Hlutur Helga Magnússonar í Fréttablaðinu lækkar niður í 82 prósent

Tilkynnt hefur verið um breytt eign­ar­hald á útgáfu­fé­lagi Frétta­blaðs­ins og tengdra miðla. Rit­stjóri Frétta­blaðs­ins á fimm pró­sent hlut í útgáfu­fé­lag­inu.

Hlutur Helga Magn­ús­sonar fjár­festis í eig­anda Torgs, útgáfu­fé­lags Frétta­blaðs­ins og tengdra miðla, hefur minnkað úr 100 pró­sent niður í 82 pró­sent.

[links]Aðrir eig­endur eig­anda útgáfu­fé­lags­ins, félags­ins HFB-77 ehf., eru Sigurður Arn­gríms­son, fyrr­ver­andi aðal­eig­andi Hring­brautar og við­skipta­fé­lagi Helga til margra ára, með tíu pró­sent hlut, Jón G. Þórisson, annar rit­stjóri Frétta­blaðs­ins, með fimm pró­sent hlut, og Guð­mundur Örn Jóhanns­son, fyrr­ver­andi sjón­varps­stjóri Hring­brautar og nú fram­kvæmda­stjóri sölu, mark­aðs­mála og dag­skrár­gerðar hjá Torgi.

Þetta kemur fram í upp­færðum upp­lýs­ingum um eign­ar­hald Torgs á vef Fjöl­miðla­nefndar.

Tilkynnt hafði verið um að Sigurður, Jón og Guð­mundur myndu koma inn í hlut­hafa­hóp Torgs 18. októ­ber síð­ast­lið­inn, sam­hliða því að greint var frá því að Helgi hefði eign­ast allt hlutafé í Torgi og að til stæði að renna Hring­braut inn í útgáfu­fé­lagið. Við sama til­efni var til­kynnt að Jón hefði verið ráð­inn annar rit­stjóri Frétta­blaðs­ins við hlið Davíðs Stef­áns­sonar.

[adspot]Á þeim tíma var þó ekki greint frá því hvernig eigna­skipt­ingin yrði milli manna sem mynd­uðu nýja hlut­hafa­hóp­inn. Nú liggur það fyrir.

Hafa keypt upp aðra fjölmiðla

Sam­keppn­is­eft­ir­litið heim­il­aði sam­run­a Hring­brautar og Frétta­blaðs­ins í lok októ­ber þar sem Hring­braut þurfti á auknum fjár­­munum að halda til að styrkja rekstur sinn, ann­ars myndi fjöl­mið­ill­inn ekki geta starfað áfram. Í kjöl­farið var starf­semi Hring­brautar flutt í höf­uð­­stöðvar Frétta­­blaðs­ins á Hafn­­ar­­torg­i.

Á fimmtu­dags­kvöldið 13. des­em­ber greindi Kjarn­inn frá því að Torg, útgáfu­fé­lag Frétta­blaðs­ins, væri að kaupa DV og tengda miðla af Frjálsri fjöl­miðl­un. Útgáfu­fé­lögin stað­festu svo kaupin dag­inn eft­ir. Ástæðan fyrir kaup­unum var sögð vera erfitt rekstr­ar­um­hverfi, en Frjáls fjöl­miðlun hefur verið rekin með miklu lausu tapi frá því að félagið var stofnað til að kaupa DV og tengdra miðla árið 2017. Á fyrstu 16 mán­uð­unum til­veru sinnar tap­aði fjöl­miðla­sam­steypan 283,6 millj­ónum króna. Ekki liggur enn fyrir hversu mikið tapið verður á þessu ári en skráður eig­andi Frjálsrar fjöl­miðl­unar, lög­mað­ur­inn Sig­urður G. Guð­jóns­son, sagði við RÚV í des­em­ber „rekst­ur­inn er mjög erf­iður[...]þetta er búið að vera rekið með tapi frá árinu 2017.“

Með kaup­unum á DV og tengdum miðlum er Torg orðið að einu stærsta einka­rekna fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár