókn­ar­færi fyrir tungu­málið, að mati mál­nefndar. „Það þyrfti að nýta þegar vöxtur fær­ist í ferða­þjón­ustu á ný og hvetja fyr­ir­tæki til að bjóða vörur sínar og þjón­ustu ávallt fram á íslensku til jafns við önnur tungu­mál. Enginn ætti að geta ferð­ast um Ísland án þess að kom­ast að því að hér á landi er talað sér­stakt tungu­mál en ekki aðeins enska. Leggja má áherslu á að málið snú­ist um sjálfs­virð­ingu. Engu hót­eli dettur í hug að láta gest koma að óupp­búnu rúmi og jafn sjálf­sagt á að vera að íslenska sé ávallt sýni­leg, ásamt ensku ef þurfa þykir, segir mál­nefnd.

Dómhörð umræða um málnotkun engum til framdráttar

Auk þess að vekja athygli á þessu sókn­ar­færi fyrir tung­una sem mynd­ast hafi fyrir vegna far­ald­urs­ins ræðir Íslensk mál­nefnd um stöðu íslensk­unnar í mennta­kerf­inu, í afþr­ey­ingu og almanna­rým­inu. Einnig segir mál­nefndin að svo virð­ist sem almenn­ings­á­litið í garð tung­unnar „sé yfir­leitt á þá lund að íslensku máli hnigni hratt.“

„Neikvæð umræða á þeim nótum bein­ist yfir­leitt að yngstu kyn­slóð­inni og útlend­ingum sem eru að læra íslensku. Gerðar eru athuga­semdir við að unga fólkið sletti of mikið, beygi vit­laust og hafi tak­mark­aðan orða­forða og að útlend­ingar hvorki skilji né tali íslensku. Umræða á þessum nótum er ekki til þess fallin að styrkja stöðu íslensku,“ ritar mál­nefndin um þetta atriði og segir þörf á vit­und­ar­vakn­ingu meðal almenn­ings um að íslenska sé síbreyti­leg og til í mörgum myndum.

„Gefa þarf börnum og ung­mennum, ungu fólki og útlend­ingum tæki­færi til að tjá sig á íslensku við öll tæki­færi. Hvetja á fólk til að láta rödd sína heyr­ast án þess að strax gjósi upp dóm­hörð umræða um mál­notkun,“ segir Íslensk mál­nefnd, sem telur alla þurfa að leggj­ast á eitt við að efla jákvætt við­horf í garð íslensks máls.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Tungumál

AðsentTungumál

Steinunn Rut Friðriksdóttir

Enskan er ekki nóg

Það eru vissir hlutir sem heyr­ast þegar maður seg­ist vera í tungu­mála­námi á háskóla­stigi. „Hvað ætlarðu að gera við þessa gráðu?“ „Ætlarðu þá að verða kenn­ari?“ „Ertu þá að læra bara mál­fræði eða...?“ „Þú veist að þú munt aldrei þéna neitt með svona hug­vís­inda­gráðu...“ „Kanntu ekki ensku? Er það ekki nóg?“ og upp­á­haldið mitt: „Jááá.....“ Því síð­ast­nefnda fylgir gjarnan vand­ræða­leg...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár