Losun gróðurhúsalofttegunda frá vegasamgöngum dróst saman milli ára

Samkvæmt bráða­birgða­nið­ur­stöðum los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á beinni ábyrgð Íslands fyrir árið 2019 dróst losun frá vega­sam­göngum saman um 2 pró­sent milli áranna 2018 og 2019.

Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á beinni ábyrgð Íslands dróst saman um 0,3 pró­sent á milli áranna 2018 og 2019, að því er fram kemur á vef Umhverf­is­stofn­unar í dag.

Um er að ræða bráða­birgða­nið­ur­stöður los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á beinni ábyrgð Íslands fyrir árið 2019. Þetta er nýmæli, sam­kvæmt stofn­un­inni, því fram til þessa hafa los­un­ar­tölur verið gefnar út tveimur árum eftir að los­unin á sér stað, þegar þeim er skilað inn til Ramma­samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­breyt­ingar.

Samkvæmt bráða­birgða­nið­ur­stöð­unum dróst losun vegna urð­unar saman um 10 pró­sent milli áranna 2018 og 2019. Losun frá vega­sam­göngum dróst saman um 2 pró­sent á þessum sama tíma og segir á vef Umhverf­is­stofn­unar að það sé í fyrsta skipti frá 2014 sem sjá megi sam­drátt í þessum flokki.

Losun frá jarð­varma­virkj­unum jókst hins vegar um 5 pró­sent á tíma­bil­inu. Losun frá iðn­að­ar­ferlum og efna­notkun jókst umtals­vert en sú losun er að stærstum hluta ann­ars eðlis, þ.e. vegna kæli­m­iðla sem hafa 7 ára líf­tíma og því er losun þeirra í beinu sam­hengi við inn­flutn­ing þeirra 7 árum áður, sam­kvæmt stof­un­inni.

Íslandi hefur náð 6,7% af þeim 29% sem stefnt er að 2030

Með Par­ís­ar­sátt­mál­anum hafa Íslend­ingar skuld­bundið sig til að ná 29 pró­sent sam­drætti í losun á beinni ábyrgð Íslands árið 2030, miðað við losun árs­ins 2005. Bráða­birgða­nið­ur­stöð­urnar benda til þess að Íslandi hafi nú náð 6,7 pró­sentum af þeim 29. Stefnt er að a.m.k. 35 pró­sent sam­drætti árið 2030 sam­kvæmt aðgerða­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar. Bráða­birgða­töl­urnar ná ekki yfir losun sem fellur undir við­skipta­kerfi ESB með los­un­ar­heim­ildir (ETS) né losun og kolefn­is­bind­ingu sem teng­ist land­notkun, breyttri land­notkun og skóg­rækt (LULUCF), að því er fram kemur hjá Umhverf­is­stofnun.

[adspot]

Helstu breyt­ingar í losun milli áranna 2018 og 2019 eru:

  • Losun frá vega­sam­göngum dróst saman um 2 pró­sent milli áranna 2018 og 2019, og er það í fyrsta skipti sem sjá má sam­drátt í þessum flokki síðan 2014.
  • Losun frá jarð­varma­virkj­unum jókst um 5 pró­sent. Þessi aukna losun er ekki vegna auk­innar fram­leiðslu heldur teng­ist hún breyttum fram­leiðslu­skil­yrðum.
  • Losun frá kæli­m­iðlum (F-gösum) jókst umtals­vert eða um 25 pró­sent milli 2018 og 2019. Helsta ástæðan fyrir því er að árið 2012 var mikið flutt inn af kæli­m­iðlum sem m.a. eru not­aðir á fiski­skipum, og þar sem að gert er ráð fyrir 7 ára líf­tíma á bún­að­inum, þá er los­unin vegna þeirra að miklu leyti að koma fram árið 2019. Þess ber þó að geta að: Árið 2013 var minna flutt inn af kæli­m­iðlum en árið 2012, því er við­búið að sam­dráttur í losun vegna kæli­m­iðla muni verða milli áranna 2019 og 2020.
  • Inn­flutn­ingur kæli­m­iðla dróst tals­vert saman milli áranna 2018 og 2019 og mun sá sam­dráttur í losun koma fram sjö árum seinna.
  • Losun frá land­bún­aði dróst saman um 2,5 pró­sent vegna færri hús­dýra.
  • Losun vegna urð­unar dróst saman um 10 pró­sent og er það aðal­lega vegna auk­innar met­an­söfn­unar á Íslandi.

Umhverf­is­stofnun tekur sér­stak­lega fram að mik­il­vægt sé að hafa í huga að töl­urnar sem um ræðir séu bráða­birgða­nið­ur­stöður. Þær geti tekið breyt­ingum áður en enda­leg skil til Ramma­samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­breyt­ingar verða þann 15. apríl 2021. Nið­ur­stöður gefi engu að síður vís­bend­ingu um þróun los­unar á Íslandi. Umhverf­is­stofnun stefnir að birt­ingu ítar­legri talna fyrir lok árs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár