Ríkissjóður sparaði 1,1 milljarð vegna færri ferðalaga

Útgjöld rík­is­sjóðs vegna ferða­laga dróg­ust saman um 55 pró­sent á fyrstu sex mán­uðum árs­ins, en lækk­un­ina má rekja til færri ferða­laga vegna heims­far­ald­urs­ins.

Hið opinbera hefur ferðast lítið á síðustu mánuðum vegna kórónuveirunnar.
Hið opin­bera hefur ferð­ast lítið á síð­ustu mán­uðum vegna kór­ónu­veirunnar.

Ferða­kostn­aður rík­is­sjóðs lækk­aði á fyrstu sex mán­uðum árs­ins um 1,1 millj­arða króna, úr tveimur millj­örðum króna í 900 millj­ónir króna. Lækkunin nemur 55 pró­sentum, en hana má rekja til heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru. Þetta kemur fram í nýrri til­kynn­ingu fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins.

Fréttin hefur verið upp­færð þar sem í fyrstu til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins sagði að ferða­kostn­að­ur­inn hefði lækkað mun meira, um 2,7 millj­arða úr 6,7 millj­örðum. Mistök urðu við vinnslu gagna í fyrri útgáfu, segir ráðu­neytið.

Samkvæmt upp­færðri til­kynn­ingu inni­heldur ferða­kostn­að­ur­inn ferða­lög og uppi­hald á ferða­lögum, jafnt á Íslandi sem og erlendis, hjá öllum ráðu­neytum og und­ir­stofn­unum þeirra. Til und­ir­stofn­ana heyra háskólar, sjúkra­hús, heil­brigð­is­stofn­anir, auk sýslu­manns- og lög­reglu­stjóra­emb­ætti.

Í Stjórn­ar­ráð­inu lækk­aði ferða­kostn­að­ur­inn um 64 pró­sent á tíma­bil­inu. Ferða­kostn­aður ráðu­neyt­anna dróst saman um 100 millj­ónir króna, úr 160 millj­ónum árið árið 2019 niður í 60 millj­ónir á þessu ári.

Mesta hlut­falls­lækkun ferða­kostn­aðar er í sam­göngu og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­inu þar sem hann lækk­aði um 81 pró­sent en minnsta lækkun kostn­að­ar­ins var í mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu þar sem ferða­kostn­aður lækk­aði um 25 pró­sent á milli ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ríkissjóður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár