Nýjar ógnir – Almannaöryggi og vopnakapphlaup

COVID-19 hefur beint sjónum að því hversu við­kvæm öfl­ug­ustu ríki heims, sem byggja öryggi sitt meðal annrs á hern­að­ar­legum mætti, eru gagn­vart slíkum ógnum. Að þegar límið sem heldur sam­fé­lag­inu saman þverr, er hinu sam­fé­lags­lega öryggi ógnað.

Mun NATO þola annað kjörtímabil af Trump?
Mun NATO þola annað kjör­tíma­bil af Trump? Mynd: EPA

Almennt er hægt að segja að fólk á Vest­ur­löndum búi við aðstæður í sínu dag­lega lífi sem telja má mun betri og örugg­ari en fyrr á tímum. Ýmsir hlutir sem ekki voru til staðar, jafn­vel aðeins fyrir nokkrum ára­tugum, eru orðnir ómissandi, hvort sem það eru nútíma þæg­indi; sam­göngur, inter­net, tölvur og far­símar, eða mann­rétt­indi; lýð­ræði, kosn­inga­réttur og jafn­rétti. Allt þykja þetta nú sjálf­sagðir hlutir en voru jafn­vel óþekkt eða ómótuð fyr­ir­bæri fyrir aðeins ríf­lega manns­aldri.

Til þess að þetta flókna sam­fé­lag megi ganga áfalla­laust er komið upp enn flókn­ari kerfum til að verja það áföllum. Oftast virka þær varnir eins og til er ætl­ast en stundum erum við þó minnt óþægi­lega á hversu varn­ar­laus heimur okkar er. Nú síð­ast í yfir­stand­andi heims­far­aldri, þegar veiru­sýk­ing sem ekki virðir landa­mæri setur allt bók­staf­lega á hlið­ina. Varn­ar­kerfin duga skammt, allra síst allar her­varn­irnar. Landa­mærum er lokað, sam­göngur stöðvast, hag­kerfin kólna svo kreppu­á­stand ríkir og heilu sam­fé­lögin eru sett í stofu­fang­elsi – allt vegna einnar veiru.

Mörkin milli innri og ytri öyggismála

Mörkin á milli ytri og innri og harðra og mjúkra örygg­is­mála eru því orðin ógreini­legri og örygg­is­hug­takið mun víð­tækara. Enda hefur það sem helst raskar gang­verki nútíma sam­fé­lags; allt frá bil­unum í tölvu- og sam­skipta­kerfum til þurrka, upp­skeru­brests og hung­ursneyða, nú eða heims­far­aldra, oft­ast lítið með hefð­bundin vopn að gera. Auk þess sem víg­vellir hefð­bund­ins hern­aðar geta nú færst inn á inter­netið, þar sem í raun má gera árásir á ríki og sam­fé­lög.

[adspot]Var­huga­vert er þó að úti­loka ógnir sem þarfn­ast hefð­bund­ins hern­að­ar­legs við­bún­aðar. Þær eru enn til staðar, eða geta komið upp með stuttum fyr­ir­vara. Það sem gerir hinar nýju ógnir mögu­lega erf­ið­ari við­fangs er að þær eru óljósar, óhefð­bundnar og virða ekki landa­mæri. Miklu skiptir í viður­eign við slíkar ógnir að almenn­ingur missi ekki traust á þeim stoðum sam­fé­lags­ins sem eiga að veita vernd og tryggja það sem kalla mætti sam­fé­lags­ör­yggi eða almanna­ör­yggi. Þar eru almanna­varnir mik­il­vægar, að hver og einn bregð­ist sem rétt­ast við og sem mestur sam­hljómur náist um við­brögð, jafnt meðal yfir­valda sem og borg­ar­anna sjálfra.

Íslend­ingar hafa sýnt að þrátt fyrir smæð búum við yfir styrk þegar almanna­ör­yggi er ógnað á þennan hátt: sam­taka­mætti, félags­legri sam­heldni og trausti til stofn­ana og eru við­brögð við COVID-19 nær­tækt dæmi. Einnig mætti nefna ástandið sem skap­að­ist í kjöl­far fjár­mála­hruns­ins 2008 þar sem sann­ar­lega hrikti í stoðum sam­fé­lags­ins og fólk upp­lifði mikið óör­yggi, jafn­vel beinar ógnir. Gagn­stætt því sem halda mætti, þá sýndu mót­mælin í bús­á­halda­bylt­ing­unni, sem sumir myndu kalla óeirðir, einmitt styrk íslensks sam­fé­lags frekar en veik­leika. Það nægði að hrekja rík­is­stjórn­ina frá völdum því treysta mátti á að haldnar yrðu lýð­ræð­is­legar kosn­ingar að því loknu.

Þarna geta við­brögð yfir­valda og ekki síður sam­fé­lags­ins í heild skipt sköpum, því röng við­brögð geta farið að ógna sam­fé­lag­inu innan frá og verða í raun ógn í sjálfu sér. Fólk hættir að treysta yfir­völdum sem og sam­borg­urum sínum, virð­ing fyrir lögum og reglu þverr og óeirðir og átök geta brot­ist út. Því er ekki nóg að koma upp tækni­legum varn­ar­við­bún­aði því varn­irnar liggja einnig í sam­fé­lags­gerð­inni sjálfri, að fólk geti treyst við­brögðum þeirra sem bregð­ast eiga við, að þrátt fyrir ham­farir, kreppu og jafn­vel óeirðir og átök verði öryggi áfram tryggt og rétt­indi virt.

Aukinn viðbúnaður við nýjum ógnum

Það er því ljóst að ný nálgun á örygg­is­mál eru ekki bara fræði­legar vanga­veltur heldur kallar hún á mark­vissa stefnu­mótun, skýra umgjörð og aðgerðir. Íslensk stjórn­völd hafa vissu­lega tekið mark­verð skref í átt að víð­tæk­ari nálgun í örygg­is­málum og tekur þjóðar­ör­ygg­is­stefnan að ein­hverju leyti mið af hinum nýjum og breyttu ógnum. Þó hefur verið bent á að Ísland gæti gert meira í net­ör­ygg­is­málum sem sífellt verða viða­meiri og flókn­ari við­fangs.

Norð­ur­löndin hafa einnig haft uppi áætl­anir um umfangs­mikið sam­starf í öryggis- og varn­ar­málum og nýlega kom út skýrsla sem Björn Bjarna­son vann fyrir utan­rík­is­ráð­herra Norð­ur­land­anna, þar sem sam­fé­lags­legt öryggi er í for­grunni. Skýrslan var gerð í til­efni af því að 10 ár eru liðin frá því sam­bæri­leg skýrsla Thor­valds Stol­ten­berg kom út, en margt af því sem þar var lagt fram hefur komið til fram­kvæmda. Stefnu- og sam­starfs­yf­ir­lýs­ingar eru þó eitt en síðan er mik­il­vægt að tryggja sam­ræmda laga­lega umgjörð hvers ríkis fyrir sig, svo hægt sé að nýta þau úrræði sem til­tæk eru á sam­eig­in­legum vett­vangi.

Aðild að NATO ásamt varn­ar­samn­ingi við Banda­ríkin hefur þó lengst af verið þunga­miðjan í öryggis- og varn­ar­málum Íslands. Banda­lagið, sem byggt er á hern­að­ar­legum grunni með skýr grunn­gildi um frið, frelsi og lýð­ræði, hefur reynt að end­ur­skil­greina hlut­verk sitt með til­liti til aðstæðna síðan það var stofnað fyrir meira en 70 árum. Því fær sam­fé­lags­legt öryggi og varnir gegn netárásum og upp­lýs­inga­fölsun nú meira pláss á þeim vett­vangi en áður. Nú sem fyrr liggur mikið við að Ísland tali þar með skýrum hætti, því ýmsar blikur eru á lofti vegna for­ystu­hlut­verks Banda­ríkja­manna.

Aukin framlög til hermála

Frá lokum kalda stríðs­ins dróg­ust fram­lög ríkja til her­mála jafnt og þétt saman. Þetta hefur þó verið að breyt­ast því síð­ustu ár hefur verið tals­verður vöxtur í fram­lögum og árið 2019 var hann sá mesti milli ára síðan 2010. Það má að ein­hverju leyti má tengja við þá stöðu sem komin er upp með kóln­andi sam­skiptum á milli Banda­ríkj­anna og Rúss­lands, og þeirra fyrr­nefndu gagn­vart Kína. Banda­ríkja­menn draga þarna vagn­inn eins og við má búast, en þeir hafa lengi þrýst mjög á NATO-ríkin um að standa við tveggja pró­senta markið af lands­fram­leiðslu til her­mála, sem þau höfðu skuld­bundið sig til – og sum hver hafa reynt að upp­fylla á und­an­förnum árum.

[adspot]Auk Banda­ríkj­anna hafa t.d. Ung­verja­land, Pólland og Tyrkland aukið fram­lög sín til her­mála umtals­vert meira en almennt ger­ist. Mál­flutn­ingur leið­toga þess­ara ríkja og ann­arra á það að ein­hverju leyti sam­merkt að þar er haldið á lofti popúl­ískum skoð­unum; alþjóða­sam­starf er gert tor­tryggi­legt, varað er við að útlend­ingar séu ýmist hættu­legir eða grafi undan sam­fé­lag­inu, mann­rétt­indi eru skert í nafni þjóð­legra eða trú­ar­legra gilda, bein­línis er ýtt undir upp­lýs­inga­óreiðu og þrengt er að fjöl­miðlum og þeir gerðir ótrú­verð­ugir. Þessari þróun má stilla upp sem aft­ur­för frá þeim lýð­ræð­isum­bótum sem náðst hafa og eru í raun horn­steinn­inn að NATO-sam­starf­inu.

Þolir NATO annað kjörtímabil Trumps

Sá þrýst­ingur sem Banda­ríkja­menn hafa sett á banda­lags­ríkin til að auka fram­lag til hern­að­ar­legrar upp­bygg­ingar NATO kann að ein­hverju leyti að vera rétt­mætur. Hins vegar ættu þau Evr­ópu­ríki sem vilja verja frjáls lýð­ræð­is­sam­fé­lög álf­unnar að spyrna við fótum ef Banda­ríkin ætla fylgja stefnu for­set­ans, að gera stór­velda­stjórn­mál og vopna­kapp­hlaup að for­gangs­máli. Þar er rétt­mæt spurn­ing hvort NATO, sem hefur haft að leið­ar­ljósi að tryggja stöð­ug­leika og verja lýð­ræði og frelsi, eigi að vera undir for­ystu ríkis hvers for­seti gerir sér far um að grafa undan alþjóða­sam­starfi og upp­hefja ein­ræð­is­herra.

Ætli NATO að takast að við­halda hlut­verki sínu sem öryggis- og varn­ar­banda­lag í Evrópu á trú­verð­ugan hátt, þar sem raun­veru­lega eru tekin skref í átt­ina að því að fást við hinar nýju ógnir, gæti því þurft að end­ur­skoða for­ystu­hlut­verk Banda­ríkja­manna. Þarna geta úrslit í kom­andi for­seta­kosn­ingum í Banda­ríkj­unum skipt miklu því nái Donald Trump end­ur­kjöri gæti það þýtt var­an­legar breyt­ingar á heims­mynd­inni. End­ur­kjör hans þýðir ekki bara fjögur ár til við­bótar fyrir hann og hans stefnu, heldur öðl­ast mál­staður hans og yfir­lýs­ingar, sem hingað til hafa um margt gengið þvert á ríkj­andi hefðir í banda­rískri utan­rík­is­stefnu, ákveðið lög­mæti. Fátt fær hann þá stöðvað.

Heim­ur­inn stendur frammi fyrir ýmsum sam­eig­in­legum ógnum sem ekki virða landa­mæri. Í því sam­hengi má líta til Banda­ríkj­anna og hversu illa hefur tek­ist þar til með að tryggja almanna­ör­yggi í bar­átt­unni við COVID-19. Þar er ljóst að öfl­ug­ustu her­varnir heims duga ákaf­lega skammt – að Banda­ríkin sem eyða jafn miklu og öll ríki heims­ins sam­an­lagt til her­mála standa van­máttug og sundruð í bar­átt­unni við veiruna.

Oft er spurt hvert fram­lag hins her­lausa smá­ríkis Íslands geti verið í alþjóð­legu örygg­is­mála­sam­starfi, sér­stak­lega til varn­ar­banda­lags eins og NATO. Þarna gæti einmitt verið gott tæki­færi til að sýna í raun hvernig rétt við­brögð, félags­leg sam­heldni og vel skipu­lagðar almanna­varnir í sam­fé­lagi sem upp­hefur lýð­ræði, geta skipt mun meira máli en öfl­ugur her, þegar hinar nýju ógnir kveða dyra og almanna­ör­yggi er ann­ars vegar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár