Stuðningur við ríkisstjórnina dregst saman

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir mæl­ast sam­an­lagt með 6,7 pró­sentu­stigum minna fylgi en í síð­ustu kosn­ingum og myndu ekki fá meiri­hluta atkvæða ef kosið yrði í dag. Þrír flokkar í stjórn­ar­and­stöðu mæl­ast yfir kjör­fylgi en tveir undir.

Stuðningur við ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur tók kipp upp á við eftir að COVID-19 faraldurinn skall á Ísland .Hann hefur hins vegar dalað á ný í síðustu könnunum.
Stuðn­ingur við rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur tók kipp upp á við eftir að COVID-19 far­ald­ur­inn skall á Ísland .Hann hefur hins vegar dalað á ný í síð­ustu könn­unum. Mynd: Bára Huld Beck

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur lækkar um þrjú pró­sentu­stig milli kann­anna Gallup og mælist nú 56,8 pró­sent. Hann mæld­ist 61,3 pró­sent í könnun fyr­ir­tæk­is­ins sem gerð var í apríl, þegar aðgerðir vegna COVID-19 far­ald­urs­ins stóðu sem hæst, og hafði þá ekki mælst svo hár frá því að hveiti­brauðs­dögum rík­is­stjórn­ar­innar lauk, eða í febr­úar 2018.

Litlar breyt­ingar eru á fylgi ein­stakra flokka milli kann­ana Gallup. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er sem fyrr stærsti flokkur lands­ins með 24 pró­sent fylgi. Hann mælist því enn undir kjör­fylgi, en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk 25,3 pró­sent þegar talið var upp úr kjör­köss­unum haustið 2017.

Hinir rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir, Vinstri græn og Fram­sókn­ar­flokkur, eru líka tölu­vert undir kjör­fylgi. Vinstri græn myndu fá 13,6 pró­sent ef kosið yrði í dag, um fimmt­ungi minna fylgi en í síð­ustu kosn­ingum, og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með stuðn­ing 8,6 pró­sent lands­manna, sem yrði það lægsta sem flokk­ur­inn hefur nokkru sinni fengið ef um væri að ræða nið­ur­stöðu kosn­inga.

[adspot]Sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja er 46,2 pró­sent eða 6,7 pró­sentu­stigum minna en þeir fengu saman haustið 2017.

Þrír andstöðuflokkar yfir kjörfylgi

Sam­fylk­ingin yrði næst stærsti flokkur lands­ins ef kosið yrði í dag með 14,9 pró­sent fylgi, sem er mjög sam­bæri­legt og flokk­ur­inn hefur verið að mæl­ast með í und­an­förnum könn­unum Gallup.

Píratar mæl­ast með 10,7 pró­sent fylgi og Viðreisn með 10,5 pró­sent. Allir þessir þrír flokkar myndu fá meira upp úr kjör­köss­unum ef kosið yrði nú en í októ­ber­lok 2017. Þá fengu þeir 28 pró­sent atkvæða sam­an­lagt en nú mæl­ast þeir með 36,1 pró­sent stuðn­ing og hafa bætt við sig 8,1 pró­sentu­stigi.

Mið­flokk­ur­inn er ekki langt frá kjör­fylgi sínu – hann fékk 10,9 pró­sent atkvæða 2017 – um þessar mundir en 10,2 pró­sent lands­manna segj­ast styðja flokk­inn.

Flokkur fólks­ins virð­ist þó ólík­legur til að ná inn á þing eins og sakir standa því að hann mælist með ein­ungis 3,6 pró­sent fylgi. Það er minna en Sós­í­alista­flokkur Íslands, sem nýtur stuðn­ings 3,8 pró­sent lands­manna.

Alls nefndu tæp 80 pró­sent aðspurðra í könn­un­inni flokk sem þeir myndu kjósa. Um tíu pró­sent sögð­ust ætla að skila auða eða ekki kjósa og önnur tíu pró­sent tóku ekki afstöðu eða neit­uðu að svara.

Könnunin var net­könnun sem Gallup gerði dag­ana 2. til 30. júní 2020. Heild­ar­úr­taks­stærð var 10.274 og þátt­töku­hlut­fall var 51,7 pró­sent. Ein­stak­lingar í úrtaki voru handa­hófs­valdir úr Við­horfa­hópi Gallup.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár