Kóralrifið mikla heldur áfram að fölna

Fölnun Kór­al­rifs­ins mikla í mars síð­ast­liðnum er sú umfangs­mesta hingað til. Febrúar síð­ast­lið­inn var heit­asti mán­uður á svæð­inu síðan mæl­ingar hófust.

Kóralrifið mikla hefur fölnað mikið á undanförnum árum.
Kór­al­rifið mikla hefur fölnað mikið á und­an­förnum árum. Mynd: EPA

Kór­al­rifið mikla undan ströndum Queensland fylkis í Ástralíu hefur aldrei glímt við jafn umfangs­mikla fölnun (e. bleaching) líkt og í mars síð­ast­liðnum.Samkvæmt frétt Reuters ótt­ast vís­inda­menn að bati rifs­ins verði sífellt minni í hvert skipti sem slík fölnun á sér stað. Þetta er í þriðja sinn á síð­ustu fimm árum sem umfangs­mikil fölnun herjar á rifið.

Hækkandi sjáv­ar­hiti er talin vera helsta ástæðan fyrir fölnun kór­alla. Samkvæmt svari á vís­inda­vefnum orsakast föln­unin af streitu­á­standi sem kemur til vegna hita­stigs­breyt­inga. Þetta streitu­á­stand „leiðir til þess að sam­býli (e. symbiotic) kór­als og ljóstil­líf­andi þör­unga (Zooxanthellae), sem sjá honum fyrir orku til vaxtar og við­heldur lit hans, rofnar. Þegar þetta sam­band rofnar og kór­all­arnir deyja hefur það gríð­ar­mikil áhrif á aðrar líf­verur því kór­al­rifin eru búsvæði og upp­eld­is­stöðvar fjölda teg­unda,“ segir í svari vís­inda­vefs­ins.

Nýliðinn febr­úar var sá heit­asti á svæð­inu síðan mæl­ingar hófust árið 1900. Í frétt Reuters er haft eftir Terry Hughes, yfir­manni kór­al­rann­sókna við James Cook háskóla, að heitt hafi verið á rif­inu endi­löngu. Hvorki hafi verið sval­ara í norðri né suðri líkt og stundum tíðkast.

„Svo heitt var á rif­inu að föln­unin í ár er sú umfangs­mesta hingað til,“ segir Terry. Hann er nán­ast full­viss um að rifið muni ekki geta end­ur­heimt sinn fyrri styrk og hann hefur áhyggjur af því að rifið muni á end­anum logn­ast út af ef horfur í hnatt­rænni hlýnun breyt­ast ekki.

Kór­al­rifið mikla hefur verið á heimsminja­skrá UNESCO síðan árið 1981. Rifið nær yfir svæði sem er alls 348 þús­und fer­kíló­metrar að stærð en til sam­an­burðar er flat­ar­mál Íslands 103 þús­und fer­kíló­metrar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár