Víðir boðar samfélagslegan sáttmála

Hvernig viljum við haga okkur í sam­fé­lag­inu næstu vikur og mán­uði? Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn varpar fram þeirri hug­mynd að íslenska þjóðin geri með sér sátt­mála um „eitt­hvað sem við viljum öll halda í heiðri“.

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra. Mynd: Lögreglan

Nú stytt­ist í 4. maí þegar fyrstu aflétt­ingar á aðgerðum sem hafa verið íþyngj­andi fyrir marga hefj­ast. Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn hjá rík­is­lög­reglu­stjóra segir að því sé tíma­bært að velta þeirri hug­mynd fyrir sér að öll þjóðin geri með sér sam­fé­lags­legan sátt­mála, sátt­mála um hvernig við ætlum að haga okkur næstu vikur og mán­uði.

Sátt­mál­inn yrði þá „eitt­hvað sem við viljum öll halda í heiðri, vera öll saman í, allt sam­fé­lagið,“ sagði hann á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Nefndi hann sem dæmi að með sátt­mál­anum gæti fólk lofað því að sinna hand­þvotti vel, sótt­hreinsa og spritta hend­urnar og sam­eig­in­lega snertifleti, vernda áfram við­kvæma hópa, gefa kost á tveggja metra fjar­lægð, halda áfram sýna­tökum, að beita sótt­kví og ein­angra smit­aða – og veita áfram góða heil­brigð­is­þjón­ustu. Nefndi hann líka að upp­lýs­inga­miðlun yrði áfram góð og að fólk not­aði fréttir frá traustum, rit­stýrðum frétta­miðlum, til að afla sér upp­lýs­inga.

Þá sé mik­il­vægt að við sýnum þeim skiln­ing sem mis­stíga sig í aðgerð­unum. „Við munum öll mis­stíga okkur,“ sagði Víðir. „Við skulum leið­beina þeim sem það gera og á kurt­eis­legan hátt. Og vera góð við hvort annað.“

Sagði Víðir að hann teldi slíkan sam­fé­lags­legan sátt­mála mik­il­vægan sam­hliða því að aðgerðum verður aflétt í skrefum frá 4. maí. „Eina leiðin er að vinna þetta saman.“

Minnti hann á að áhrif far­ald­urs­ins væru um allan heim og að aðgerðir ann­arra hafi áhrif á okkur. „Þetta er sam­fé­lags­legt verk­efni allra sam­fé­laga, verk­efni alls mann­kyns. Við erum öll í þessu saman. Við þurfum líka að passa okkur á því í þess­ari vinnu að við skiljum engan eftir útundan.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár