Birni Bjarnasyni falið að skrifa skýrslu um norrænt utanríkis- og öryggismálasamstarf

Birni Bjarna­syni, fyrr­ver­andi ráð­herra, hefur verið falið að skrifa nýja skýrslu um efl­ingu nor­ræns sam­starfs í utan­ríkis- og örygg­is­málum.

Á fundi nor­rænu utan­rík­is­ráð­herr­anna sem fram fór í dag var ákveðið að fela Birni Bjarna­syni, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra og mennta­mála­ráð­herra, að skrifa nýja skýrslu um efl­ingu nor­ræns sam­starfs í utan­ríkis- og örygg­is­málum. Við sama til­efni skrif­aði Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra undir sam­komu­lag við Noreg ann­ars vegar og við Danmörku og Færeyjar hins vegar um afmörkun land­grunns á Ægis­djúpi og sat fund nor­rænu þró­un­ar­mála­ráð­herr­anna.

Þetta kemur fram í frétt á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Í skýrsl­unni sem Björn hefur valist til að skrifa verða gerðar til­lögur um hvernig megi þróa sam­starf Norð­ur­land­anna enn frekar. Auk þess ræddu utan­rík­is­ráð­herr­arnir stöð­una í Sýrlandi og sam­skiptin við Rússland auk lofts­lags­mála og útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu.

[adspot]Guð­laugur Þór segir að það sé sér mikil ánægja að náðst hafi sam­staða um frek­ari efl­ingu nor­ræns sam­starfs á alþjóða­vett­vangi og ekki síður að Björn Bjarna­son skyldi velj­ast til verks­ins. „Fáir eru eins vel í stakk búnir til að móta fram­tíð­ar­sýn í þessum málum. Efling sam­starfs­ins var for­gangs­mál í for­mennsku Íslands í sam­starfi nor­rænu utan­rík­is­ráð­herr­anna og mik­il­vægt að náðst hafi sterk sam­staða um þessa til­lögu Íslands.“

Fyrsti áfang­inn í þess­ari vinnu var stöðu­skýrsla sem for­stöðu­menn nor­rænu alþjóða­stofn­an­anna unnu og afhentu fyrr á þessu ári um fram­kvæmd til­lagna úr skýrslu Thorvald Stol­ten­berg frá 2009. 

Stutt er síðan að Björn leiddi starfs­hóp á vegum utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins sem skil­aði af sér skýrslu um EES-samn­ing­inn. Sú skýrsla var birt 1. októ­ber síð­ast­lið­inn. Auk Björns skip­uðu þær Kristrún Heim­is­dóttir og Berg­þóra Hall­dórs­dótt­ir starfs­hóp­inn. Hægt er að lesa helstu nið­ur­stöður hennar hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár