Sýn tapaði 1,7 milljörðum í fyrra

Rekstr­ar­af­koma Sýnar versn­aði mikið milli ára. Nið­ur­færsla á við­skipta­vild lit­aði afkomu árs­ins í fyrra.

Tap árs­ins nam 1,7 millj­örðum króna miðað við hagnað upp á 443 millj­ónir króna árið 2018.

Hagnaður árs­ins að frá­dreg­inni nið­ur­færslu á við­skipta­vild var 703 millj­ónir króna, að því er segir í til­kynn­ingu félags­ins til kaup­hallar.

Ein­skiptis­kostn­aður árs­ins nam 358 millj­ónum króna.

Tap á síð­ustu þremur mán­uðum árs­ins 2019 nam tveimur millj­örðum króna sam­an­borið við 193 milljón króna hagnað á sama tíma­bili í fyrra.

Við­skipta­vild var færð niður um 2,4 millj­arða króna sem skýrir tapið á síð­ustu þremur mán­uðum árs­ins.

„Uppgjör síð­asta árs liggur nú fyrir með tap uppá 1.748 millj­ónir króna. Það ætti ekki að vera margt þar sem kemur á óvart enda eru sjóð­streymi og EBITDA árs­ins í takt við horfur. Árið markast af því að verið var að fram­kvæma miklar breyt­ingar á rekstr­inum og færa niður við­skipta­vild. Jákvæð breyt­ing er veru­lega bætt sjóð­streymi en frjálst fjár­flæði eykst um yfir millj­arð króna. Á síð­asta ári fór fyr­ir­tækið fyrst í sam­eig­in­lega stefnu­mótun. Í fram­haldi af því var skipu­riti breytt og nýir fram­kvæmda­stjórar eru nú í öllum stöðum, utan tækni­s­viðs. Tækni­sviði var skipt upp og sett að hluta undir rekstr­ar­svið, sem mun auk skil­virkni og hraða fram­förum í starfrænni aðlögun. Við inn­leiddum nýja vöru­merkja– og sam­skipta­stefnu og fórum í fram­haldi af því í 4DX átaks­verk­efni. Ánægja við­skipta­vina jókst strax umtals­vert í kjöl­farið. Nú erum við í stöðu til að sækja fram,“ segir Heiðar Guð­jóns­son, for­stjóri, í til­kynn­ingu.

Hann segir enn fremur að lyk­ill­inn að rekstr­ar­ár­angri sé fólg­inn í því að umbreyta föstum kostn­aði í breyti­legan. „Þar eru ýmis verk­efni í gangi. Við erum að auka útvistun verk­efna auk þess sem við erum enn að hag­ræða með því að efla frek­ari sam­vinnu á milli deilda fyr­ir­tæk­is­ins. Varðandi fram­tíð fjar­skipta þá skiptir mestu að fjár­fest­ingar séu mark­vissar með til­liti til öryggis og hag­kvæmni. Mik­il­vægur liður í því var yfir­lýs­ing fjar­skipta­fyr­ir­tækj­anna frá 19. des­em­ber síð­ast liðnum, þó enn sé of snemmt að full­yrða um árangur af því starfi,“ segir Heiðar enn­fremur.

Helstu atriði úr upp­gjöri félags­ins, má sjá hér að neðan.

• Tap árs­ins nam 1.748 millj­ónum króna miðað við hagnað upp á 443 millj­ónir króna árið 2018. Hagnaður árs­ins að frá­dreg­inni nið­ur­færslu á við­skipta­vild var 703 millj­ónir króna. Ein­skiptis­kostn­aður árs­ins nemur 358 millj­ónum króna.

• Handbært fé frá rekstri á fjórð­ungnum nam 1.953 millj­ónum króna sam­an­borið við 1.358 millj­ónir króna á sama tíma­bili árið áður, sem er aukn­ing um 44%.

• Heild­ar­fjár­fest­ingar félags­ins á árinu námu 4.719 millj­ónum króna þar af eru fjár­fest­ingar í var­an­legum rekstr­ar­fjár­munum og óefn­is­legum eignum (án sýn­ing­ar­rétta) 1.833 millj­ónir króna og fjár­fest­ing í sýn­ing­ar­réttum 2.789 millj­ónir króna.

• Fjár­mögn­un­ar­hreyf­ingar félags­ins á árinu voru nei­kvæðar um 380 millj­ónir króna á móti jákvæðum hreyf­ingum upp á 434 millj­ónum króna á árinu 2018 sem er breyt­ing um 814 millj­ónir króna.

• Eig­in­fjár­hlut­fall Sýn hf. var 27,5% í lok árs 2019.

• Markmið stjórn­enda er að ná auk­inni fram­legð og betra sjóð­streymi úr rekstri félags­ins á árinu 2020. Fjár­fest­ingar árs­ins verða í kringum 1 millj­arð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár