Refafjölskylda á hrakhólum vegna ferðamanna með stórar myndavélalinsur

Það er eitt­hvað á seyði meðal ref­anna í friðland­inu á Horn­ströndum. Í fyrra voru óðul færri en venju­lega, got sjald­gæfari og yrð­lingar fáséð­ari en áður. Þrjár skýr­ingar þykja lík­leg­astar. Ein þeirra snýr að ferða­mönnum.

Refur á Hornströndum.
Refur á Horn­ströndum.

Í mars benti ekk­ert til ann­ars en að ref­irnir á Horn­ströndum ættu hefð­bundið sumar fram undan. Dýrin virt­ust heil­brigð í til­huga­líf­inu og eftir norð­an­rok báru þau í land fugla sem virt­ust hafa rot­ast í brim­inu. Þó svart­fugl hafi verið seinn í bjargið var fýll sestur upp og rita komin að björg­unum og reiðu­búin að setj­ast upp fljót­lega.

Annað átti eftir að koma á dag­inn.

Viðkoma refa á Horn­ströndum var með slakasta móti árið 2019. Óðul voru færri en venju­lega, got sjald­gæfari og yrð­lingar fáséð­ari en áður. Þetta kemur fram í skýrslu Nátt­úru­fræði­stofn­unar Íslands um vöktun refa á Horn­ströndum árið 2019 sem Ester Rut Unn­steins­dóttir spen­dýra­vist­fræð­ingur ritar.

En hvað kom fyrir ref­ina? Að því er fram kemur í skýrsl­unni bein­ist grunur að þremur meg­in­þáttum: Auknum áhuga og við­veru ferða­manna við greni á við­kvæmu tíma­skeiði, breyt­ingum í fæðu­fram­boði vegna ástands­breyt­inga hjá stofnum bjarg­fugla og í þriðja lagi að mengun fæðu, til dæmis vegna kvika­silf­urs.

Eina innlenda landspendýrið

Refur eða mel­rakki eins og hann er stundum kall­aður er eina inn­lenda land­spen­dýrið á Íslandi. Tegundin er í útrým­ing­ar­hættu á hinum Norð­ur­lönd­unum. Í íslenska stofn­inum hefur refum fækkað um 19% á síð­ustu 15 árum.

Refa­veiðar eru stund­aðar um allt land. Á Horn­ströndum hefur ref­ur­inn notið frið­helgi allt frá því að villi­dýra­lögin svo­nefndu voru sam­þykkt árið 1994. Í skýrsl­unni kemur fram að Horn­strandir séu mik­il­væg­asta griðland teg­und­ar­innar á Íslandi. Refir gegna mik­il­vægu hlut­verki sem toppa­f­ræn­ingjar í vist­kerf­inu þar. Þegar illa gengur hjá þeim getur það bent til hnign­unar hjá bráð­ar­teg­undum.

En á Horn­ströndum fara fram fáar reglu­bundnar rann­sóknir á nátt­úru og dýra­lífi svæð­is­ins fyrir utan vett­vangs­ferðir sem Ester leiðir árlega.

Rannsóknir í þrjá áratugi

Sumarið 1999 var farið á 172 þekkt greni innan friðlands Horn­stranda til að athuga með ábúð og skrá stað­setn­ingu grenja. Hluti svæð­is­ins hafði áður verið heim­sóttur í sama til­gangi 1992, 1993 og 1998. Ester tók þátt í þessum ferðum og hefur æ síðan ein­beitt sér að athug­unum á refum á afmörk­uðum svæðum innan friðlands­ins, mest í Hornvík og nálægum víkum.

Hún leiddi rann­sókn­ar­leið­angra um svæðið í mars, júní og ágúst á síð­asta ári og er skýrslan byggð á nið­ur­stöðum þeirra ferða. Um ferð­ina í mars stendur m.a. í skýrsl­unni:

„Tvö mórauð dýr sáust strax fyrsta dag­inn, þau héldu til við húsin að Horni og var þetta sama par og árið áður. Undir lok vik­unnar kom svo að því að þau mök­uð­ust, fyrst á sjáv­ar­bakk­anum við húsin en svo færð­ist leik­ur­inn niður í fjöru. Þar voru þau föst saman í um það bil 2 klst. og það var snjó­bylur allan tím­ann.

Eftir mök­un­ina varð gjör­breyt­ing á hegðun beggja dýr­anna. Hann rölti niður að sjáv­ar­máli, tók upp fisk­haus og fór að éta hann þar en gaf henni ekki með sér. Þau fóru svo einn hring um heima­svæði sitt, upp með Miðfelli, með­fram brún­inni til suð­urs, svo niður aftur Múla­axlir og niður að sjó, með­fram fjör­unni og aftur upp. Þetta var eins og þau væru að merkja sér svæðið eða láta vita að þau væru búin að stað­festa.“

Í júní var ljóst að vetr­ar­æv­in­týri pars­ins hefði borið ávöxt og það sást með yrð­linga. En yrð­lingar voru hins vegar aðeins í tveimur grenjum í Horn­bjargi í stað fimm til sex að jafn­aði. Engir yrð­lingar voru í Inn­sta­dal en þar voru fimm full­orðin dýr saman á óðali sem er mjög óvenju­legt.

Af þeim sjö yrð­lingum sem voru á óðal­inu í Miðdal í júní voru aðeins fjórir eftir í ágúst. „Hjá par­inu á lág­lend­inu að Horni, þar sem voru sex yrð­lingar í júní, var einn yrð­lingur eftir í ágúst en sú fjöl­skylda var mjög þaul­setin af ferða­mönnum með stórar mynda­véla­linsur. Voru þau stöðugt á hrak­hólum og fluttu sig að minnsta kosti tvisvar um set, lík­lega vegna trufl­unar,“ stendur í skýrsl­unni.

Eitthvað kom upp á

Í skýrsl­unni kemur fram að erfitt sé að átta sig á því hvers vegna svo fá pör voru með yrð­linga í júní. Í mars hafi ekk­ert bent til ann­ars en að tímgun yrði með eðli­legu móti, dýrin virt­ust heil­brigð og fæða næg. „Svo virð­ist sem eitt­hvað hafi komið upp á meðan á með­göngu stóð, frá seinni hluta mars til maíloka.“

„En hvað getur skýrt mikil afföll yrð­linga yfir sum­arið?“ spyr skýrslu­höf­undur og heldur áfram:

„Á gren­inu uppi í Miðdal eru búsetu­úr­ræði góð, þar geta yrð­lingar falið sig víða og for­eldrar þurfa ekki að vera eins mikið á verði ef þeir verða fyrir ónæði. Þau misstu þó þrjá yrð­linga af sjö, þrátt fyrir að hafa stærra óðal og meira svæði til að afla fæðu en áður. For­eldrar yrð­ling­anna niðri á lág­lend­inu að Horni misstu fimm yrð­linga af sex þrátt fyrir að þau væru bæði harð­dug­leg við veiðar og að færa björg í bú.“

Ester skrifar að ljóst sé að mikið álag hafi verið á þessum dýrum, sér­stak­lega vegna ljós­mynd­ara sem dvöldu löngum stundum mjög nálægt yrð­ling­unum. Á þeim 10 árum sem fylgst hefur verið með sam­skiptum ferða­manna og refa hefur komið í ljós að við­vera fólks við greni getur orðið til þess að mæður mjólka ekki yrð­lingum sínum nægi­lega oft og báðir for­eldrar koma sjaldnar heim með fæðu. „Þetta gæti verið ein orsök þess að lífslíkur yrð­linga að sum­ar­lagi eru lágar á þessu svæði.“

Þrjá metra frá greni í tíu klukkutíma

Í skýrsl­unni er haft eftir fólki sem hefur sum­ar­dvöl á svæð­inu að síð­asta sumar hafi óvenju margir gestir með stórar mynda­vél­ar­linsur verið ferjaðir í land. Samkvæmt einni frá­sögn sem vitnað er til var hópur ljós­mynd­ara í um þrjá metra frá einu greni í tíu klukku­stundir sam­fellt.

Ný stjórn­unar- og vernd­ar­á­ætlun fyrir Horn­strandir tók gildi á síð­asta ári. Í þeim eru strangar reglur settar þeim sem vinna við gerð heim­ilda­mynda um dýra­lífið. Sækja þarf um leyfi til að kvik­mynda nærri greni og þeir sem fá það þurfa að vinna undir eft­ir­liti. „Sömu ströngu reglur þyrftu að gilda fyrir aðra ferða­menn sem aug­ljós­lega koma á svæðið til að taka myndir af refum,“ skrifar Ester.

Birta myndir á samfélagsmiðlum

Haft hefur verið sam­band við fólk sem hefur birt myndir af refum á Horn­ströndum á sam­fé­lags­miðlum. Í skýrsl­unni segir að flestir hafi svarað og lýst því að þeir virði nátt­úru og dýra­líf en átti sig kannski ekki á því að fleiri gætu fylgt þeirra dæmi. Ester bendir á að þær leið­bein­ingar sem settar hafa verið leyfi aðgang allt að 40 metra frá greni og við­veru í allt að 40 mín­útur. „Ljóst er að þetta er mikil nálægð og langur tími, sér­stak­lega þegar margir koma í kjöl­farið til að sjá sömu dýrin. Þess vegna er mik­il­vægt að dýrin fái frið yfir kvöld og nætur til að sinna afkvæmum sínum, hvíl­ast og fara til veiða.“

Í skýrsl­unni segir einnig að ef nei­kvæð áhrif mælist áfram meðal refa í Hornvík þurfi að beita öðrum aðferðum en hingað til, „því mik­il­vægt er að þar sé sann­ar­lega stunduð sjálf­bær nátt­úru­skoðun og ferða­þjón­usta“. Rík ástæða sé til að koma á heild­stæðri vöktun á líf­ríki og vist­kerfum innan Horn­stranda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár