Rýrnun íslenskra jökla helsta afleiðing hlýnandi loftlags

Jöklar á Íslandi hafa hopað hratt á síð­ustu tutt­ugu árum og er rýrnun þeirra skýr vitn­is­burður um hlýnun jarðar. Jökla­fræð­ingur Veð­ur­stofu Íslands telur að Snæ­fells­jök­ull, einn þekkt­asti jök­ull Íslands, verði að öllum lík­indum að mestu horf­inn árið 2050.

Tindur Snæfellsjökuls
Tindur Snæ­fells­jök­uls Mynd: Umhverfisstofnun

Snæ­fells­jök­ull skaust upp á stjörnu­him­in­inn árið 1864 þegar hin fræga bók Leynd­ar­dómar Snæ­fells­jök­uls: För í iður jarðar eftir Jules Verne kom út. Í þeirri bók siglir þýskur pró­fessor ásamt föru­nautum sínum til Íslands þar sem þau ferð­ast ofan í eld­gíg Snæ­fells­jök­uls á vit ævin­týra. Jök­ull­inn hefur orðið fleiri skáldum og öðrum lista­mönnum að yrk­is­efni og í dag er jök­ull­inn vin­sæll ferða­manna­staður. Snæ­fells­jök­ull hefur hins vegar rýrnað mjög í hlýn­andi lofts­lagi Íslands og er talið að eftir rúm þrjá­tíu ár verði jök­ull­inn að mestu horf­inn.

Rýrnun jökla skýr vitnisburður um hlýnun jarðar

Loftslag fer hlýn­andi um allan heim og benda margar athug­anir til þess að breyt­ingar frá því um mið­bik síð­ustu aldar séu for­dæma­lausar þegar litið er til síð­ustu árþús­unda. Árið 2016 var það heitasta á jörð­inni frá upp­hafi mæl­inga og árið 2017 það næst­heitasta. Áhrifin eru víð­tæk en heims­höfin hafa hlýnað, sjáv­ar­borð hækkað og jöklar bráðnað hraðar.

Ástæða hlýn­un­ar­innar er fyrst og fremst auk­inn styrkur koltví­sýr­ings og fleiri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í loft­hjúpnum. Aukning gróð­ur­húsa­loft­teg­und­anna er af manna­völdum og stafar einkum af bruna á kolum og olíu til raf­orku­fram­leiðslu, í sam­göngum og iðn­aði, minni bind­ingu koltví­sýr­ings vegna gróð­ur­eyð­ingar og losun met­ans í land­bún­aði. Aukinn styrkur ákveð­inna loft­teg­unda í and­rúms­lofti breytir varma­geislun frá jörð­inni þannig að neðri hluti loft­hjúps­ins og yfir­borð jarðar hlýna.

Flatarmál jökla hefur minnkað á við höfuðborgarsvæðið á 18 árum

Jöklar eru mesta ferskvatns­forða­búr jarðar og leys­inga­vatn frá jöklum er notað til áveitna á land­bún­að­ar­land, auk þess safn­ast það í ár og vötn og verður að drykkj­ar­vatni dýra og millj­óna manna. Jök­ul­vatn er líka víða notað til raf­magns­fram­leiðslu, eins og hér á landi en einn tíundi hluti Íslands er hulin jöklum.

Umhverf­is­ráðu­neytið hefur falið Vatna­jök­ul­þjóð­garði í sam­starfi við Veð­ur­stofu Íslands að sjá um verk­efnið Hörfandi jöklar. Verk­efnið er hluti af sókn­ar­á­ætlun Íslands í loft­lags­málum og er verk­efn­inu ætlað að auka vit­und fólks um lofts­lags­breyt­ingar og áhrif þeirra á jökla Íslands og alls heims­ins.

Í yfir­liti Hörfandi jökla um íslenska jökla árið 2018 segir að íslenskir jöklar hafi hopað hratt í um ald­ar­fjórð­ung og að rýrnun jökla sé ein­hver helsta afleið­ing hlýn­andi lofts­lags hér­lendis og skýr vitn­is­burður um hlýn­un­ina. Alls hefur flat­ar­mál íslenskra jökla minnkað um rúm­lega 750 fer­kíló­metra síðan um síð­ustu ald­ar­mót en til sam­an­burðar eru sveit­ar­fé­lögin Reykja­vík, Kópa­vogur, Sel­tjarnes, Garðabær, Hafn­ar­fjörður og Mos­fells­bær sam­an­lagt um 759 fer­kíló­metrar.

Á síð­ustu árum hefur heild­ar­flat­ar­mál jökla hér á landi minnkað um það bil 40 fer­kíló­metra árlega að með­al­tali og á árinu 2018 hop­uðu jök­ul­sporðar víða um tugi metra. Af þeim jöklum sem mældir eru af sjálf­boða­liðum Jökla­rann­sókna­fé­lagi Íslands hop­uðu Kalda­lóns­jök­ull í Kalda­lóns­jök­ull í Dranga­jökli, Sól­heima­jök­ull í Mýr­dalsjökli og Skeið­ar­ár­jök­ull mest árið 2018 eða um 100 til 300 m. Hraðast hörfar Breiða­merk­ur­jök­ull þar sem kelfir af honum í Jök­ulsár­lón, milli 200 og 300 metra árlega. Þá stytt­ist Haga­fells­jök­ull eystri í Langjökli um 700 metra þegar dauðís­breiða slitn­aði frá sporð­inum í fyrra. 

Þjóðin tapar ef Snæfellsjökull hverfur

Snæ­fells­jök­ull er einn þeirra jökla sem hefur rýrnað mjög í hlýn­andi lofts­lagi síð­ustu ára­tuga og greindi Veð­ur­stofa frá því í lok apríl að nú sé jökul­inn aðeins 30 metra þykkur að jafn­aði . Ef horft er aftur til byrj­unar síð­ustu aldar þá er Snæ­fells­jök­ull helm­ingi minni nú en árið 1910, þá var hann 22 fer­kíló­metrar en nú er hann um 10 fer­kíló­metrar. Veð­ur­stofa telur það lík­legt að hann hann verði að mestu horf­inn árið 2050.

Þjóð­garð­inn Snæ­fells­jök­ull er mikið sóttur af ferða­menn og sagði Jón Björns­son, þjóð­garðs­vörður á Snæ­fells­nesi, í sam­tali við RÚV, að breyt­ing­arnar á Snæ­fellsjökli hafi áhrif á svæðið. „Þetta hefur svo­lítil áhrif að sjálf­sögðu á svæðið. Jök­ull­inn er aðdrátt­ar­afl þjóð­garðs­ins, þó það fara nú kannski ekki margir upp á hann, en hann tapar svolitlu gildi á þessu. Þjóðin tapar líka, tveir þriðju hlutar þjóð­ar­innar hefur þennan jökul fyrir augum. Reykja­vík sem dæmi, íbúar Reykja­víkur og nágrennis, þetta er eini jök­ull­inn sem þeir sjá þannig í sjálfu sér er það kannski þjóðin í heild að tapa svolitlu.“

Aukin eldvirkni og skriðhætta

Breyt­ingar á jöklum hafa marg­vís­legar afleið­ingar þar á meðal hækkun sjávar, skriðu­föll, aukin eld­virkni og breyt­ingar á líf­ríki. Íslenskir jöklar geyma um 3500 rúm­kíló­metra af ís og á vef Hörfandi jökla segir að ef allur þessi ís bráðn­aði þá væri hægt að kaf­færa allt Ísland í 30 metra djúpu vatni eða hækka sjáv­ar­borð heims­haf­anna um einn cm. Ef allir jöklar heims­ins bráðn­uðu mundi sjáv­ar­borð hækka um allt að 65 metra og kaf­færa stóran hluta alls ræktar- og borg­ar­lands jarð­ar­innar.

Í Vatna­jök­uls­þjóð­garði blasa við margs konar ummerki um jökla­breyt­ingar sem nú verður vart víða á jörð­inni sökum hlýn­unar loft­hjúps­ins af manna­völdum. Þar á meðal er jök­ulsár­lón en það byrj­aði að mynd­ast um 1935. Það er nú ásamt Breið­ár­lóni og nokkrum öðrum minni lónum við jaðar Breiða­merk­ur­jök­uls yfir 30 fer­kíló­metrar að flat­ar­máli. Síðustu árin hafa lónin sam­tals stækkað um 0,5 til 1 fer­kíló­metra árlega að með­al­tali. 

Önnur afleið­ing jökla­breyt­inga er að árið 2016 sam­ein­uð­ust allar ár Skeið­árs­sands, sem þýðir að nú falla öll vötn frá Skeið­ar­ár­jökli í einum far­vegi í fyrsta sinn frá Miðöldum. Þessi breyt­ing, sem er af völdum hörf­unar jökul­j­að­ars­ins, er ein­hver skýrasta birt­ing­ar­mynd hlýn­andi lofts­lags hér á landi sam­kvæmt Hörfandi jöklum.

Auk þess getur hörfun jökla valdið skriðu­föllum úr fjalls­hlíðum og á síð­ast­liðnum árum hafa miklar skriður eða berg­hlaup fallið á Morsár­jökul og Svína­fells­jökul. Hætta er á að hrun ofan í jök­ul­lón framan við hop­andi jökla valdi skyndi­legum flóð­bylgjum sem geta ógnað fólki og mann­virkjum.

Þá er farglétt­ing vegna bráðn­unar jökla er talin örva kviku­fram­leiðslu sem getur leitt til auk­innar gos­virkni en um 2 pró­sent af virku gos­belt­unum liggur undir jökli. Lík­an­reikn­ingar sem herma eftir jök­ul­hörfun­inni á tíma­bil­inu 1890 til 2010 gera ráð fyrir að kviku­fram­leiðsla auk­ist um 100 til 135 pró­sent vegna farglétt­ingar. Samkvæmt Hörfandi jöklum gætir þess­ara áhrifa nú þegar í auk­inni virkni eld­stöðva undir Vatna­jökli.

Skora á ríkisstjórnina að lýsa yfir neyðarástandi

Jökla­breyt­ingar í fram­tíð­inni ráð­ast aðal­lega af því hve hratt og mikið lofts­lagið hlýnar. Lofts­lags­spár gera ráð fyrir að veð­ur­far á Íslandi hlýni um um það bil 2 gráður á yfir­stand­andi öld og að jafn­vel hlýni enn meira á næstu öld þar á eftir. Jökla­líkön Hverf­andi jökla benda til þess að innan 200 ára verði Vatna­jök­ull horf­inn að mestu. Þá gæti Vatna­jök­ull misst um 25 pró­sent af núver­andi rúm­máli á næstu 50 árum.

Í byrjun októ­ber á síð­asta ári kom út ný skýrsla loft­lags­sér­fræð­inga á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna þar sem fram kemur að hita­stig á jörð­unni muni hækka um 1,5 gráðu fyrir 2030 ef ekki er brugð­ist hratt við. Í skýrsl­unni er kallað eftir að ríki heims grípi til stór­tækra aðgerða en ef fram­heldur sem horfir gætu stór svæði í heim­inum orðið ólíf­væn­leg. Skýrslan þykir eins­konar loka­út­kall en ljóst er að ef snúa á þró­un­inni við fyrir 2030 þarf póli­tískan vilja stjórn­valda.

Frjálsu félaga­sam­tökin Land­vernd hafa skorað á rík­is­stjórn Íslands að lýsa yfir neyð­ar­á­standi vegna lofts­lags­breyt­inga. Ályktun þess efnis var sam­þykkt á aðal­fundi sam­tak­anna þann 30. apríl síð­ast­lið­inn. „Ástandið er þannig að fram­tíð barn­anna okkar er veru­lega ógnað og fram­tíð mjög margra líf­vera á jörð­inni er veru­lega ógnað. Við verðum að grípa til aðgerða og við verðum að gera það strax. Þetta er neyð­ar­á­stand,“ sagði Auður Önnu Magn­ús­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Land­verndar í við­tali við frétta­stofu RÚV.

Sam­tök­unum þykir aðgerða­á­ætlun stjórn­valda í loft­lags­málum sem kynnt var síð­asta haust ekki ganga nógu langt og benda á að áætlun stjórn­valda er hvorki tíma­sett né magn­bundin. Í ályktun aðal­fundar Land­verndar eru lagðar til aðgerðir í tíu liðum sem eiga að skila skjótum sam­drætti í losun. Meðal ann­ars er lagt til að inn­heimt verði kolefn­is­gjald af flug- og skips­far­þegum koma til lands­ins og að sala á dísil- og bens­ín­bílum verði bönnuð frá 2023. Auk þess er lagt til að styrkja­kerfið í land­bún­aði verði end­ur­skipu­lagt og dregið verði úr fram­leiðslu dýrða afurða um fjöru­tíu pró­sent.

Breskir þing­menn hafa sam­þykkt að lýsa yfir neyð­ar­á­standi í umhverfis- og loft­lags­málum. Tillaga þess efnis var sam­þykkt þann 1. maí síð­ast­lið­inn en sam­þykkt­in er sögð lýsa vilja þings­ins í mál­inu. Rík­is­stjórn­inni ber þó ekki laga­leg skylda til þess að bregð­ast við henni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

jöklar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár