Vill stytta einangrun hunda og katta í tvær vikur

Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra hefur lagt til að ein­angrun hunda og katta, sem fluttir eru inn til lands­ins, verði stytt úr fjórum vikum í 14 sól­ar­hringa.

Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, hefur lagt til breyt­ingar á inn­flutn­ings­kröfum fyrir hunda og ketti. Hann leggur meðal ann­ars til að ein­angrun dýr­anna hér á landi verði stytt úr fjórum vikum í tvær vikur.

Þetta kemur fram í reglu­gerð­ar­drögum ráð­herra sem birt hafa verið í sam­ráðs­gátt stjórn­valda.

Heimasóttkví fyrir hjálparhunda

[links]Enn fremur er lagt til að und­ir­bún­ingur fyrir almennan inn­flutn­ing fari að mestu fram í heima­landi eða útflutn­ings­landi dýr­anna, það er hvað varða bólu­setn­ingar, rann­sóknir, með­höndlun og heil­brigð­is­skoðun.

Í drög­unum eru hjálp­ar­hundar jafn­framt sér­stak­lega skil­greindir en þeir skulu sæta sömu inn­flutn­ings­skil­yrðum og aðrir hundar að því und­an­skildu að 14 sól­ar­hringa ein­angrun geti farið fram í heima­sótt­kví undir eft­ir­liti Mat­væla­stofn­unar.[adspot]

Breyt­ing­ar­til­lög­urnar byggja á áhættu­mati frá Preben Willeberg, fyrrum yfir­dýra­lækni Dan­merkur, og sér­fræði­á­liti Mat­væla­stofn­unar en í frétt Stjórn­ar­ráðs­ins um reglu­gerð­ar­drögin segir að ekki sé litið svo á að verið sé að slaka á kröfum heldur er öðrum aðferðum beitt til þess að halda uppi sömu eða jafn­vel meiri vörnum gegn smit­sjúk­dómum en nú er gert.

Hægt er að senda inn umsagnir um reglu­gerð­ina til 3. jan­úar næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár