Þórólfur ætlar ekki til útlanda á þessu ári

Er óhætt að bóka utan­lands­ferð í haust? Sótt­varna­læknir segir ekk­ert hægt að segja til um það á þess­ari stundu og að sjálfur ætli hann ekki til útlanda á þessu ári.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Það er „algjör­lega von­laust“ að segja til um það á þess­ari stundu hvort óhætt sé að bóka utan­lands­ferð í haust. „Sjálfur ætla ég ekki að skipu­leggja neinar utan­lands­ferðir á þessu ári að minnsta kosti,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag .

[adspot]

Á fund­inum var Þórólfur spurður að því hvenær Íslend­ingar gætu farið að huga aftur að ferða­lögum erlendis. Hann sagði margt spila inn í það, ekki aðeins aðgerðir hér á landi og útbreiðsla veirunnar hér heldur hvað er að ger­ast í öðrum löndum að þessu leyti. Þannig væri það ekki undir okkur Íslend­ingum einum komið.

Hugsa þyrfti út í það hvort að fólk myndi eiga á hættu að lenda í sótt­kví á áfanga­stað sínum erlendis og jafn­vel útgöngu­banni. „Það eru svo margir óvissu­þættir í þessu að það er algjör­lega von­laust að segja eitt­hvað um það.“

[links]Ferða­tak­mark­anir á landa­mærum Schengen-svæð­is­ins verða í gildi til að minnsta kosti 15. maí. Á sama tíma eru í gildi sótt­varn­ar­ráð­staf­anir hér sem gera það að verkum að allir þeir sem koma til lands­ins, hvort sem þeir eru búsettir hér á landi eða ekki, þurfa að fara í tveggja vikna sótt­kví.

Framhald þess­ara aðgerða verður end­ur­skoðað á næst­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár