Skúrkur eða stórmenni?

Gylfi Zoega, hag­fræði­pró­fessor, skrifar um kosn­inga­sigur Boris Johnson í Bret­landi. Greinin birt­ist fyrst í Vís­bend­ingu, viku­riti um efna­hags­mál og við­skipti.

Breski Íhalds­flokk­ur­inn sigr­aði í nýaf­stöðnum kosn­ingum í Bret­landi og hefur nú mik­inn meiri­hluta í neðri deild þings­ins þótt hann hafi hlotið minni­hluta atkvæða (43,6%). Flokk­ur­inn sigr­aði með því að lofa að taka Bretland út úr Evr­ópu­sam­band­inu (ESB) og með því að full­yrða að í kjöl­farið myndi hagur þjóð­ar­innar vænkast. Hér verður fjallað um orsakir kosn­inga­sig­urs­ins, stefnu flokks­ins og reynt að spá fyrir um fram­tíð­ar­þróun mála í Bret­landi.

Stefna Íhalds­flokks­ins hefur tekið miklum breyt­ingum á und­an­förnum árum. Í stað þess að leggja meg­in­á­herslu á einka­rekstur, lága skatta, frjáls utan­rík­is­við­skipti og alþjóð­lega sam­vinnu þá er nú sagt að flokk­ur­inn túlki „vilja fólks­ins“ sem ekki sé skyn­sam­legt að fara gegn. Þannig var í stefnu­ræðu stjórn­ar­innar lögð áhersla á lúta vilja fólks­ins með því að styrkja heil­brigð­is­kerfið og lög­gæslu. Bretland gengur einnig úr Evr­ópu­sam­band­inu til þess að fara að „vilja fólks­ins“ sem ákvarð­aður var í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni árið 2016 enda þótt rúm­lega 48% þeirra sem greiddu atkvæði hafi verið á móti útgöngu. Hinn nýji Íhalds­flokkur sækir þannig umboð sitt beint til fólks­ins, túlkar óskir þjóð­ar­innar og hryndir vilja hennar í fram­kvæmd.

Orsakir og afleiðingar

Orsakir sig­urs­ins og þeirra miklu breyt­inga sem hafa átt sér stað innan Íhalds­flokks­ins má rekja til nokk­urra þátta sem hafa dregið úr trausti á hefð­bundnum stjórn­mála­flokkum og emb­ætt­is­mönnum. Þannig er sterk fylgni á milli van­trausts á stjórn­mála­stétt­inni og vilja til útgöngu úr ESB í Bret­landi og reyndar einnig ann­ars staðar í ESB. Svipaða sögu má segja um Verka­manna­flokk­inn. Minna traust á hefð­bundnum stjórn­mála­flokkum og stjórn­mála­mönnum getur útskýrt að ein­hverju leyti af hverju hann hefur færst langt til vinstri undir stjórn Jeremy Corbyn.

Ástæður van­trausts­ins eru marg­vís­legar. Hér kemur fyrst í huga mis­skipt­ing tekna og auðs innan lands en auð­legð Lund­úna­borgar sker í augu þeirra sem búa í Norður Englandi við krapp­ari kjör. Hægur kaup­mátt­ar­vöxtur bætir ekki úr skák. Kaup­máttur lækk­aði frá fjár­málakrepp­unni 2008 fram í lok árs 2014 og hefur aðeins hækkað lít­il­lega síðan. Aðhalds­að­gerðir rík­is­stjórnar sem komst til valda um vorið 2010 bitn­uðu illi­lega á fátæk­ustu hér­uðum Englands og urðu þannig til þess að magna óánægj­una enn meira. Og margir ótt­ast að inn­flytj­endur ógni menn­ingu og siðum inn­fæddra og inn­flytj­endur taki jafn­vel störfin af þeim sem eru fyrir. Til sam­ans verður þetta til þess að kjós­endur treysta ekki lengur stjórn­mála­mönnum og stjórn­mála­flokkum sem eru á miðju stjórn­mál­anna fyrir hags­munum sínum.

Við þetta bæt­ist að aukin alþjóða­við­skipti og tækni­fram­farir ógna störfum, þau verða þá mörg mögu­lega flutt til ann­arra landa í fram­tíð­inni eða lögð af með bættri tækni. Ótti fólks við fram­tíð­ina hefur auk­ist.

Fjár­málakreppur hafa sögu­lega aukið óánægju með ráð­andi stéttir og minnka þá traust enn meira en aðrar kreppur. Ástæðan er sú að þær eru frá­brugðnar öðrum kreppum vegna þess að það kenna má ein­stak­lingum um þær: Banka­mönnum sem hafa gert mis­tök og jafn­vel hagn­ast á þeim sjálfir en látið skatt­greið­endur greiða fyrir tapið; emb­ætt­is­mönnum sem hafa brugð­ist því hlut­verki að hafa eft­ir­lit með bönkum og öðrum fjár­mála­stofn­unum og stjórn­málm­önnum sem mörk­uðu stefn­una, einka­væddu banka í sumum til­vikum og réðu emb­ætt­is­menn­ina til starfa. Fjár­málakreppur verða þannig til þess að minnka mikið traust til stofn­ana sam­fé­lags­ins og ráð­andi stétta og búa til frjóan jarð­veg fyrir pop­u­l­isma eða lýð­hygli.

Fjár­málakreppan í Bret­landi og Banda­ríkjum bjó til halla­rekstur á rík­is­sjóði. Í Bret­landi kall­aði halla­rekst­ur­inn á aðhalds­að­gerðir eftir árið 2010 sem bitn­uðu illa einmitt á þeim hér­uðum sem síðar reynd­ust mest fylgj­andi útgöngu úr ESB. Þannig hafði fjár­málakreppan mögu­lega einnig haft óbein áhrif með því að auka á óánægju og þar með stuðn­ing við brott­hvarf lands­ins úr ESB. Nið­ur­skurður rík­is­út­gjalda í Bret­landi á árunum 2010-2014 var á bil­inu 7-10% af vergri lands­fram­leiðslu á ári og mik­ill hluti nið­ur­skurð­ar­ins kom fram í lægri fram­lögum til sveit­ar­fé­laga. Fram­lögin lækk­uðu um tæp­lega helm­ing fyrir mörg sveit­ar­fé­lögin, mest hjá þeim sem höfðu lægstar tekjur á mann. Nicholas Crafts hefur sýnt fram á að fylg­is­aukn­ing Breska Sjálf­stæð­is­flokks­ins (UKIP) var mest þar sem nið­ur­skurður útgjalda hafði verið mestur. Vel­gengni UKIP varð síðan til þess að Íhalds­flokk­ur­inn boð­aði þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu árið 2016. Leiða má að því getum að í ljósi þess hve sigur aðskiln­að­ar­sinna (e. lea­vers) var naumur í kosn­ingum um útgöngu úr ESB í júní 2016 að nið­ur­staðan hefði farið á hinn veg­inn ef ekki hefði verið lagt í nið­ur­skurð rík­is­út­gjalda.

Í Banda­ríkj­unum hefur Michael Lewis einnig haldið því fram að kosn­inga­sigur Donald Trump árið 2016 hafi verið afleið­ing af fjár­málakrepp­unni vegna þess að kjós­endur hafi sann­færst um að fjár­mála­kerfið væri spillt og það hafi gert þá til­búna til þess að kjósa óhefð­bund­inn stjórn­mála­mann sem for­seta sem tal­aði máli þeirra.

Gömul saga og ný

Áður en lengra er haldið er nauð­syn­legt að benda á að und­ir­liggj­andi orsakir van­trausts­ins eru ekki nýsprottnar þótt hinar póli­tísku afleið­ingar séu sum­part ann­ars konar.

Tækni­fram­farir í Bret­landi á fyrri hluta 19. aldar urðu þess vald­andi, svo dæmi sé tekið, að störf í vefn­að­ar­iðn­aði lögð­ust af og störfum í land­bún­aði fækk­aði. Það var hag­fræð­ing­ur­inn David Ricardo sem lýsti hag­kvæmni utan­rík­is­við­skipta en einnig nauð­syn þess að bæta upp tjón þeirra sem hlytu skaða af. Þessar sömu raddir heyr­ast um þessar mundir. Í fram­hald­inu var brugð­ist við þessum ójöfn­uði með því að fjölga þeim sem hefðu kosn­inga­rétt. En með tíð og tíma urðu til störf í iðn­aði í borgum Bret­lands sem bættu lífs­kjör almenn­ings. Aukinn hag­vöxtur á síð­ari hluta 19. aldar skap­aði aukna sátt í sam­fé­lag­inu.

Í lok 19. aldar ógn­aði erlend sam­keppni inn­lendum atvinnu­greinum. Þegar breskur iðn­aður fann fyrir sam­keppni frá Þýska­landi og Banda­ríkjum þá var þrýst á að taka upp vernd­ar­stefnu fyrir inn­lendan iðnað, leggja á inn­flutn­ings­tolla. Feður tveggja for­sæt­is­ráð­herra gengu þar hart fram, þeir Randolph Churchill og Joseph Chamberlain. Sá síð­ar­nefndi vildi leggja tolla á inn­flutn­ing og nota tekj­urnar til þess að fjár­magna heil­brigð­is­þjón­ustu og mennta­þjón­ustu. Mál­flutn­ingur Chamberlains minnir sum­part á mál­flutn­ing aðskiln­að­ar­sinna um þessar mundir – að iðn­að­ar­borg­irnar í norðri ættu undir högg að sækja vegna ósann­gjarnrar sam­keppni frá lág­launa­löndum á meðan London blómstr­aði. Chamberlain var enda fæddur og bjó í iðn­aðra­borg­inni Birming­ham og var borg­ar­stjóri þar um tíma. Trygg­inga­gjald var lagt á vinn­andi fólk og tekj­unum varið til þess að greiða fyrir sjúkra­trygg­ingar og elli­líf­eyri .

Svo­kall­aður Fabian félags­skapur, sem hafði sem félaga enga aðra en H.C. Wells og George Bernard Shaw innan borðs, barð­ist fyrir umbótum sem gætu bæði aukið fram­leiðni starfs­fólks og jöfnuð með lág­marks­launum og bættri heilsu­gæslu. Þeir beittu sér einnig fyrir stofnun Verka­manna­flokks­ins. Þær hug­myndir sem þarna komu fram áttu síðar eftir að verða grunn­ur­inn að breska verl­ferð­ar­kerfi William Bever­idge eftir lok síð­ari heims­styrj­aldar.

Við getum því litið til baka og sagt að svip­aðar aðstæður hafi verið fyrir hendi í Bret­landi á síð­ustu öldum en að það hafi tek­ist að lækja óánægju­raddir og bæta lífs­kjör allra þjóð­fé­lags­þegna meðal ann­ars með því að koma á fót vel­ferð­ar­kerfi en við­halda frelsi í við­skiptum og alþjóð­legu sam­starfi og snú­ast ekki gegn minni­hluta­hópum. Hag­vöxtur kemur svo til bjargar og lyftir öllum bátum. Það sem er frá­brugðið nú um þessar mundir eru við­brögð stjórn­mála­stétt­ar­innar sem virð­ast við fyrstu sýn vera ólík­legri til þess að örva hag­vöxt og jafna dreif­ingu tekna og auðs, ein­kenn­ast fremur af lýð­skrumi og blekk­ingum.

Viðbrögðin nú

Styrkur lýð­ræðis og mark­aðs­hag­kerfis í Bret­landi síð­ustu tvær aldir ber vitni um styrkar stofn­anir lýð­ræðis og rétt­ar­ríkis og einnig að ein­hverju leyti ábyrgð­ar­kennd stjórn­mála­manna. Í öðrum ríkjum þar sem stofn­anir eru ekki eins sterkar hefur umrót stjórn­mál­anna oft haft slæmar afleið­ingar fyrir lýð­ræði og efna­hags­mál. Stjórn­ar­far Suður Amer­íku­ríkja hefur þannig ein­kennst af lýð­hygli en hún er þá afleið­ing ójafnrar tekju­skipt­ingar, efna­hags­legs óör­yggis og lélegra lífs­kjara almenn­ings. Einnig má sjá ein­kenni lýð­hygli í ýmsum Evr­ópu­ríkjum, jafn­vel hér á landi. Núver­andi stjórn­ar­far í Bret­landi og Banda­ríkj­unum ber merki lýð­hygli.

Í stjórn­mála­fræði hefur lýð­hygli verið skil­greind á eft­ir­farnadi hátt. Í fyrsta lagi er gerður grein­ar­munur á eigin „þjóð“ og ein­stak­lingum af öðru þjóð­erni. Það er þá breyti­legt frá einu landi til ann­ars hvernig „þjóðin“ er skil­greind en oft er brugðið á það ráð að finna hópa sem ekki til­heyra þjóð­inni og kenna þeim um vanda­mál hennar. Í Bret­landi er þá talað um inn­flytj­endur frá Evrópu, í Banda­ríkj­unum um inn­flytj­endur frá Mexíkó og Mið­aust­ur­löndum, o.s.fr. Þannig er eitt meg­in­ein­kenni lýð­hygli að skil­greina bar­áttu á milli „okkar“ og „hinna“, hverjir svo sem það eru. Í öðru lagi er áhersla ekki lögð á stjórn­mála­flokk sem sam­tök fólks heldur er leið­togi flokks­ins í hávegum hafður og vilji hans er vilji flokks­ins og skil­greinir hags­muni þjóðar. Repúblikana­flokk­ur­inn er þannig fall­inn í skugg­ann af leið­toga sínum og hið sama má segja um breska Íhalds­flokk­inn. Í þriðja lagi er gert lítið úr alþjóð­legu sam­starfi og alþjóða­stofn­unum. Þess í stað er full­yrt að þjóðin geti gert betur ef hún dregur sig út úr þeim án þess að það sé útskýrt nánar. Einnig er mörgum inn­lendum stofn­unum sýnd van­virð­ing; fjöl­miðlum, fjár­mála­kerfi, háskólum, og sömu­leiðis við­teknum stað­reyndum eins og um hag­kvæmni utan­rík­is­við­skipta, mik­il­vægi aða­halds í rík­is­fjár­málum eða hlýnun jarðar. Það er hyggju­vitið sem ræður en ekki skoð­anir og nið­ur­stöður fræð­inga.

Eitt ein­kenni til við­bótar er að skil­greina „elítu“ fólks innan lands og fara gegn henni og ráðum hennar. Þetta geta verið stjórn­mála­menn í hef­bundnum flokkum, emb­ætt­is­menn, vís­inda­menn, banka­menn o.s.fr. Gefið er í skyn að almenn­ingur geti tekið betri ákvarð­anir og skyn­sam­legri, það sé heil­brigð skyn­semi almenn­ings sem trompi sér­fræð­ingum. Þannig sagði Michael Gove, einn for­ingi íhalds­manna í aðdrag­anda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um útgöngu úr ESB að almenn­ingur væri búinn að fá nóg af sér­fræð­ingum.

Pop­ul­ískir stjórn­mála­menn leggja áherslu á bein tengsl við kjós­endur. Þeir vilja fremur þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur en full­trúa­lýð­ræði og nýta sér gjarnan nýja tækni til þess að ná teng­ingu við kjós­endur. Á 19. öld not­uðu þeir lestir til þess að ferð­ast á milli borga og bæja í Banda­ríkj­unum, fas­istar á 20. öld lögðu áherslu á að allir ættu útvarp og Banda­ríkja­for­seti sendir fjölda Twitter skeyta á hverjum degi.

Það sem gerir lýð­hygli frá­brugðna þeim við­brögðum stjórn­mála­stétt­ar­innar á 19. öld sem lýst var hér að ofan er að erfitt er að sjá hvernig hún getur örvað hag­vöxt, bætt lífs­kjör, jafnað tæki­færi, skapað efna­hags­legt öryggi o.s.fr. Hún er einnig hættu­leg vegna þess að ekki er lögð áhersla á mann­rétt­indi, við­skipta­frelsi, frum­kvæði ein­stak­linga, lög og rétt, heldur er áherslan á beit­ingu rík­is­valds í þágu „þjóð­ar­hags­muna“ eins og fámennur hópur skil­greinir þá.

Stjórn­mál í anda lýð­hygli auka sundr­ungu í sam­fé­lögum með því að skil­greina suma hópa fólks sem óvini, þ.e.a.s. mis­muna fólki, og kæfa þær raddir sem ekki henta stjórn­völdum meö þeim rökum að ein­ungis rík­is­stjórnin viti hverjir hags­munir þjóðar séu. Þegar illa gengur er öðrum kennt um.

Boris og Donald

Það eru fá betri dæmi um pop­u­lista en núver­andi for­seti Banda­ríkj­anna. Stjórn­mála­bar­átta hans snýst mikið til um eigin per­sónu, hann grefur undan alþjóða­sam­starfi, segir inn­flytj­endum að fara heim, og vill setja Banda­ríkin ofar öllum öðrum þjóðum. Hann gagn­rýnir fjöl­miðla, við­ur­kennir ekki stað­reyndir og reynir kerf­is­bundið að laska alþjóða­stofn­anir eins og ESB og NATO. Halli á rík­is­sjóð Banda­ríkj­anna er nú um 1.000.000.000.000 Banda­ríkja­dala eða ein trilljón doll­ara í upp­sveiflu efna­hags­lífs, sem mun gera við­brögð við næstu kreppu erfið, og tollar eru hækk­aðir og lækk­aðir á víxl til þess að eyða við­skipta­halla Banda­ríkj­anna sem stafar þó fyrst og fremst af ónógum sparn­aði þjóð­ar­innar sjálfrar, þar með miklum halla á rekstri rík­is­sjóðs.

Boris gengur ekki eins langt en byggir mestan sinn mál­flutn­ing á útgöngu Breta úr ESB. Eftir kosn­inga­sig­ur­inn segir hann að rík­is­stjórn sín verði „stjórn fólks­ins“ sem ber sterkan keim af lýð­hygli.

Vandinn við stjórn­mál þeirra félaga er sá að ekki er lík­legt að stjórn­ar­stefnan bæti almenna vel­ferð og skapi sátt. Þvert á móti er óánægja stórra hópa kjós­enda notuð til þess að búa til enn meiri sundr­ungu og heift án þess að neinar lausnir séu í boði. Stað­reyndin er sú að inn­flytj­endur hafa eflt bæði efna­hags­líf Bret­lands og Banda­ríkj­anna. Sjúkra­hús í Bret­landi gætu ekki verið án inn­flytj­enda frá Evrópu og þessir inn­flytj­endur eru mátt­ar­stólp­inn í mörgum öðrum greinum. Lágar tekjur í Norður Englandi stafa ekki af því að störf hafi flust til meg­in­lands Evrópu, þvert á móti er iðn­aður drif­inn áfram af fjár­fest­ingu evr­ópskra fyr­ir­tækja (bíla­iðn­aður gott dæmi) og aðgangi að sam­eig­in­legum mark­aði Evrópu. Og ekk­ert af því sem rík­is­stjórn Boris Johnson setur í stefnu­yf­ir­lýs­ingu sína væri ekki einnig hægt að fram­kvæma innan ESB. Það er hægt að fjölga lög­reglu­mönnum innan aðild­ar­ríkja sam­bands­ins, verja meira fé í sjúkra­hús og herða refsi­dóma fyrir hryðju­verk. En í mál­flutn­ingi for­sæt­is­ráð­herr­ans eru þessi mál tengd við brott­hvarf úr ESB þótt í raun sé teng­ingin engin. Stjórn­mál eru blekk­ing­ar­leikur.

Lokaorð

Bretland hefur áður þurft að kljást við afleið­ingar ójöfn­uðar, efna­hags­legs óör­yggis og erlendrar sam­keppni. Með aðgerðum stjórn­valda á 19. og 20. öld tókst að koma á meiri sátt en nú er hættan sú að stjórn­völd verði til þess að magna ósætti með því að kljúfa þjóð­ina niður eftir þjóð­erni (Skotar á móti Eng­lend­ingum, Norður Írar á móti Norður Írum), ald­urs­hópum og búsetu án þess að hafa lausnir á þeim vanda­málum sem nauð­syn­legt er að leysa, jafna tæki­færi og minnka fátækt í þeim hér­uðum sem verst eru sett.

En nú getur verið að Boris Johnson vendi kvæði sínu í kross og taki upp hefð­bundn­ari gildi og áherslur íhalds­manna um við­skipta­frelsi, minna reglu­verk, traust lagaum­hverfi, halla­laus fjár­lög og efna­hags­líf þar sem frum­kvöðlar þríf­ast og hætti að deila og sundra, svíkja og blekkja. Hann gæti bætt við því mark­miði að jafna tæki­færi svo að mögu­leikar fólk fari ekki jafn­mikið eftir ríki­dæmi og menntun for­eldra eins og nú er. Þá mundi hagur Bret­lands vænkast. Fyrr mun ekki koma í ljós hvort hann er skúrkur eða stór­menni.

Donald Trump mun hins vegar ekki breyt­ast.

Greinin birt­ist fyrst í Vís­bend­ingu. Hægt er að ger­ast áskrif­andi hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár