Kostnaður vegna losunar Íslands gæti hlaupið á hundruðum milljóna

Að öllum lík­indum mun losun Íslands á árunum 2013 til 2020 verða meiri en skuld­bind­ingar Kyoto-bók­un­ar­innar kveða á um. Kostn­aður íslenskra stjórn­valda vegna þessa gæti hlaupið á nokkur hund­ruð millj­ónum króna.

Flest bendir til þess að losun Íslands á árunum 2013 til 2020 verði meiri en skuld­bind­ingar Kyoto-bók­un­ar­innar kveða á um. Ísland þarf því að gera upp skuld­bind­ingar sínar með kaupum á svoköll­uðum los­un­ar­heim­ildum. Áætlaður kostn­aður vegna þessa eru nokkur hund­ruð millj­ónir króna.

Þetta kemur fram í svari umhverfis-og auð­linda­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Birni Leví Gunn­ars­syni, þing­manns Pírata, um losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá öku­tækjum og alþjóð­legar skuld­bind­ingar.

Ísland þarf að borga til að standast skuldbindingar

Ísland full­gilti Kyoto-bók­un­ina þann 23. maí 2002 en hún er bókun við ramma­samn­ing Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­breyt­ingar. Ríki geta gert þrennt til að standa við skuld­bind­ingar sínar sam­kvæmt Kyoto-bók­un­inni en það er að draga úr losun, binda kolefni úr and­rúms­lofti og kaupa heim­ildir ef upp á vantar til að stand­ast skuld­bind­ingar.

Ísland þarf ekki að gera upp skuld­bind­ingar sínar vegna los­unar Íslands á árunum 2013 til 2020 fyrr en árið 2023 en í svari umhverf­is­ráð­herra kemur fram að flest bendi til þess að Ísland þurfi að kaupa heim­ildir til að stand­ast skuld­bind­ingar sínar. Mögulegt er að kaupa heim­ildir beint af ríkjum sem hafa losað minna en skuld­bind­ingar þeirra kveða á um eða ein­ingar sem verða til vegna lofts­lagsvænna verk­efna, einkum í þró­un­ar­ríkjum.

Ráðherra segir að ekki sé hægt að segja nákvæm­lega til um hver kostn­aður Íslands gæti orðið því verð á ein­ingum/heim­ildum sé breyti­legt og ekki liggi fyrir hver heild­ar­losun Íslands verði á tíma­bil­inu.

Ráðu­neytið áætlar að miðað við núver­andi verð­lag gæti heild­ar­upp­hæðin hlaupið á nokkur hund­ruð millj­ónum króna fyrir tíma­bilið í heild. Það mat er þó sett fram með fyr­ir­vara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár