Hví er sandbylur á Kanarí?

Mikil röskun á flugi. Við­burðum aflýst og skólum lokað. Skyggni lítið. Hvað er eig­in­lega að ger­ast á Kanarí-eyjum?

Flugferðum var aflýst í stórum stíl á mörgum Kanarí-eyjanna í dag.
Flug­ferðum var aflýst í stórum stíl á mörgum Kanarí-eyj­anna í dag. Mynd: EPA

Eyði­mörkin Sahara, sem breiðir úr sér yfir stóran hluta Norður-Afríku, lét finna fyrir sér í tuga kíló­metra fjar­lægð um helg­ina. Sandur sem þaðan blés hafði mikil áhrif á loft­gæði og sam­göngur á Kanarí­eyjum þar sem fjöldi Íslend­inga dvelur á hverjum tíma í sól­inni.

Flug­ferðum til og frá eyj­unum var aflýst og einnig var ákveðið að slaufa mörgum við­burðum sem stóðu fyrir dyrum. Á morgun, mánu­dag, er búið að aflýsa skóla­haldi á ein­hverjum eyj­anna vegna veð­urs­ins. Sand­byl­ur­inn hefur tak­markað skyggni veru­lega.

En hvað er það sem veldur því að sandur úr Sahara ferð­ast svo langa leið – yfir haf og lönd?

Sahara er stærsta eyði­mörk heims utan heim­skauta­svæð­anna. Hún nær yfir stóran hluta Norður-Afríku og er um 9,2 millj­ónir fer­kíló­metra, álíka stór og Banda­ríkin. Sand­ur­inn sem nú gerir usla á Kanarí er lík­lega ætt­aður frá Marokkó og Márit­aníu, löndum í um 100 kíló­metra fjar­lægð á vest­ur­strönd Afríku.

Þetta ástand er þekkt sem „calima“ og þeir sem dvalið hafa á Kanarí­eyjum á þessum árs­tíma gætu hafa kom­ist í kynni við það. Í ár virð­ist það þó óvenju slæmt.

Calima eru heitir og sterkir austan vindar sem rífa upp sand í stórum stíl, blása honum þús­undir metra upp í loftið, yfir Atl­ants­hafið og í átt að Kanarí-eyja­kla­s­anum. Er þetta heita loft fer yfir eyj­arnar myndar það þykkt mistur smárra sand­korna sem getur hindrað sýn og valdið önd­un­ar­erf­ið­leikum.

Samkvæmt nýlegri rann­sókn sem gerð var við Maryland-háskóla í Banda­ríkj­unum stækk­aði Sahara-eyði­mörkin um 10% á árunum 1920-2013. Lítil úrkoma fellur í eyði­mörkum, yfir­leitt innan við 100 mm á ári að með­al­tali.

Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar voru birtar árið 2018 og sam­kvæmt þeim er lík­legt að stækkun Sahara komi til af þáttum sem rekja má bæði til nátt­úru­legra fyr­ir­bæra og athafna mann­anna. bæði. Mikið magn gróð­ur­húsa­loft­teg­unda ýti undir áhrif nátt­úru­lega veð­ur­fyr­ir­brigða með þeim afleið­ingum að upp­blástur verður meiri og eyði­mörkin stækkar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðalög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár