Áfangastaðir innanlands grænka

Nátt­úruperlur Íslands fá ekki frí í sumar þótt erlendum ferða­mönnum hafi snar­fækkað. Helstu ferða­manna­staðir innan frið­lýstra svæða eru þó mun betur í stakk búnir til að taka við ágangi en áður vegna upp­bygg­ingar und­an­far­inna ára.

Foss ofan við Skógafoss þar sem gönguleiðin yfir Fimmvörðuháls hefst. Á síðasta ári þurfti að loka hluta af Skógaheiði ofan við Skógafoss vegna ágangs um svæðið.
Foss ofan við Skóga­foss þar sem göngu­leiðin yfir Fimm­vörðu­háls hefst. Á síð­asta ári þurfti að loka hluta af Skóga­heiði ofan við Skóga­foss vegna ágangs um svæðið. Mynd: Eyrún Magnúsdóttir

Árið 2016 voru sex ferða­manna­staðir innan frið­lýstra svæða á rauðum lista Umhverf­is­stofn­unar, sem þýðir að þeir voru í veru­legri hættu hvað varðar vernd­ar­gildi vegna ágangs, en á árinu 2019 voru aðeins tveir staðir á rauða list­anum. Aðrir höfðu náð að kom­ast af list­anum vegna þess að áhersla var lögð á upp­bygg­ingu þeirra og verndun. Þá hefur fjölgað á sér­stökum grænum lista en sá listi geymir þá ferða­manna­staði sem stand­ast vel álag og hafa sumir verið byggðir sér­stak­lega upp til að taka við miklum fjölda gesta.

Íslend­ingar ferð­ast meira um landið nú en fyrri ár, enda færri á leið til útlanda en vana­lega. Und­an­farin ár hefur mikið verið fjallað um ágang á ferða­manna­stöðum og áhyggjur verið viðr­aðar af því að dýr­mætar perlur nátt­úr­unnar verði fótum troðnar vegna mann­mergðar. En einmitt vegna mik­illar ásóknar ferða­manna hefur verið ráð­ist í upp­bygg­ingu inn­viða á mörgum af helstu ferða­manna­stöðum innan frið­lýstra svæða. Umhverf­is­stofnun hvetur lands­menn raunar alveg sér­stak­lega til þess að ferð­ast um frið­lýst svæði.

Skógafoss ekki lengur í hættu

Ástand frið­lýstra svæða, sem geyma helstu nátt­úruperlur lands­ins og fjöl­sótta sem fáfarna ferða­manna­staði, er metið reglu­lega af Umhverf­is­stofnun. Sé áfanga­staður eða svæði talið í sér­stakri hættu er það sett á rauðan lista svo hægt sé að „for­gangs­raða kröftum og fjár­munum til vernd­unar,” eins og segir í nýj­ustu skýrslu stofn­un­ar­innar um ástands­mat ferða­manna­staða innan frið­lýstra svæða. Rauði list­inn er nú gef­inn út árlega, en var áður gef­inn út annað hvert ár. App­el­sínu­gulur listi er næsta stig fyrir ofan, þá er aðeins hluti svæðis tal­inn í hættu.

Á árunum 2012-2016 röt­uðu vin­sælar perlur eins og Skóga­foss, Friðland að Fjalla­baki og Geysir á áður­nefndan rauðan lista og voru þannig talin „svæði í hættu.” Þessi svæði hafa þó öll náð að kom­ast af rauða list­anum sam­hliða auk­inni upp­bygg­ingu inn­viða.

Alls eru 106 áfanga­staðir ferða­manna innan frið­lýstra svæða metnir í ástands­skýrsl­unni. Af þeim eru tveir staðir sem rata á rauða list­ann miðað við stöðu mála 2019 og eru þannig metnir sem áfanga­staðir í hættu: Detti­foss (að aust­an­verðu) og Rauðu­fossar innan Friðlands að Fjalla­baki.

Friðlýst svæði eða áfanga­staðir innan þeirra sem talið er að geti tapað vernd­ar­gildi sínu verði ekki gripið til aðgerða fara á app­el­sínugulan lista. Göngu­leiðin vin­sæla Lauga­veg­ur­inn var til að mynda á app­el­sínu­gulum lista árið 2018 og einnig Skóga­heiði við Skóga­foss, sem er upp­haf göngu­leið­ar­innar um Fimm­vörðu­háls, en báðar leið­irnar eru komnar af þeim lista í nýj­ustu skýrsl­unni sem miðar við stöðu mála 2019.

Fleiri rata á grænan lista

Tekinn var upp sér­stakur grænn listi fyrir ferða­manna­staði innan frið­lýstra svæða árið 2018 og hefur fjölgað á honum milli ára. Á árinu 2018 röt­uðu 23 staðir á list­ann en þeim fjölgar í 34 á árinu 2019. Grænir áfanga­staðir telj­ast þeir sem taldir eru stand­ast vel það álag sem er á þeim. Bæði er þar að finna staði sem hafa sér­stak­lega verið byggðir upp til að geta tekið á móti miklum fjölda gesta, eins og til að mynda Dynjandi og áfanga­staðir innan Þjóð­garðs­ins Snæ­fells­jök­uls en einnig fáfarn­ari slóðir svo sem Veiði­leysu­fjörð á Horn­ströndum.

Meðal nýrra staða á græna list­anum árið 2019 eru Önd­verð­ar­nes innan Þjóð­garðs­ins Snæ­fells­jök­uls, Þrí­hnúka­gígar, Hraun­fossar og Arn­ar­stapi. Aðrir staðir sem ná á græna list­ann bæði 2018 og einnig 2019 eru Dynjandi, Dimmu­borgir, Grábrók, Búða­hraun og Húsafell svo eitt­hvað sé nefnt.

Ferðamenn eigi stefnumót við náttúruna

For­stjóri Umhverf­is­stofn­unar hvetur þá sem eru á ferð um landið til að heim­sækja frið­lýst svæði. „Það var full þörf á því að byggja upp inn­við­ina og við erum klár­lega að njóta þess núna að gert hefur verið átak í þessum efnum und­an­farin ár,” segir Sigrún Ágústs­dóttir for­stjóri stofn­un­ar­innar.

Hún bendir á að stofn­unin hafi ekki þurft að loka neinu svæði í ár á grund­velli laga um nátt­úru­vernd eins og gerst hafi síð­ustu ár. Í fyrra þurfti til að mynda að loka Fjaðrár­gljúfri tíma­bundið og einnig Skóga­heiði ofan við Skóga­foss. Engar lok­anir nú segir hún að séu ekki aðeins vegna færri ferða­manna heldur vegna þess að ferða­manna­stað­irnir séu ein­fald­lega betur í stakk búnir til að taka við fólki en áður vegna sterk­ari inn­viða.

„Almennt þá er aðstaðan til að taka við mik­illi umferð fólks um frið­lýst svæði orðin miklu betri. Það er líka skemmti­legt að sjá hvað ferða­þjón­ustan víða um land hefur gert mikið, þetta spilar mjög vel saman. Nú er hægt að njóta þess að skoða nátt­úruperlu og fara svo líka á ein­hvern góðan veit­inga­stað í nágrenn­inu til dæmis, það er víða svo margt í boði. Ég held að Íslend­ingar séu að fá mjög gott frí á Íslandi í sumar, í boði nátt­úr­unnar.”

Stefnu­mót við nátt­úr­una er nafn á fræðslu- og kynn­ing­ar­átaki sem Umhverfi­stofnun hefur blásið til í því skyni að hvetja fólk til að sækja nátt­úruperlur innan frið­lýstra svæða heim. „Við viljum með því benda Íslend­ingum sér­stak­lega á þessa staði sem við höfum verið að vinna hörðum höndum á til að byggja upp inn­við­ina,” segir Sigrún. Umræddir inn­viðir vísa bæði til upp­bygg­ingar á borð við betri göngu­stíga og bættra merk­inga en einnig auk­innar land­vörslu og fræðslu.

Víða er nú hægt að fara í göngu­ferðir undir leið­sögn land­varða á frið­lýstum svæðum og hafa þær að sögn Sigrúnar hafa hlotið góðar við­tökur. Hægt er að fá upp­lýs­ingar um fræðslu­göng­urnar undir aðgang­inum Nátt­úru­vernd­ar­svæði á Facebook og einnig heldur Umhverf­is­stofnun úti Instagram-reikn­ingi undir sama nafni í því skyni að upp­lýsa almenn­ing betur um frið­lýst svæði á borð við Friðland að Fjalla­baki, Þjóð­garð­inn Snæ­fells­jökul og fleiri og fleiri, og þau undur sem þessi stór­brotnu svæði hafa upp á að bjóða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár