Héraðssaksóknari nær ekki að óbreyttu að sinna málum sem bíða rannsóknar

Alls bíða um 100 mál rann­sóknar hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara. Þar af eru um 60 skatta­mál. Núver­andi starfs­manna­fjöldi dugar ekki til að sinna þeim rann­sókn­ar­verk­efnum. Hann vantar fleiri starfs­menn til að geta sinnt fleiri stórum rann­sókn­ar­verk­efnum.

Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari.
Ólafur Þór Hauksson hér­aðs­sak­sókn­ari. Mynd: Hringbraut

Um hund­rað mál eru til rann­sóknar hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara, sem er umtals­vert meira en er að jafn­aði, þegar þau eru á bil­inu 50 til 70. Af þeim 100 málum sem bíða rann­sóknar eru um 60 skatta­mál. Núver­andi starfs­manna­fjöldi emb­ætt­is­ins dugar ekki til að sinna öllum þeim rann­sókn­ar­verk­efnum sem það þarf að takast á við.

Vegna þessa hefur Ólafur Þór Hauksson hér­aðs­sak­sókn­ari lagt til að starfs­mönnum á rann­sókn­ar­sviði emb­ættis hans verði fjölgað um sex í byrjun árs 2020. Hann leggur auk þess til að starfs­mönnum verði mögu­lega fjölgað um tvo til við­bótar síðar á árinu ef verk­efna­staða emb­ætt­is­ins gefur til­efni til.

Þetta kemur fram í minn­is­blaði sem Ólafur hefur sent dóms­mála­ráðu­neyt­inu og RÚV greinir frá í dag. Með­al­kostn­aður fyrir hvert starf sem við bæt­ist er áætl­aður 15 millj­ónir króna og því myndi fyrsta aukn­ingin kosta um 90 millj­ónir króna.

[adspot]Í frétt RÚV segir að til­efni minn­is­blaðs­ins sé umræðan um mál Samherja og áhrif þess á verk­efn­is­stöðu emb­ætt­is­ins, en rík­is­stjórnin sam­þykkti á fundi sínum 19. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn að huga sér­stak­lega að fjár­mögnun rann­sóknar hér­aðs­sak­sókn­ara í tengslum við rann­sókn emb­ætt­is­ins á Sam­herj­a­mál­inu.

Einnig fjallað um aukin umsvif vegna fjármálagreininga

Í minn­is­blað­inu er einnig fjallað um aukið álag vegna auk­inna umsvifa skrif­stofu fjár­mála­grein­inga lög­reglu, en hún hét áður pen­inga­þvætt­is­skrif­stofa og var færð frá rík­is­lög­reglu­stjóra yfir til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara sum­arið 2015. Þá starf­aði einn maður á skrif­stof­unni.

Í kjöl­far þess að alþjóð­legu sam­tökin Financial Action Task Force (FATF) gáfu pen­inga­þvætt­is­vörnum Íslands fall­ein­kunn í úttekt sem var birt í apríl 2018 var ráð­ist í miklar umbættur á starf­semi hennar og starfs­fólki fjölgað til muna. Fjár­munir hafa verið settir í að kaupa upp­lýs­inga­kerfi til að taka á móti og halda utan um til­kynn­ingar um pen­inga­þvætti og eft­ir­lit með starf­semi innan bank­anna sjálfra hefur verið eflt. Inn­leið­ing þess kerfis er þó ekki að fullu til­bú­in og ekki er búist við því að hún klárist fyrr en á næsta ári. Þrátt fyrir að gripið hafi verið til þess að styrkja skrif­stof­una, og ann­arra marg­hátt­aðra ráð­staf­ana til að bregð­ast við aðfinnslum FATF, end­aði Ísland á gráum lista sam­tak­ana yfir ríki sem eru ekki búin að gera nóg til að verja sig fyrir pen­inga­þvætti.

Í minn­is­blað­inu bendir Ólafur á að fjölgun starfs­manna og efl­ing skrif­stofu fjár­mála­grein­inga lög­reglu hafi leitt til fleiri grein­inga þaðan til rann­sókn­ar­sviðs emb­ætt­is­ins sem þurfi að rann­saka. Taka þurfti til­lit til þess við fjár­veit­ingar.

Það bendir til þess að aukið eft­ir­lit með pen­inga­þvætti hafi þegar skilað því að emb­ætti hérðassak­sókn­ara sé að rann­saka fleiri slík mál en áður, þegar eft­ir­litið var í molum.

Gátu ekki klárað hrunrannsóknir

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem emb­ættið hefur verið í þeirri stöðu að geta ekki sinnt rann­sóknum í málum þar sem grunur leikur á um refsi­verða hátt­semi.

Í októ­ber 2018 sagði Ólafur í við­tali á Hring­braut að nið­ur­skurð­ur­inn sem emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara, sem síðar var breytt í emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara, var lát­inn sæta árið 2013, upp á 774 millj­ónir króna, hafi gert það að verkum að ekki var hægt að klára rann­sókn á sumum málum tengdum hrun­inu. „Auð­vitað voru þarna nokkur mál sem við hefðum viljað fara betur ofan í sem við höfðum ekki „reso­urce-a“ til að taka.“

[adspot]Ólafur sagði þá að um 200 mál hefðu komið inn á borð emb­ætt­is­ins tengd hrun­inu. Af þeim hafi mörg verið sam­einuð og á end­anum fóru 35 í ákæru­ferli.

Aðspurður um þau mál sem röt­uðu ekki í ákæru­ferli sagði Ólafur að þar væru fyrst og fremst um mál að ræða sem emb­ættið taldi að myndu ekki ná inn í dóm. „Ann­ars vegar var þá hætt rann­sókn eða þá mál voru full­kláruð og svo tekið mat á því hvort þau stæð­ust sönn­un­ar­lega séð. Hvort það væru meiri lík­indi en minni að það yrði sak­fellt í þeim. Í nokkrum til­vikum var það þannig að það þótti ekki vera. Síðan í rest­ina voru farin að koma inn frek­ari sjón­ar­mið eins og til dæmis tíma­lengd­in, hvað þetta var búið að taka langan tíma. Þar kom inn í að við erum skorin svo­lítið hressi­lega niður strax á árinu 2013, sem gerir það að verkum að sumt að því sem við vorum með það náði ekki fram.“

Þegar Ólafur var spurður um það í þætt­inum hvernig það stæð­ist jafn­ræð­is­sjón­ar­mið að sumir ein­stak­lingar slyppu við ákæru, og mögu­lega dóm, vegna þess að rann­sókn á málum þeirra hefði tekið lengri tíma en hjá öðrum eða vegna þess að emb­ætt­inu skorti fjár­magn, svar­aði hann því til að það væri eðli­legt að velta þeirri spurn­ingu upp. „En í mjög mörgum til­vikum var um að ræða mál sem beindust að sömu aðilum og áður höfðu fengið dóma og jafn­vel voru komnir með full­nýtta refsiramma, upp í sex ár. Þannig að það var í lang­flestum til­vikum um slíkt að ræða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár