Samfylking tekur stökk í nýrri könnun – Miðjublokkin orðin jafn stór og ríkisstjórnin

Sam­fylk­ingin mælist með tæp­lega 18 pró­sent fylgi í nýj­ustu könnun Gallup og fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins mælist það lægsta sem það hefur mælst á kjör­tíma­bil­inu. Sam­fylk­ing, Píratar og Viðreisn hafa sam­an­lagt bætt við sig 41 pró­sent fylgi á kjör­tíma­bil­inu.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sam­fylk­ingin eykur fylgi sitt um fjögur pró­sentu­stig milli kann­ana Gallup og mælist nú með 17,7 pró­sent fylgi. Það er ekki mesta fylgi sem flokk­ur­inn hefur mælst með á kjör­tíma­bil­inu. Í ágúst og sept­em­ber 2018 mæld­ist fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar 19,3 pró­sent.

Flokk­ur­inn mælist næst stærsti flokkur lands­ins á eftir Sjálf­stæð­is­flokknum, sem er að venju sá flokkur sem hefur mest fylgi. Það mælist nú 21,6 pró­sent sem er lægsta fylgi sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur mælst með á þessu kjör­tíma­bili. Flokk­ur­inn tapar einu pró­sentu­stigi milli mán­aða.

Viðreisn tapar líka fylgi og fer úr 12 pró­sentum í 10,3 pró­sent á milli mán­aða. Þá tapar Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 0,6 pró­sentu­stigum og nýtur nú stuðn­ings 7,8 pró­sent kjós­enda.

Fylgi ann­arra flokka er nokkuð stöðugt milli mán­aða.

Mikill viðsnúningur

Vinstri græn myndu fá 10,5 pró­sent ef kosið væri í dag. Það þýðir að sam­eig­in­legt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja er komið undir 40 pró­sent í fyrsta sinn í könn­unum Gallup á kjör­tíma­bil­inu. Það má þó ekki miklu muna, enda sam­eig­in­legt fylgi þeirra 39,9 pró­sent. Yrði það nið­ur­staða kosn­inga væri rík­is­stjórnin kol­fall­inn.

[adspot]Flokk­arnir þrír sem mynd­uðu rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur í lok nóv­em­ber 2017 fengu sam­tals 52,9 pró­sent fylgi í kosn­ing­unum það ár. Þeir hafa því tapað þrettán pró­sentu­stigum á kjör­tíma­bil­inu, eða tæp­lega fjórð­ungi fylgis flokk­anna.

Píratar mæl­ast með 11,5 pró­sent fylgi nú um stundir. Sam­eig­in­legt fylgi þeirra, Sam­fylk­ingar og Við­reisnar, sem unnið hafa saman að ýmsum málum á kjör­tíma­bil­inu og skil­greina sig sem frjáls­lynda miðju­flokka, er nú 39,5 pró­sent, eða nán­ast það sama og fylgi stjórn­ar­flokk­anna. Þessir þrír flokkar fengu 28 pró­sent í kosn­ing­unum 2017 og hafa því bætt við sig 11,5 pró­sentu­stigum. Það þýðir að sam­eig­in­legt fylgi þeirra hefur auk­ist um 41 pró­sent á kjör­tíma­bil­inu.

Tveir flokkar sem næðu líklega ekki inn

Mið­flokk­ur­inn er þriðji stærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt Gallup með 12,5 pró­sent fylgi, sem er meira en þau 10,9 pró­sent sem hann fékk haustið 2017. Flokkur fólks­ins yrði lík­ast til í vand­ræðum með að ná inn manni að óbreyttu en fylgi þess flokks mælist 4,2 pró­sent.

Síðasti flokk­ur­inn til að kom­ast á blað er svo Sós­í­alista­flokkur Íslands með 3,4 pró­sent fylgi.

Ef kosið yrði í dag myndu því allt að átta pró­sent atkvæða falla niður dauð, sem myndi ýkja nið­ur­stöðu þeirra sjö flokka sem kosnir yrðu á þing umfram fylgi.

Búast má við því að kosið verði næst til Alþingis eftir rúmt ár, eða vorið 2021. Enn á þó eftir að taka loka­á­kvörðun um hvenær kjör­dagur verður.

Þjóð­ar­púls­inn er net­könnun sem Gallup gerði dag­ana 3. jan­úar til 2. febr­úar 2020. Heild­ar­úr­taks­stærð var 8.678 og þátt­töku­hlut­fall var 51,8 pró­sent. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,2-1,4 pró­sent. Ein­stak­lingar í úrtaki voru handa­hófs­valdir úr Við­horfa­hópi Gallup.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár