Brattar brekkur víkja en útsýnið ekki

Það segir sína sögu um Stranda­veg að Vega­gerðin segir hann snjó­þungan „jafn­vel á vest­firskan mæli­kvarða“. Nú á að gera nýjan og mal­bik­aðan veg um Veiði­leysu­háls sem í dag ein­kenn­ist af kröppum beygjum og bröttum brekkum. Og stór­kost­legu útsýni.

Strandavegur liggur nú milli hótelsins í Djúpavík og sjávar. Áformað er að færa hann ofan byggðarinnar.
Stranda­vegur liggur nú milli hót­els­ins í Djúpavík og sjávar. Áformað er að færa hann ofan byggð­ar­innar. Mynd: Sunna Ósk Logadóttir

Góð hreyf­ing er á ný komin á helsta bar­áttu­mál íbúa Árnes­hrepps á Ströndum til ára­tuga: Bættar vega­sam­göngur. Til stendur að leggja nýjan veg um Veiði­leysu­háls og að fram­kvæmdum loknum verður mögu­legt að halda veg­inum á milli Bjarn­ar­fjarðar og Djúpa­víkur opnum allan árs­ins hring.

„Nýr Stranda­vegur um Veiði­leysu­háls verður lagður til að bæta sam­göngur á Ströndum,“ segir í til­lögu að mats­á­ætlun Vega­gerð­ar­innar um nýja veg­inn. „Á rekstr­ar­tíma geta bættar sam­göngur haft marg­vís­leg áhrif, t.d. á byggð á svæð­inu, teng­ingu milli lands­hluta, ferða­mennsku, úti­vist og opin­bera þjón­ustu. Betri sam­göngur munu hafa í för með sér meiri umferð um svæðið, sem hefur áhrif á ferða­mennsku og úti­vist. Traustar og áreið­an­legar sam­göngur eru und­ir­staða sterks og heil­brigðs atvinnu­lífs.“

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem til stendur að fara í þessar fram­kvæmdir. Þær hafa verið fyr­ir­hug­aðar í mörg ár en oft frest­ast, íbúum Árnes­hrepps til mik­illa von­brigða. Og þó að Veiði­leysu­háls­inn sé mik­ill far­ar­tálmi að vetri er veg­ur­inn um Kjör­vogs­hlíð það ekki síður og að mati Vega­gerð­ar­innar verður áfram erfitt að halda þeim vegi opnum að vetr­ar­lagi.

[adspot]

Stranda­vegur er um 93 kíló­metra langur. Hann liggur frá botni Stein­gríms­fjarðar að Kross­nesi í Norð­ur­firði. Hann er eini veg­ur­inn sem liggur inn í Árnes­hrepp, nyrsta sveit­ar­fé­lags Stranda­sýslu og þess fámenn­asta á land­inu. Frá ára­mótum og fram í mars ár hvert er hann oft­ast ófær enda ekki mok­aður á þessu tíma­bili nema í und­an­tekn­ingar til­vikum.

Á blóma­skeiði byggð­ar­innar í Árnes­hreppi, á árum seinni heims­styrj­aldar, voru tvö lítil þorp í sveit­ar­fé­lag­inu, Djúpavík og Gjögur. Þá bjuggu á sjötta hund­rað manns í hreppnum, en 1. jan­úar 2019 voru skráðir íbúar 40.

Sam­göngu­bætur hafa verið Stranda­mönnum ofar­lega í huga í áraraðir. Árið 1950 segir í Sam­vinn­unni, blaði Sam­bands­ins, að vegir í hreppnum séu mjög slæmir „víð­ast aðeins götu­troðn­ingar“. Flutn­ingar að og frá heim­ilum væru því ennþá að mestu á sjó og hestum „en alloft kemur samt fyrir að menn verða að leggja pjönkur sínar á eigið bak því á vet­urna er oft ófært með hesta“.

Haustið 1964 er frétt í Morg­un­blað­inu undir fyr­ir­sögn­inni „Lítið vantar á að bíl­fært verði um Norður-Strendur“. Þá um sum­arið hafði vegur verið lagður að Veiði­leysu­firði. Í októ­ber ári síðar dregur svo til tíð­inda og í Morg­un­blað­inu segir: „Ein­angrun Árnes­hrepps rofin“. Í frétt­inni kemur fram að búið sé að gera veg yfir Veiði­leysu­háls­inn og grein­ar­höf­undur lýsir bíl­ferð sinni um veg­inn. „Skammt fyrir innan Seljaá í Veiði­leysu­firði mættum við tveimur Ing­ólfs­firð­ingum, sem voru á leið suður til Reykja­víkur. Þetta voru þau Gunnar Guð­jóns­son sýslu­nefnd­ar­maður í Árnes­hreppi, er býr á Eyri í Ing­ólfs­firði og kona hans Guðbjörg Pét­urs­dóttir. Munu þau vera fyrstu íbúar norðan Veiði­leysu er fara land­veg suður.“

Einnig var í grein­inni rætt við Guðjón Magn­ús­son odd­vita hrepps­ins sem sagði: „Nú er þessum lang­þráða áfanga náð. Vegurinn mun rjúfa ein­angrun þá er við höfum orðið við að búa til þessa.“

Þó að veg­ur­inn um Veiði­leysu­háls og hrepp­inn allan hafi upp úr miðri síð­ustu öld verið gíf­ur­leg sam­göngu­bót er hann barn síns tíma; mjór, hlykkj­óttur mal­ar­vegur, lítið upp­byggður en oft nið­ur­graf­inn.

Stranda­vegur er með bundnu slit­lagi að Bjarn­ar­fjarð­ará í Bjarn­ar­firði. Þar tekur mölin við þar til veg­ur­inn endar í Norð­ur­firði, fyrir utan örstutta mal­bik­aða kafla við nokkra bæi. Hann liggur með­fram sjónum nema á Veiði­leysu­hálsi þar sem hann fer í 250 metra hæð yfir sjáv­ar­máli.

Þeir sem ekið hafa Stranda­veg vita að hann liggur í gegnum stór­brotið lands­lag. Ströndin er víða vog­skorin og há hamra­fjöll gnæfa yfir. Sá kafli veg­ar­ins sem nú er áformað að breyta og bæta nær frá ánni Kráku í Veiðu­leysu­firði að Kjósará í Kjós­ar­vík. Sá veg­spotti er í dag 11,6 kíló­metra langur. Hann liggur yfir Kráku og fer svo upp eftir Tvíhlíð undir Mið­deg­is­fjalli og í hálf­hring upp á Veiði­leysu­háls. Þaðan liggur hann niður brekkur Kúvík­ur­dals í átt að Reykj­ar­firði og svo í neð­an­verðum bröttum hlíðum fjarð­ar­ins að Djúpavík. Á suð­ur­strönd Reykj­ar­fjarðar liggur veg­ur­inn í gegnum byggð­ina í Djúpavík og eru aðstæður þar þröngar og hættu­legar. Þaðan liggur hann með­fram sjónum um Kjós­ar­nes og endar rúm­lega 200 metrum vestan Kjósarár í Kjós­ar­vík.

Vegurinn er sein­far­inn og hættu­legur, með mæt­ing­ar­út­skotum, kröppum beygjum – sumum mjög kröppum – og víða er halli 12 pró­sent eða meira. Reykj­ar­fjarð­ar­megin, á leið­inni inn í Djúpavík, er snar­bratt í sjó fram. Hann telst ekki til heils­árs­vega enda mjög snjó­þungur „jafn­vel á vest­firskan mæli­kvarða,“ eins og það er orðað í skýrslu Vega­gerð­ar­innar.

Nýi veg­ur­inn mun að ákveðnu leyti fylgja veg­línu sem lögð er til í aðal­skipu­lagi Árnes­hrepps. Reykj­ar­fjarð­ar­megin á Veiði­leysu­hálsi víkur nýr vegur frá skipu­lags­lín­unni til að kom­ast hjá snjó­þungu svæði. Þá fyr­ir­hugar Vega­gerðin að færa veg­inn um Kjós­ar­höfða ofan við byggð­ina í Djúpavík. Breyta þarf aðal­skipu­lagi sveit­ar­fé­lags­ins í sam­ræmi við þetta.

Nýr vegur mun fylgja núver­andi vegi á stuttum köflum en fara á öðrum stöðum yfir lítt raskað land sem er að stórum hluta nýtt sem beiti­land sauð­fjár.

Mögulegt fram­kvæmda­svæði er á jörð­unum Veiði­leysu, Kúvíkum og Kjós. Heils­árs­bú­seta er í Djúpavík og þar er rekið hótel. Veiði­leysa fór í eyði árið 1961 en þar er gamla íbúð­ar­húsið nýtt sem sum­ar­hús. Búsetu í Kúvíkum lauk árið 1949 en þar eru nú tveir sum­ar­bú­staðir. Í Djúpavík eru nokkur frí­stunda­hús og einnig gömul íbúð­ar­hús sem nýtt eru sem frí­stunda­hús.

Æskilegt að ferðalangar haldi útsýninu

Vegurinn verður lagður bundnu slit­lagi til að auka þæg­indi veg­far­enda, auð­velda og draga úr við­haldi, forð­ast ryk­mengun og draga úr elds­neyt­iseyðslu og um leið draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Miðað er við að mesti halli verði 8,5 pró­sent. Hann verður hærri og breið­ari en núver­andi vegur því miðað er við að draga úr hættu á snjó­söfnun. „Víða er mjög fal­legt útsýni af veg­inum um Veiði­leysu­háls í dag og „æski­legt er að ferða­langar eigi áfram kost á að njóta útsýn­is­ins,“ segir í skýrslu Vega­gerð­ar­innar.

Áætlað er að kostn­aður vegna vega­fram­kvæmd­anna sé um 700 millj­ónir króna. Áætlaður fram­kvæmda­tími er þrjú ár. Miðað er við að hægt verði að bjóða verkið út um leið og und­ir­bún­ingi lýkur og fjár­veit­ingar og öll leyfi liggja fyrir.

Í til­lögu að mats­á­ætlun kemur fram að veg­línan kunni að breyt­ast að ein­hverju leyti á næstu mán­uðum. Rann­sóknir á svæð­inu hófust síð­asta haust en munu að mestu fara fram í sumar, m.a. á forn­leifum. Gengið verður frá rann­sókn­ar­skýrslum fyrri hluta næsta vetrar. Vega­gerðin mun svo í fram­hald­inu vinna að hönnun fram­kvæmdar og gerð frum­mats­skýrslu. Áætlað er að skýrsla um mat á umhverf­is­á­hrifum fram­kvæmd­ar­innar verði send Skipu­lags­stofnun til form­legrar athug­unar næsta sumar. Að fjórum vikum liðnum muni stofn­unin gefa álit sitt á hinni fyr­ir­hug­uðu fram­kvæmd.

Stiklað á stóru í sögu byggðarinnar

Byggðin í Árnes­hreppi á Ströndum á sér langa og merki­lega sögu. Þar komu land­náms­menn sér fyrir við upp­haf Íslands­byggðar og þó að und­ir­lendi sé lítið og stór­kost­leg fjöllin og víð­feðmar heiðar geri sam­göngur á landi oft á tíðum erf­iðar hafa Norður-Strandir hald­ist í byggð. Að vetri búa þó fáir í sveit­inni en um leið og vorar fjölgar fólk­inu. Strand­veiðar eru stund­aðar frá Norð­ur­firði þaðan sem stutt er í gjöful fiski­mið. Mörgum eyði­býl­unum er vel við haldið og þar dvelja afkom­endur síð­ustu ábú­end­anna margir hverjir sum­ar­langt.

Í skýrslu Vega­gerð­ar­innar er stiklað á stóru í sögu byggð­ar­innar og þar byggt á upp­lýs­ingum úr aðal­skipu­lagi Árnes­hrepps.

Kúvíkur við Reykj­ar­fjörð voru í hópi eldri versl­un­ar­staða lands­ins þar sem Danir ráku verslun. Árið 1912 þegar Gjögur fékk lög­gild­ingu sem versl­un­ar­staður lagð­ist verslun í Kúvíkum af og byggð eydd­ist.

Djúpavík, sem stendur við sam­nefnda vík, var útgerð­ar­stöð frá árinu 1917. Fyrstu þrjú sumrin var þar rekin umfangs­mikil síld­ar­söltun og reist versl­unar- og íbúð­ar­hús ásamt síld­arplönum og bryggjum. Á árunum 1934-35 var reist full­komin síld­ar­verk­smiðja á staðnum en starf­rækslu verk­smiðj­unnar var hætt árið 1952. Miklar bygg­ingar síld­ar­verk­smiðj­unnar frá blóma­skeiði síld­ar­ár­anna standa enn. Flest gömlu íbúð­ar­húsin standa ennþá og nýt­ast sem frí­stunda­hús. Í Djúpavík er nú hót­el­rekstur og veit­inga­sala allan árs­ins hring.

Gjögur er forn­fræg veiði­stöð við norð­an­vert mynni Reykj­ar­fjarðar. Áður fyrr voru hákarla­veiðar stund­aðar þaðan í miklum mæli og því voru þar fjöl­margar ver­búðir. Á fyrri hluta 20. ald­ar­innar voru tals­verð umsvif á Gjögri og þar bjuggu um 60 manns þegar flest var, en nú er svo komið að þar býr eng­inn lengur. Þar eru frí­stunda­hús, gömul og ný, sem notuð eru til sum­ar­dvalar. Á Gjögri er flug­völlur og yfir hávetr­ar­tím­ann er flugið eina sam­göngu­æðin til og frá sveit­inni.

Tré­kyllis­vík er búsæld­ar­leg­asta byggð á Norður-Ströndum og má telja hana til mið­stöðvar hrepps­ins. Á þessu svæði er Finn­boga­staða­skóli, íþrótta­völlur, kirkj­urnar í Árnesi og félags­heim­ilið í Tré­kyllis­vík, ásamt flestum bújörðum sem enn eru í ábúð í hreppnum. Þar er einnig minja- og hand­verks­húsið Kört. Finn­boga­staða­skóli hefur verið lok­aður í tvö ár og eina barnið sem er með lög­heim­ili í sveit­ar­fé­lag­inu hefur gengið í skóla á Drangs­nesi.

Í Norð­ur­firði hefur verið rekin verslun frá árinu 1903. Á mestu upp­gangs­tímum í hreppnum, þ.e. á tíma­bil­inu upp úr 1920 og fram á miðja þá öld, voru einnig minni versl­anir reknar á Gjögri, í Djúpuvík og á Eyri í Ing­ólfs­firði. Í Norð­ur­firði er rekin verslun, útibú Spari­sjóðs Stranda­manna og kaffi­hús yfir sum­ar­tím­ann. Í Norð­ur­firði er góð höfn.

Á Kross­nesi utan­vert við Norð­ur­fjörð er jarð­hiti og útisund­laug. Kross­nessund­laug er niðri í fjöru og útsýnið er stór­kost­legt og lit­brigðin geta verið ein­stök þegar sólin er að setj­ast.

Við Ing­ólfs­fjörð hófst síld­ar­söltun á nokkrum stöðum árið 1915. Árið 1952 brugð­ust síld­veiðar á Húnaflóa og þá var verk­smiðju­rekstri í Ing­ólfs­firði hætt. Á stríðs­ár­unum höfðu breskir her­menn aðstöðu firð­inum. Á Eyri við Ing­ólfs­fjörð var reist verk­smiðja í lokin á síldar­æv­in­týr­inu. Hún stendur ennþá. Þar eru nokkur hús sem notuð eru til sum­ar­dvalar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár