Víðir: Við erum að leggja í mikla óvissuferð

Þríeykið okkar er áhyggju­fullt. Þrátt fyrir að far­ald­ur­inn sé enn í rénun og álag á sjúkra­húsin hafi minnkað nálg­ast sá dagur þegar aflétt­ing tak­mark­ana á sam­komum hefst í skrefum. Hætta er á að óábyrg hegðun eyði­leggi allt það sem við höfum lagt á okkur.

Víðir, Þórólfur og Alma mættu til fundar í dag eins og þau hafa gert nánast daglega í meira en tvo mánuði.
Víðir, Þórólfur og Alma mættu til fundar í dag eins og þau hafa gert nán­ast dag­lega í meira en tvo mán­uði. Mynd: Lögreglan

Upp­lýs­inga­fundur almanna­varna í dag, 17. apríl, var nokkuð hefð­bund­inn, svip­aður og hann hefur verið frá upp­hafi, í um fimm­tíu daga.

Þríeykið okkar, Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá rík­is­lög­reglu­stjóra, Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir og Alma Möller land­læknir fóru yfir helstu mál dags­ins og gestur fund­ar­ins var Hildigunnur Svav­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri hjúkr­unar á Sjúkra­hús­inu á Akureyri.

Að venju fengu svo við­staddir blaða­menn tæki­færi til að spyrja sér­fræð­ing­ana spurn­inga um far­ald­ur­inn og ýmis­legt sem honum teng­ist.

Loka­spurn­ingin féll blaða­manni mbl.is í skaut.

Blaða­maður mbl.is: Þegar þið þrjú fundið, hverjar eru helstu áhyggjur ykkar þessa dag­ana?

Þórólfur (lítur á Víði): Hvað er það sem þú hefur mestar áhyggjur af núna Víðir?

Víðir (hik­andi): Ja...

Þórólfur: Þú mátt alveg segja það.

Víðir (bros­andi): Jájá.

Hann verður svo alvar­legur og segir:

„Það sem við erum að velta mjög mikið fyrir okkur og er auð­vitað áhyggju­efni er hvað ger­ist núna 4. maí. Hvernig útfærslan á þessu verður end­an­lega, hvernig við­brögðin verða og hvaða afleið­ingar það hefur á þau verk­efni sem við erum með í þessu. Og við erum að leggja í mikla óvissu­ferð með það. Við erum að reyna að finna sam­spilið milli þess að finna bestu lausn­ina sótt­varna­lega séð og gera það sem okkar sér­fræð­ingar telja öruggt að gera til að koma sam­fé­lag­inu í gang.

Við erum öll orðin lang­þreytt og höfum lagt gríð­ar­lega mikið á okkur. Og ef maður horfir aðeins til baka í dag þá erum við búin að vera í þessu í um þrjá mán­uði, frá því að við byrj­uðum að vinna í þessu á fullu. Auðvitað væri það skelfi­legt ef að það sem við gerum í maí myndi verða til þess að við þyrftum að byrja upp á nýtt.“

Þótt þetta hafi átt að vera loka­spurn­ingin tókst að bæta við að minnsta kosti einni. Áður hafði meðal ann­ars verið spurt um fjölda ferða­manna sem hafa komið hingað síð­ustu vikur (um tíu), um hvort knúsa mætti þá sem náð hafa bata af COVID-19 (já, það má) og hvort að kór­ónu­veiran gæti lifað í vatni og smitað (nei, það er mjög ólík­legt).

„Við verðum að loka þessu í dag, við erum löngu komin fram yfir tím­ann,“ sagði Víðir þegar klukkan var langt gengin í þrjú.

Við VERÐUM

Að venju lauk hann fund­inum með hvatn­ing­ar­orðum. Hann sagði almanna­varnir vera að óska eftir hug­myndum að ein­hverju skemmti­legu til að gera í sam­komu­banni. Sagðist hann þegar hrif­inn af einni hug­mynd­inni sem væri að hlaða Pokemon Go-leiknum aftur í sím­ana og fara í göngu­ferð með börn­unum að leita að þeim furðu­skepnum.

Hann horfði svo beint í mynda­vél­ina, í augu áhorf­enda heima í stofu, er hann lauk fund­inum með þessum orðum:

„Ég vil hnykkja á þessu í lokin sem ég var að enda við að segja: Við erum öll búin að leggja gríð­ar­lega mikið á okkur. Það er búið að loka fyr­ir­tækjum, það er búið að setja heim­sókn­ar­bann á hjúkr­un­ar­heim­ili, margir eru að vinna heima, margir hafa misst vinn­una og margir sjá dimma tíma framundan í efna­hags­málum.

Við verðum að tryggja það að allt sem við gerum næstu vik­urnar skemmi ekki það sem við erum búin að gera, að við lendum ekki í því núna í maí að af því að við högum okkur með óábyrgum hætti þurfi að byrja upp á nýtt. Ég veit að það vill það eng­inn, það ætlar sér eng­inn að gera það. Við verðum að vera ein­beitt. Við ætlum að vinna þetta saman. Við ætlum að klára þetta. Það er dálít­ill tími eftir – gerum þetta saman.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár