Ekki fást upplýsingar um sóttvarnaráðstafanir frá umboðsaðila Boreal

Fyrsta far­þega­skip sum­ars­ins heldur frá Reykja­vík­ur­höfn á morgun. Starfs­fólk skipa­fé­lags tjáir sig ekki um sótt­varna­ráð­staf­anir sem gerðar hafa verið vegna far­þega sem hyggj­ast sigla, en þeir koma með flugi frá París á morgun.

Farþegaskipið Boreal heldur frá Reykjavíkurhöfn á morgun. Það tekur um 200 farþega en í fyrstu siglingunni verða á bilinu 50 til 60 farþegar sem allir koma með flugi frá París á morgun.
Far­þega­skipið Boreal heldur frá Reykja­vík­ur­höfn á morgun. Það tekur um 200 far­þega en í fyrstu sigl­ing­unni verða á bil­inu 50 til 60 far­þegar sem allir koma með flugi frá París á morgun. Mynd: Faxaflóahafnir

For­svars­menn Gáru skipa­fé­lags neita að tjá sig um þær sótt­varna­ráð­staf­anir sem gerðar hafa verið vegna komu fólks sem hyggst sigla með far­þega­skip­inu Boreal. Félagið er umboðs­að­ili Boreal hér á landi. Farþegar sem ætla að sigla með skip­inu koma með leiguflugi frá París á morgun.

Samkvæmt frétt á vef Faxa­flóa­hafna munu allir far­þegar fara í skimun á Kefla­vík­ur­flug­velli. Þaðan verða far­þeg­arnir svo fluttir með rútum, um það bil tíu til fimmtán í hverri rútu niður á Miðbakka í Reykja­vík. Þegar nei­kvæð nið­ur­staða skimunar er komin má fólk svo fara um borð í skipið. Í frétt­inni segir einnig að við komu skip­anna verði að öllu leyti farið eftir fyr­ir­mælum frá land­lækni og Almanna­vörnum og að engar und­an­tekn­ingar verði gerðar.

Ábyrgð Faxaflóahafna snýr að skipinu, ekki fólkinu

Inntur eftir því hvaða aðstaða bíði far­þeg­anna á Miðbakka sagði Gísli Hallsson, yfir­hafn­sögu­maður hjá Faxa­flóa­höfnum, í sam­tali við Kjarnann að það væri aðal­lega ferða­skipu­leggj­endur sem sæju um mót­töku fólks­ins. Hlutverk Faxa­flóa­hafna væri bara að taka á móti skip­inu sem slíku, sjá um hafn­sögu og að binda það við bryggju.

Gísli benti þó á að á Miðbakka væru gáma­hús þar sem fólkið gæti dvalið á meðan það biði eftir því að fá að ganga um borð. Þar gætu á venju­legum degi verið um 60 til 80 manns. En spurður að því hvort að hann hefði fengið ein­hverjar upp­lýs­ingar um hvernig komu fólks­ins yrði háttað sagði Gísli að örygg­is­full­trú­inn væri með það allt á hreinu.

Að öðru leyti vís­aði hann á Gáru skipa­fé­lag sem sér um öll mál­efni Boreal hér á landi og ber ábyrgð á fólk­inu milli flug­stöðvar og skips.

Starfsmenn Gáru of uppteknir til að svara spurningum um ráðstafanir

Spurður að því hvaða sótt­varna­ráð­staf­anir fyr­ir­tækið hefði ráð­ist í sagði Jón Auðun Auð­un­ar­son hjá Gáru að hann hefði ekki heim­ild til þess að tala um það og vís­aði á mark­aðs­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins sem væri að vísu í fríi í Þórsmörk. Í ljósi þess að tveir dagar væru í komu far­þeg­anna þegar sím­talið átti sér stað spurði blaða­maður hvort að hann gæti tjáð sig eitt­hvað um plön fyr­ir­tæk­is­ins er varða komu far­þeg­anna. „Það er bara nóg að gera hjá okkur og ég verð bara að hætta að tala núna. Þakka þér fyrir,“ svar­aði Jón Auðun og skellti svo á.

Mark­aðs­stjóri Gáru átti að vera til við­tals í morgun, föstu­dag, og því var önnur til­raun gerð til að kom­ast að því hvaða ráð­staf­anir fyr­ir­tækið hefði gert vegna komu far­þeg­anna. Blaða­maður fékk sam­band við Jóhann Bogason, fram­kvæmda­stjóra Gáru, sem sagð­ist ekki hafa tíma til að tjá sig um málið. „Kannski get ég látið hringja í þig seinni part­inn, ekki fyrr,“ og þar með lauk sím­tal­inu.

Á von á um 60 farþegum

Þar sem ekki feng­ust upp­lýs­ingar um sótt­varna­ráð­staf­anir hjá Gáru leit­aði Kjarninn til Emmu Kjart­ans­dóttur hjá ferða­skrif­stof­unni Iceland Travel sem sér um að koma far­þeg­unum frá Kefla­vík­ur­flug­velli niður á Miðbakka.

Hún sagði að von væri á um 60 ein­stak­lingum með leiguflugi frá París. Eins og áður segir fara far­þeg­arnir í skimun á Kefla­vík­ur­flug­velli og svo er þeim skutlað þaðan með rútu niður á Miðbakka. „Svo hinkra þau þar, þangað til að þau eru komin með nið­ur­stöðu úr test­inu. Það á að ganga frekar hratt fyrir sig, þau eru svo fá. Það er tekið sýni úr allri vél­inni og send. Og svo fara þau bara um borð í skipið og sigla til Græn­lands.“

Emma sagði að fín aðstaða væri á Miðbakka til að taka á móti þessu fólki. Fólk gæti beðið þar en því væri auk þess heim­ilt að ganga um ef það héldi tveggja metra fjar­lægð.

„Þau fá bara allar upp­lýs­ingar í skimun um hvaða reglur gilda meðan þú ert að bíða eftir nið­ur­stöðu. Það er að halda fjar­lægð og þau mega ekk­ert vera innan um fólk sko, þau mega ekk­ert vera nálægt ein­hverju fólki. En þetta er bara eins og við í sótt­kví, þá máttu fara í göngutúr, þú þarft bara að halda fjar­lægð. Og við erum að tala um ein­hverja tvo til þrjá tíma um miðjan dag,“ sagði Emma.

Allt gert til þess að halda farþegunum frá öðru fólki

Hún benti auk þess á að mikið væri gert til þess að tryggja að far­þegar skips­ins umgengjust ekki annað fólk. „Þau eru nátt­úr­lega að fara í viku­sigl­ingu þannig að þau er miklu hrædd­ari við að fá smit heldur en eitt­hvað annað, þannig að það er eng­inn að taka neina sénsa. Það er verið að halda þeim til hliðar á flug­vell­inum og í þessu leiguflugi og allt. Það er allt gert til þess að halda því frá öðru fólki því það má ekki koma upp smit um borð í þessu skipi.“

Í þeim upp­lýs­ingum sem ferða­mönnum eru gefnar við kom­una til lands­ins kemur fram að fólk geti vænst nið­ur­stöðu úr skimun sam­dæg­urs hafi fólk farið í skimun fyrripart dags. Þá eru ferða­menn beðnir um að halda beint á dval­ar­stað sinn meðan beðið er eftir nið­ur­stöðu og tak­marka sam­neyti við annað fólk eins mikið og hægt er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár