Trudeau: Líklega var vélin skotin niður

For­sæt­is­ráð­herra Kanada hefur kraf­ist þess að ítar­lega verði rann­sakað hvernig á því stóð, að 737 800 far­þega­þota hrap­aði til jarðar með þeim afleið­ingum að allir um borð lét­ust, þar á meðal 63 Kanada­menn.

Justin Trudeau, for­sæt­is­ráð­herra Kanada, segir að lík­lega hafi 737 800 vél Ukraine International verið skotin niður af loft­varn­ar­kerfi íranska hers­ins, en allir um borð, sam­tals 176, lét­ust þegar vélin hrap­aði til jarðar skömmu eftir flug­tak.

AP greindi frá þessu í dag.

Í vél­inni voru meðal ann­ars 63 Kanada­menn.

Trudeau hefur heitið því að öllum steinum verði velt við, í rann­sókn á mál­inu, og ætla yfir­völd í Kanada að standa fyrir sinni eigin rann­sókn, en einnig vinna með þeim sem koma að rann­sókn mála í Íran og í Banda­ríkj­unum.

Atburð­ur­inn var nær sam­hliða því að Íran skaut flug­skeytum að tveimur her­stöðvum Banda­ríkj­anna í Írak, í hefnd­ar­skyni fyrir morðið á Qassem Soleimani, æðsta hers­höfð­ingja Íran, en það var Donald Trump Banda­ríkja­for­seti sem fyr­ir­skip­aði dróna­árás á Soleimani.

Enginn lét lífið í árás­unum Íran, en yfir­völd þar í landi sögðu að um hefnd­ar­að­gerð væri að ræða. Banda­ríkja­for­seti sagði í ávarpi til þjóð­ar­innar í gær, að hann vildi ekki stríð við Íran og að spennan hefði nú minnkað í sam­skiptum ríkj­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár