Rýrnun íslensku jöklanna jafnast á við tvöfalda stærð Reykjanesskagans

Flat­ar­mál íslenskra jökla hefur minnkað um 800 fer­kíló­metra síðan árið 2000 og tæp­lega 2.200 fer­kíló­metra frá lokum 19. aldar þegar jökl­arnir náðu mestu útbreiðslu síðan land byggð­ist. Samhliða bráðnun fylgir land­ris og hefur hraði þess auk­ist síð­ustu ár.

Flugsýn af tungu Skálafellsjökuls 1989 og 2019. Myndirnar byggja á ljósmyndum sem teknar voru úr flugvél 1989 og flygildi 2019 og landlíkönum sem reiknuð voru á grundvelli myndanna og sýna vel lækkun yfirborðs jökulsins á 30 ára tímabili.
Flugsýn af tungu Skála­fells­jök­uls 1989 og 2019. Mynd­irnar byggja á ljós­myndum sem teknar voru úr flug­vél 1989 og flygildi 2019 og land­lík­önum sem reiknuð voru á grund­velli mynd­anna og sýna vel lækkun yfir­borðs jök­uls­ins á 30 ára tíma­bili.

Sumarið 2019 var víð­ast hlýtt og sól­ríkt og var rýrnun jökla á Íslandi á síð­asta ári ein sú mesta sem mælst hefur. Flat­ar­mál íslenskra jökla hefur minnkað um 800 fer­kíló­metra síðan árið 2000. Frá lokum 19. aldar, þegar jöklar á Íslandi náðu mestu útbreiðslu síðan land byggð­ist, hafa þeir rýrnað um tæp­lega 2.200 fer­kíló­metra, sem er rúm­lega tvö­föld stærð Reykja­nesskag­ans. Jöklar á Íslandi hafa hopað hratt í um ald­ar­fjórð­ung og er rýrnun þeirra ein­hver helsta afleið­ing og skýr­asti vitn­is­burður hlýn­andi lofts­lags hér­lendis.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýju frétta­bréfi á vegum verk­efn­is­ins Hörfandi jöklar. Verk­efnið er sam­vinnu­verk­efni Veð­ur­stofu Íslands og Vatna­jök­uls­þjóð­garðs, fjár­magnað af umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­inu, og unnið í sam­vinnu við Jöklahóp Jarð­vís­inda­stofn­unar Háskól­ans og Nátt­úru­stofu Suð­aust­ur­lands.

[adspot]

Síðustu árin hefur heild­ar­flat­ar­mál jökla minnkað um um það bil 40 km2 árlega að með­al­tali. Á árinu 2019 hop­uðu jök­ul­sporðar víða um tugi metra. Af þeim jöklum sem mældir eru af sjálf­boða­liðum Jökla­rann­sókna­fé­lags Íslands hop­uðu Haga­fells­jök­ull eystri í Langjökli og Síðu­jök­ull og Tungnár­jök­ull í Vatna­jökli mest, eða um 150 metra. Hraðast hörfar Breiða­merk­ur­jök­ull þar sem kelfir af honum í Jök­ulsár­lón, milli 150 og 400 metra árið 2019.

[links]Jök­ulsár­lón byrj­aði að mynd­ast um 1935. Það er nú ásamt Breið­ár­lóni og nokkrum öðrum minni lónum við jaðar Breiða­merk­ur­jök­uls yfir 30 km2 að flat­ar­máli. Síðustu árin hafa lónin sam­tals stækkað um 0.5–1 km2 árlega að með­al­tali. Breiða­merk­ur­jök­ull hörfar og þynn­ist bæði vegna yfir­borðs­leys­ingar í hlýn­andi lofts­lagi og kelf­ingar (ís brotnar af sporð­inum út í vatn eða sjó) í Jök­ulsár­lón.

Massatap jöklanna veldur hröðu land­risi vegna þess hve seigja mött­ulefn­is­ins undir Íslandi er lítil. Við Höfn í Horna­firði er land­ris nú um 10–15 mm á ári og hefur hraði þess tekið tals­verðum breyt­ingum á und­an­förnum tveimur ára­tugum.

Land rís enn hraðar við vest­ur­jaðar Vatna­jök­uls þar sem ris­hrað­inn mælist allt að 40 mm á ári. „Þegar jöklar þynn­ast og hörfa minnkar fargið á jarð­skorpuna og landið rís,“ segir Tómas Jóhann­es­son, fag­stjóri á sviði jökla­fræði á Veð­ur­stofu Íslands. „Þetta er nokkuð afger­andi hér á Íslandi þar sem jarð­skorpan og efri hluti mött­uls­ins undir land­inu eru mjög kvik. Landris er mest næst jökul­j­aðr­inum og á jök­ul­skerjum en minna þegar fjær dregur. Því rís land enn hraðar við vest­ur­jaðar Vatna­jök­uls.“

Afkoman neikvæð með einni undantekningu

Afkoma stærstu íslensku jöklanna hefur verið nei­kvæð síðan 1995 með einni und­an­tekn­ingu, afkoma árs­ins 2015 var jákvæð í fyrsta sinn í 20 ár. Sumarið 2019 var mjög hlýtt og mæld­ist afkoma allra þriggja jöklanna þá nei­kvæð. Jökl­arnir hafa alls tapað um 250 km3 íss síðan 1995 sem er um 7 pró­sent af heild­ar­rúm­máli þeirra.

Samhliða hlýnun lofts­lags á Íslandi frá miðjum tíunda ára­tug síð­ustu aldar rýrn­uðu jöklar hratt, að jafn­aði um u.þ.b. 1 metra vatns á ári að með­al­tali á tíma­bil­inu 1997–2010. Eftir 2010 hafa komið köld og blaut sumur inn á milli, þannig að með­al­rýrnun áranna 2011–2018 var ekki nema þriðj­ungur til helm­ingur þess sem verið hafði í rúman ára­tug þar á undan. Sumarið 2019 var víð­ast hlýtt og sól­ríkt enda rýrn­uðu jöklar þá um u.þ.b. 1,5 m vatns sem er með því mesta sem mælst hefur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

jöklar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár