Gagnrýna tækni sem ætlað er að hreinsa plast úr hafinu

Margir von­uð­ust til þess að nýstár­leg aðferð frá fyr­ir­tæk­inu Ocean Cleanup gæti nýst í bar­átt­unni gegn plast­mengun í haf­inu. Vís­inda­menn hafa hins vegar gagn­rýnt aðferð­ina harð­lega vegna þeirra áhrifa sem hreins­unin hefur á líf­verur sem fest­ast í tæk­inu.

Plast­mengun í haf­inu er vanda­mál sem við erum flest með­vituð um. Erfitt ætlar að reyn­ast að leysa vand­ann en vonir stóðu til að nýstár­leg aðferð frá fyr­ir­tæk­inu Ocean Cleanup gæti nýst í bar­átt­unni.

Tæknin var nýlega prófuð í fyrsta sinn og virt­ist skila góðum árangri. Vís­inda­menn hafa þó gagn­rýnt aðferð­ina harð­lega vegna þeirra áhrifa sem hreins­unin hefur á líf­verur sem fest­ast í tæk­inu.

Plasti safnað í Kyrrahafinu

Árið 2013 stofn­aði Boyan Slat fyr­ir­tækið Ocean Cleanup, á aðeins 19 ára að aldri. Fyr­ir­tækið var stofnað í þeim til­gangi að fjar­lægja plast sem safn­ast hefur upp í Kyrra­haf­inu og byggir tæknin á því að safna til sín plasti í eins­konar fljót­andi fall­hlíf.

Hönnun bún­að­ar­ins hefur ekki gengið áfalla­laust fyrir sig og hefur tekið sex ár að fá hann til að virka nægi­lega vel. Í síð­ustu viku náði fyr­ir­tækið stórum áfanga og sagði frá því að tek­ist hefði að safna miklu magni af plasti í Kyrra­haf­inu. Tækið safn­aði meðal ann­ars netum, ýmsum plast­um­búðum sem og plast­ögnum, að sögn tals­fólks fyr­ir­tæk­is­ins.

Of gott til að vera satt?

Við fyrstu sýn virð­ist sem svo að hér loks­ins sé komin áhrifa­rík leið til að hreinsa upp það plast sem safn­ast hefur fyrir í haf­inu, þó ekki væri nema að hluta til. Markmið Ocean Cleanup eru einnig bæði háleit og göfug. Fyr­ir­tækið hefur það að mark­miði að tæknin munið nýt­ast til að fjar­lægja 90% af öllu plasti í haf­inu fyrir árið 2040.

Þrátt fyrir góðan vilja fyr­ir­tæk­is­ins hafa sjáv­ar­líf­fræð­ingar margir hverjir lýst yfir áhyggjum varð­andi tækn­ina. Áhyggj­urnar hafa lengi verið til staðar en með jóm­frú­ar­för tæk­is­ins hafa radd­irnar orðið hávær­ari. Miklar umræður hafa brot­ist út, meðal ann­ars á Twitter, varð­andi þann skaða sem tæknin hefur þegar valdið.

Hundruðir dýra flækjast með

Sjáv­ar­líf­fræð­ing­ur­inn Rachel Helm er ein þeirra sem hefur lengi haft áhyggjur af tækn­inni. Þegar Ocean Cleanup birti mynd af afrakstri fyrstu hreins­un­ar­innar ákvað Helm að greina mynd­inna með til­liti til þess hversu mörg dýr hefðu flækst með.

Myndin, sem sjá má hér að ofan, sýnir afrakstur tæk­is­ins og er þar að sjá fjöldan allan af ýmiss­konar plasti. Fyrir óþjálfað auga er ekki aug­ljóst að sjá að hér er einnig að finna fjöldan allan af sjáv­ar­dýrum. Á milli plast­s­ins greindi Helm yfir 100 dýr sem flækst höfðu með rusl­inu. Dýrin sem lík­leg­ust eru til að flækj­ast með í hreins­un­inni eru þau sem fljóta jafnan um í haf­inu, til dæmis hinar ýmsu teg­undir marglytta.

Margir vís­inda­menn hafa tekið undir orð Helm og bent á að engin leið sé til þess að koma í veg fyrir að dýr flæk­ist með í hreins­un­inni. Algjör­lega ófyr­ir­séð sé hvaða áhrif þetta kann síðan að hafa á við­kvæm vist­kerfi hafs­ins ef tæknin verður tekin í notkun af alvöru.

Einnig eru vís­inda­menn ósáttir við að fyr­ir­tækið hafi ekki haft sér­fræð­inga með í ráðum þegar tæknin var hönnuð og segja að þeir hafi reynt að benda á vand­ann frá upp­hafi.

Hver er lausnin?

Plast­mengun er háal­var­legur vandi sem erfitt ætlar að vera að leysa. Aug­ljós­asta leiðin til að sporna gegn vand­anum er sú að koma í veg fyrir að plast endi í nátt­úr­unni til að byrja með. Hvað varðar það plast sem þegar er þangað komið er von­andi að hægt sé að fjar­lægja með ein­hverjum hætti en svo virð­ist sem að tækni Ocean Cleanup sé kannski ekki sú drauma­lausn sem von­ast var eftir.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár