Augljóst að ástandið muni hafa neikvæð áhrif á íslenskan sjávarútveg

Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra fór yfir áhrif COVID-19 far­ald­urs­ins á rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Eft­ir­spurn eftir ferskum fiski í Evrópu hefur dreg­ist mjög saman vegna stöð­unnar sem upp er komin vegna COVID-19 og hafa íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki fundið fyrir sam­drætti í eft­ir­spurn allra teg­unda. Þetta kom fram á rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun en Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, fjall­aði um áhrif COVID-19 á íslenskan sjáv­ar­út­veg og land­búnað.

Í svari atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans kemur fram að aug­ljóst sé að þessar umfangs­miklu breyt­ingar á erlendum mörk­uðum muni hafa tölu­vert nei­kvæð áhrif á íslenskan sjáv­ar­út­veg og afleidda starf­semi. Unnið sé að því að færa fram­leiðslu úr fersku hrá­efni í aðra vinnslu. Sum fyr­ir­tæki ætli að reyna að halda sínu striki eða breyta sókn sinni í ákveðnar teg­undir, en önnur fyr­ir­tæki hygg­ist draga úr sjó­sókn og fram­leiðslu fyrst um sinn, í sam­ræmi við sam­drátt í eft­ir­spurn mark­að­ar­ins.

Óvissa með sölu landbúnaðarafurða

Þá kemur fram í svar­inu að Kristján Þór hafi jafn­framt greint frá því að tals­verð óvissa sé um sölu á land­bún­að­ar­af­urðum á næstu mán­uðum með til­liti til fækk­unar ferða­manna og mikið hafi verið um afbók­anir hjá ferða­þjón­ustu­bændum langt fram eftir árinu.

„Íslenskir fóð­ur­fram­leið­endur eiga birgðir til nokk­urra mán­aða og stendur yfir vinna til að auka þær enn frekar. Hið sama er uppi á ten­ingnum varð­andi áburð. Bænda­sam­tök Íslands hafa aug­lýst eftir vilj­ugu fólki til þess að sinna afleys­ing­ar­þjón­ustu fyrir bændur. Áhersla er lögð á mögu­legar afleys­ingar fyrir ein­yrkja og minni bú,“ segir í svar­inu.

Enn fremur segir að eðli máls­ins sam­kvæmt breyt­ist staðan hratt og atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið muni fylgj­ast áfram náið með þróun mála og grípa til þeirra aðgerða sem nauð­syn­legar séu til að lág­marka efna­hags­lega nei­kvæð áhrif á íslenskan land­búnað og sjáv­ar­út­veg til skemmri og lengri tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár