Verkin vega þyngra en orðin

Andrés Magn­ús­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka versl­unar og þjón­ustu, svarar hér grein Ólafs Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóra Félags atvinnu­rek­enda.

Við lestur greinar sem fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda (FA) skrif­aði í Kjarnann í gær kemst maður ekki hjá því að álykta sem svo að hann hafi fundið til sviða við lestur greinar minnar í Morg­un­blað­inu 19. des­em­ber sl. Meðal ann­ars sakar fram­kvæmda­stjór­inn mig um „að skrifa gegn betri vit­und“, fara með „rök­leysu“ og jafn­vel aðhyll­ast laga­breyt­ingar sem muni leiða af sér vöru­skort. Í grein­inni reifar fram­kvæmda­stjór­inn efni umsagna FA um umrætt laga­frum­varp ráð­herra um breyt­ingu á ýmsum laga­á­kvæðum um toll­kvóta fyrir inn­fluttar land­bún­að­ar­af­urðir og bendir á eitt og annað sem þar hafi komið fram máli sínu til stuðn­ings.

Hugs­an­lega var meg­in­efni greinar minnar frá 19. des­em­ber sl. ekki nógu skýrt í huga fram­kvæmda­stjór­ans og því tel ég rétt að koma útskýr­ingu á fram­færi.[adspot]

Það ætti öllum að vera ljóst að breyt­ingar á reglu­verki sem snertir búvöru­fram­leiðslu með einum eða öðrum hætti eru við­kvæmar og erf­iðar við­fangs. Hags­munir bænda og búgreina njóta jafnan ríks stuðn­ings meðal þing­manna. Af þeim sökum hafa verið tekin afar stutt skref í átt sem gagn­ast gæti neyt­endum. Það er ekki annað hægt en að ætla að þessu hafi fram­kvæmda­stjór­inn gert sér grein fyrir.

[links]Það væri hægt að eyða mörgum orðum í umfjöllun um hvort mik­ill munur sé á afstöðu FA og SVÞ til ein­stakra atriða laga­frum­varps ráð­herra. Til að mynda lýstu SVÞ einnig efa­semdum um nið­ur­stöðu starfs­hóps um úthlutun toll­kvóta land­bún­að­ar­ráð­herra og töldu til­lögu full­trúa Neyt­enda­sam­tak­anna mun betri en sú sem end­aði í frum­varp­inu. Þá hafa SVÞ jafn­framt lýst því yfir að árs­tíða­bundin og föst úthlutun toll­kvóta fyrir til­teknar vörur gæti ekki orðið óbreyt­an­leg og var­an­leg lausn. Slík umfjöllun eða sam­an­burður mundi hins vegar ekki bæta neinu við. Ástæðan er sú að grund­vall­ar­mun­ur­inn á afstöðu SVÞ og FA til laga­frum­varps ráð­herra birt­ist ein­fald­lega ekki í umsögnum eða annarri opin­berri umfjöllun heldur í gjörðum FA. Þrátt fyrir að FA hafi, líkt og SVÞ, síst talið frum­varpið galla­laust við­ur­kennir fram­kvæmda­stjór­inn það bein­línis í grein sinni að neyt­endur munu hið minnsta njóta tíma­bund­ins ávinn­ings af því breytta útboðs­fyr­ir­komu­lagi toll­kvóta sem nú hefur verið lög­fest. SVÞ taldi að með því væri stigið skref í rétta átt þó vissu­lega hefði skrefið mátt vera annað og stærra. Umsögn FA um frum­varpið verður í ljósi greinar fram­kvæmda­stjór­ans ekki skilin öðru­vísi en að félagið hafi alfarið hafnað því skrefi. Loka­hnykk­inn rak FA svo með þátt­töku í yfir­lýs­ingu sem fram­kvæmda­stjór­anum gat ekki dulist að mundi valda vatna­skilum. Enda fór svo að meiri hluti atvinnu­vega­nefndar setti fram til­lögur sem styttu skrefið enn meira en ráð­herra lagði upp með. Við það til­efni gaf fram­sögu­maður máls­ins, alþing­is­mað­ur­inn Halla Signý Krist­jáns­dóttir frá sér yfir­lýs­ingu þar sem eft­ir­far­andi kom m.a. fram:

„[...] und­ir­rituð full­yrðir að þær gagn­rýniraddir sem bár­ust frá ólíkum hags­muna­sam­tökum bænda, félagi atvinnu­rek­anda og neyt­enda­sam­tök­unum fengu fram­sögu­mann máls­ins til að taka í hand­brems­una en með seigl­unni og góðs stuðn­ings þing­flokks­ins náð­ist að koma þeim í höfn.“

Þrátt fyrir alla ágall­ana á laga­frum­varpi ráð­herra var það ein­dregin skoðun SVÞ að á heild­ina litið mundi sam­þykkt þess skila neyt­endum ábata. Mat ráð­herra var að sá ábat­inn gæti numið 240–590 millj­ónum króna á ári. SVÞ hafði ekki for­sendur til að rengja það mat og ekki verður séð að það hafi FA heldur gert. Slíkur ábati hefði vissu­lega ekki verið nein himna­send­ing en þó skref í rétta átt.

Nú hefur Alþingi fengið frum­varp­inu laga­gildi og virð­ist yfir­lýs­ing FA hafa átt ríkan þátt í því að neyt­enda­á­bat­anum var að miklu leyti varpað fyrir róða.

Það var í fram­an­greindu sam­hengi sem ég leyfði mér að vísa til svohljóð­andi kín­versks máls­háttar í grein minni hinn 19. des­em­ber sl.: „Það heyr­ist jafnan meira í því sem þú gerir en í því sem þú segir“. Í efn­is­sam­hengi grein­ar­innar var merk­ingin sú að það skiptir í raun ekki máli þó þú berj­ist opin­ber­lega fyrir til­teknum sjón­ar­miðum ef gjörðir þínar bera vott um að ann­ars­konar hags­munir ráði för.

Höfundur er fram­kvæmda­stjóri Samtaka versl­unar og þjón­ustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár