Tveggja metra reglan verður felld úr gildi meðal skólabarna

Tveggja metra reglan mun ekki gilda í grunn- og leik­skólum eftir að starf­semi þeirra fer í samt horf eftir 4. maí. Ástæðan er sú að nán­ast engin dæmi eru um það hér á landi að börn smiti aðra.

Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn og Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Margir virð­ast orðnir óþreyju­fullir að vita nákvæm­lega hvernig skóla- og íþrótta­starf barna verður eftir hinn marg­um­tal­aða dag, fjórða maí. Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sendi heil­brigð­is­ráð­herra í dag minn­is­blað með til­lögum að aflétt­ingu tak­mark­ana hvað þetta varðar. Hann vildi ekki ræða þær til­lögur sér­stak­lega á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag enda væri það heil­brigð­is­ráð­herra að ákveða útfærsl­una end­an­lega og birta aug­lýs­ingu þar um.

Frétta­maður Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar spurði engu að síður út í einn anga máls­ins enda hefur ákveð­ins mis­skiln­ings gætt varð­andi fyr­ir­hug­aða útfærslu.

[adspot]

Hann beindi orðum sínum til Þórólfs er hann spurði: Nú hafa almanna­varnir sagt að skóla­hald geti farið fram með eðli­legum hætti á meðan mennta­mála­ráð­herra segir að tveggja metra reglan verði ennþá í gildi. Er mögu­legt að skóla­hald geti verið með eðli­legum hætti ef það er tveggja metra regla?

Þórólfur (snýr sér bros­andi að Víði Reyn­is­syni yfir­lög­reglu­þjóni): „Vilt þú taka tvo metrana, Víðir?“

Víðir grípur bolt­ann og svarar: „Stundum er það þannig að þegar það er verið að vinna að verk­efnum og hlut­irnir ger­ast hratt þá stendur maður sig kannski ekki alveg nógu vel í upp­lýs­inga­miðl­un­inni. Ég held að það sé það sem hefur gerst í þessu til­felli. Við höfum ekki staðið okkur vel í að miðla upp­lýs­ingum til mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins og þar af leið­andi hefur það byggt sín ummæli á því sem við sögðum um dag­inn.“

[links]Víðir snýr sér svo að Þórólfi og heldur áfram: „En sótt­varna­læknir hefur farið yfir þetta og vill kannski útskýra betur af hverju hann telur ekki þörf á því að vera með tveggja metra regl­una í leik- og grunn­skólum.“

Þórólfur: „Í minn­is­blaði mínu til heil­brigð­is­ráð­herra þá teljum við að leik- og grunn­skóla­starf geti farið fram með eðli­legum hætti, eins og það var áður. Við teljum að það sé erfitt að fram­fylgja tveggja metra regl­unni. Svo erum við líka búin að fá betri og meiri upp­lýs­ingar.

Í fyrsta lagi að smit er mjög fátítt meðal barna yngri en tólf ára. [...] Það eru líka ákveðnar vís­bend­ingar úr smitrakn­ing­unni um það að smit frá börnum til ann­arra, til dæmis full­orð­inna, er mjög fátítt og hefur nán­ast ekki verið skráð. Þannig að það eru fyrst og fremst full­orðnir sem eru að smita börnin. Þannig að við teljum að börnin séu ekki þunga­miðjan í sótt­varna­ráð­stöf­unum eins og gildir um mjög marga aðra sjúk­dóma. Á þeim grunni teljum við að við getum aflétt þessum tak­mörk­unum á skóla­starfi í leik- og grunn­skóla og þar á meðal á þess­ari tveggja metra reglu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár