„Óheppileg eldgos“ auka bráðnun jöklanna

Það voru ekki aðeins hlý­indin og sól­ríkjan sem hafði áhrif á mikla rýrnun íslensku jöklanna á síð­asta ári. Eldgos síð­ustu ára áttu þar einnig þátt að sögn Einars Svein­björns­sonar veð­ur­fræð­ings.

Flugsýn af tungu Skálafellsjökuls 1989 og 2019. Myndirnar byggja á ljósmyndum sem teknar voru úr flugvél 1989 og flygildi 2019 og landlíkönum sem reiknuð voru á grundvelli myndanna og sýna vel lækkun yfirborðs jökulsins á 30 ára tímabili.
Flugsýn af tungu Skála­fells­jök­uls 1989 og 2019. Mynd­irnar byggja á ljós­myndum sem teknar voru úr flug­vél 1989 og flygildi 2019 og land­lík­önum sem reiknuð voru á grund­velli mynd­anna og sýna vel lækkun yfir­borðs jök­uls­ins á 30 ára tíma­bili.

Fleira en hlý­indi skýra rýrnun jöklanna á Íslandi síð­asta sumar. „Vissu­lega er það svo að hlý­inda­skeiðið allt frá alda­mótum tekur sinn toll af jök­ul­ísnum og skiptir tíðin eitt ár til eða frá litlu,“ segir Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur og rit­stjóri Bliku.is. Rýrnun jökla á síð­asta ári var ein sú mesta sem mælst hefur. Í frétta­bréfi verk­efn­is­ins Hörfandi jökla, sem birt var í gær, er rýrn­unin m.a. rakin til þess að sum­arið 2019 var víð­ast hlýtt og sól­ríkt.

Í færslu sem Einar skrifar á Facebook í morgun bendir hann á að síð­asta sumar hafi vissu­lega verið með þeim hlýrri en langt í frá það hlýjasta síð­asta ára­tug­inn eða svo. Hann segir að óheppi­leg eld­gos með til­liti til jök­ul­bráðar, Eyja­fjalla­jök­uls­gosið og Grím­s­vatna­gosið árið eftir hafi skilað þunnu lagi gjósku yfir flest íshvelin á hálend­inu „Til dæmis var Tind­fjalla­jök­ull mógulur á eftir og er að nokkru leiti enn,“ skrifar Einar. „Dregur það úr end­ur­kasti sólar og eykur á sum­ar­bráðnun.“

[adspot]

Einar bendir einnig á að síð­asta vor hafi að mörgu leyti verið óvenju­legt. Apr­íl­mán­uður var með afbrigðum hlýr og tók upp vetr­ar­snjó af hálend­inu mun fyrr en í með­al­ári. Í kjöl­farið þorn­aði í maí sem var heldur sval­ari og sól­ríkur.

[links]„En það sem meira máli skipti var að þurr vindur af austri og suð­austri var algengur í bland við norð­an­átt,“ skrifar Einar. „Í byggðum suð­vestan- og sunn­an­lands sáust ryk­mekkir af þurrum sand­svæðum aftur og aftur og svo kvað að þessum fína leir í loft­inu að suma dag­ana dró stór­lega úr skyggni. Barst ófögn­uð­ur­inn inn í híbýli fólks. Upp­taka­svæðin voru nokkur og breyti­leg, en mjög kom af fín­efni úr Eld­hrauni enda hafði verið með stærstu Skaft­ár­hlaupum sum­arið áður.“

Einar segir að svifryks­mæl­ingar í Kópavogi styðji þetta en þar urðu nokkuð margir toppar af gróf­ara ryki, einkum um miðjan maí. „Í öllum til­vikum sandur og leir langt að kom­inn.“

Í lok júní í fyrra mátti sjá á tungl­myndum hvernig „grá­gul slikja hafði lagst yfir jök­ul­hvelin sum, sem ann­ars sýn­ast mjalla­hvít fyrir meg­in­leys­ing­una á hájöklunum, sem oft­ast hefst í byrjun júlí og stendur fram í sept­em­ber,“ skrifar Einar.

Óhrein­indin í yfir­borði jöklanna drekka í sig geisla sólar og auka mjög á bráðnun, að mestu óháð hit­anum, segir Einar. „Það sem meira er að á meðan bræðslu­vatnið sígur niður hald­ast fín­efnin í yfir­borð­inu, eða allt þar til fyrsti snjór að hausti þekur jökul­inn að nýju. Þau koma síðan aftur í ljós í mis­miklum mæli þó í leys­ingum næstu ára.“

Í frétta­bréfi verk­efn­is­ins Hörfandi jöklar kemur fram að flat­ar­mál íslenskra jökla hefur minnkað um 800 fer­kíló­metra síðan árið 2000. Frá lokum 19. aldar, þegar jöklar á Íslandi náðu mestu útbreiðslu síðan land byggð­ist, hafa þeir rýrnað um tæp­lega 2.200 fer­kíló­metra, sem er rúm­lega tvö­föld stærð Reykja­nesskag­ans. Jöklar á Íslandi hafa hopað hratt í um ald­ar­fjórð­ung og er rýrnun þeirra ein­hver helsta afleið­ing og skýr­asti vitn­is­burður hlýn­andi lofts­lags hér­lendis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

jöklar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár