Frá kvöldvöku til karnivals

Leik­list­ar­gagn­rýn­andi Kjarnans fjallar um Kvöld­vöku með Jóni Gnarr.

Borgarleikhúsið í samvinnu við Jón Gnarr: Kvöldvaka með Jóni Gnarr

Á svið­inu: Jón Gnarr

Kvöld­vaka er sér­ís­lensk sam­koma sem á rætur í bænda­sam­fé­lag­inu og leið undir lok þegar sam­fé­lags­skipan hér á landi breytt­ist, hið hefð­bundna bænda­sam­fé­lag leið undir lok, fólk flutt­ist á möl­ina og önnur teg­und afþrey­ingar sem heyrði til hinu vax­andi borg­ar­sam­fé­lagi ruddi kvöld­vök­unni til hliðar – hljóð­varp, kvik­mynda­sýn­ingar, leik­sýn­ingar og aðrir mann­fagn­aðir, og loks sjón­varpið – en bæði í upp­hafi og þróun hljóð­varps og eins í upp­hafi og þró­unar sjón­varps­ins má greina leifar af kvöld­vöku­menn­ing­unni. Þessi hinstu merki kvöld­vök­unnar eru þó óðum að hverfa.

Samkvæmt skil­grein­ingu Íslenskrar nútíma­máls­orða­bókar, sem finna má á net­inu, hefur hug­takið kvöld­vaka tvær merk­ingar: ann­ars vegar er það notað um sam­veru fólks um kvöld í bað­stofu þar sem lesið var upp­hátt og unnin handa­vinna, hins vegar er það haft um skemmtun að kvöld­lagi, oft í skóla eða félagi.

[adspot]Þessar skil­grein­ingar hljóta að telj­ast ívið tak­mark­aðar; á net­inu má þó einnig finna skil­grein­ingu Öldu Sig­munds­dóttur á ensku, þar sem hún greinir erlendum ferða­löngum frá fyr­ir­bær­inu kvöld­vaka; þar leggur hún áherslu á sagna­arf­inn eins og hann birt­ist í frá­sögum sögu­manns, ekki upp­les­ara, heldur flytj­anda, sem gerir sög­una lif­andi með flutn­ingi sínum og frá­sagn­ar­stíl. Slíkir sögu­menn voru einatt aufúsu­gestir á bæjum og gátu jafn­vel orðið mat­vinn­ungar með því að skemmta fólki með því að fara með þjóð­sögur af huldu­fólki, tröllum, draugum og úti­leg­u­mönnum eða lífga við ein­hverja af Íslend­inga­sög­unum eða ein­fald­lega segja sögur af skemmti­legu fólki úr sam­tím­anum, stundum því til háð­ungar og smánar, en áheyr­endum ávallt til skemmt­unar.

Þar með erum við farin að nálg­ast lýs­ingu á þeirri kvöld­vöku sem Jón Gnarr býður upp á í Borg­ar­leik­hús­inu, nánar til­tekið á Litla Sviðinu, sem hefur verið smekk­lega aðlagað að við­burð­inum: ljós­brúnt bak­tjald afmarkar sviðið en þar má finna dök­kapp­el­sínugulan hæg­inda­stól, sjálf­sagt frá sjötta ára­tugnum og frá svip­uðu tíma­skeiði er mik­ill rad­íó­grammó­fónn sem trónir fyrir bak­sviði miðju; lengst til hægri er svo hátt borð á einum fæti, ekk­ert ósvipað því sem stjórn­endur mál­þinga styðj­ast við í ráð­stefnu­sölum; það borð er með hvítum hekluðum dúki. Öll er þessi leik­mynd í anda Jóns Gnarrs ef svo má að orði kom­ast, og svo er hún heldur ekki notuð í sýn­ing­unni, nema á ein­fætta borð­inu er vatns­glas sem Jón sýpur á af og til og svo gler­krús með nokkrum bréf­miðum sem koma að notum í seinni hluta sýn­ing­ar­innar. Á gólf­inu er motta sem gæti verið pers­nesk en hún hefur skil­greint hlut­verk: að sjá til þess að Jón Gnarr haldi sig á mott­unni! Í bók­staf­legri merk­ingu!

Hlutverk leik­mynd­ar­innar virð­ist að öðru leyti frekar vera að minna á þann tíma þegar kvöld­vakan var end­an­lega að líða undir lok sem sam­fé­lags­fyr­ir­bæri, rétt upp úr seinna stríði.

Jón Gnarr byrjar á að útskýra konsept sýn­ing­ar­innar og veður þar úr einu í annað í við­stöðu­lausum orða­flaumi – það er ekki ofmælt að hann láti dæl­una ganga, vaði á súðum, láti móðan mása, tali linnu­laust og láti flest flakka. En þessi fyrri hluti sýn­ing­ar­innar er í raun­inni upp­hitun; uppi­stand­ar­inn er að búa í hag­inn fyrir sögu­mann­inn. Uppi­stand­ar­inn færir sér fim­lega í nyt að hann er faðir og fjöl­skyldu­maður, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri og frægur skemmti­kraftur sem hefur í kringum sig vænan vina­hóp. Og uppi­stand­ar­inn gerir að því er virð­ist allt sem í hans valdi stendur til að ófrægja sjálfan sig: hann játar blygð­un­ar­laust að hann hafi hina mestu skemmtun af því að koma öðrum í vand­ræði, hann við­ur­kennir án þess að skamm­ast sín að hann ljúgi mark­visst og með­vitað að börnum sínum og kinn­roða­laust kveðst hann ýta undir sögu­burð um vini sína.

[adspot]Játn­ingar af þessu tagi eru óborg­an­lega fyndnar. Ætli það hafi ekki hent flest okkar að koma okkur sjálfum eða jafn­vel vinum okkar í vand­ræði. Ætli við þekkjum það ekki að slúðra svona pínu­lítið um vini okkar og vinnu­fé­laga og hefur það ekki komið fyrir að við berum eins og eina litla, hvíta lygi í börnin okkar? Mjög senni­lega. En Jón Gnarr toppar okkur öll. Þetta eru ekki ein­staka til­vilj­ana­kennd atvik í hans lífi, þetta er hans lífs­stíll! Jón Gnarr er yfir­drif­inn og gróteskur í atferli sínu og í ofaná­lag er hann greindur með þroska­skerð­ingu sem barn, athygl­is­brest með ofvirkni og les­blindu auk þess að vera nær­sýnn í meira lagi. Allar frá­sagnir hans af hrekkjum gegn vinum, lygum að börnum sínum og rugli þegar kemur að sam­skiptum við eig­in­konu sína og bara venju­legu skipu­lagi dag­legrar venju eru svo ýktar, ofsa­fengnar og yfir­drifnar – en frá­sögnin svo ein­læg og hrein­skiln­is­lega fram borin að maður freist­ast til að trúa hverju orði eins og nýju neti.

Samtímis því sem Jón Gnarr heldur okkur hug­föngnum með kostu­legum og bráð­fyndnum frá­sögnum af hrekkjum sínum dregur hann upp mark­vissa mynd af lít­il­magn­anum, þeim sem ekki lauk prófi (nema meira­prófi!) og mætir atburðum í umhverfi sínu af hrekk­leysi og sak­leysi sem oftar en ekki kemur honum sjálfum í alls konar óvið­jafn­an­leg vand­ræði. Þessi sagna­að­ferð er hvort tveggja í senn, sér­stök og sympat­ísk – hann dregur upp mynd af sjálfum sér sem und­er­dog, sjón­ar­horn hans er ávallt sjón­ar­horn lít­il­magn­ans, ekki í lík­am­legum skiln­ingi, heldur félags­legum, hann er lít­il­magn­inn sem kann ekki til fulls á umhverfi sitt og um leið og hann kemur fram af full­komnum kvik­ind­is­skap við sína nán­ustu, leikur umhverfið hann við­líka grátt.

Jón Gnarr spilar á sitt eigið óör­yggi, sem óhjá­kvæmi­lega vekur hlátur og um leið og hann finnur fyrir þessum jákvæðu við­brögðum áhorf­enda fær­ist hann í auk­ana og þá koma þau kostu­legu augna­blik þegar hann sjálfur flissar með – er það vegna þess að hann verður grip­inn af sinni eigin frá­sögn eða er það vegna þess að hann verður raun­veru­lega upp­tendr­aður af því að hafa tek­ist að koma okkur til að hlæja? Svarið við því er leynd­ar­mál sagna­meist­ar­ans Jóns Gnarrs – hann leyfir því að lifa fram yfir hlé og yfir í seinni hluta sýn­ing­ar­innar.

Eftir hlé hefst hin eig­in­lega sögu­st­und. Nú mega nokkrir áhorf­endur draga miða úr gler­krús og vísar hver miði til sinnar sögu. Ég er ekki grun­laus um að Jón Gnarr stjórni því betur en sýn­ist hvaða sögur verða fyrir val­inu, því tæp­lega trúi ég því að alger til­viljun hafi ráðið vali sagna, til þess var sýn­ingin öll og einkum seinni hlut­inn of mark­visst byggður – þótt það verði að segj­ast svo alls rétt­lætis sé gætt, að sýn­ingin öll ber á sér yfir­bragð þess að vera leikin af fingrum fram, án ann­ars drif­krafts en mál­gleði og frá­sagn­ar­gleði Jóns. En þótt hann geti vissu­lega tekið ýmsa útúr­dúra og sýn­ingin þar með orðið lengri eða styttri eftir atvikum, er ramm­inn býsna skýr og þannig skor­inn að úr verður þokka­lega heil­steypt sýn­ing.

[adspot]En ég leyfi mér að spyrja – og hér er komið að minni einu aðfinnslu á sýn­ing­unni – hvort ekki hefði verið hægt að magna áhrif sýn­ing­ar­innar með því að fara um efnið drama­t­úrgískum höndum og efla sam­hengið milli hinna ein­stöku sagna. Þær eiga það sam­eig­in­legt að vera gróteskar og ýkju­kenndar, en gætu þó vel verið sannar – eins og Jón sjálfur full­yrðir ein­læg­lega oft í upp­hafi sýn­ing­ar­innar. Svo er eins og finna megi rauðan þráð á milli þeirra sem mætti draga betur fram og skerpa þannig upp­lifun áhorf­enda af sýn­ing­unni allri. Sögurnar – af sam­bandi Jóns við neyslu­sam­fé­lagið eins og það birt­ist í Costco og Bland, nöktu kon­unni í leigu­bílnum og eig­in­manni hennar, „sam­skiptum“ Bens Stillers og Jóns, þá borg­ar­stjóra, og síð­ast en ekki síst sagan af því þegar Jón og Jóka, kona hans, fóru með dreng­ina sína tvo á drag­sjó í stærsta drag­klúbbi New York­borgar og þar með heims­ins til að sjá vin þeirra Kenny koma fram sem dragdrottn­ingu – setja Jón sjálfan í ákveðið hlut­verk, hann gerir sjálfan sig að hinum klass­íska „und­er­dog“, og hann stig­magn­ast í þessu hlut­verki „und­er­dogs­ins” allt þar til kemur að loka­sög­unni, af heim­sókn­inni á drag­sjóið í New York – sú saga endar á karní­val­ískri frá­sögn þar sem Jón er argur ger (svo vísað sé til Íslend­inga­sagna –hér er nefni­lega ekki brugðið frá sígildri sagna­hefð!!!), nið­ur­lægður, ber­aður og pynt­aður, dreg­inn niður á hinn klass­íska sam­fé­lags­lega botn, rændur kyn­vit­und, heiðri og sæmd. Allt undir ein­lægum fögn­uði og skelli­hlátrum áhorf­enda!

Þetta er óborg­an­legur stíg­andi og marg­vís­leg þemu gægj­ast fram á ferða­lag­inu úr heimi hinnar félags­lega öruggu kvöld­vöku, þar sem hin félags­legu hlut­verk voru nið­ur­njörvuð og eilíf, yfir í æðis­geng­inn heim kynusla­klúbbs­ins þar sem eng­inn er öruggur og eng­inn fær að vera sá sem hann vill vera. Þetta er ferða­lag í frá­sögnum sem fellur vel að kvöld­vöku­heit­inu og sem mætti jafn­vel kalla hina nýju Íslend­inga sögu. Það varð ekki annað fundið en áhorf­endur gerðu sig vel heima­komna á þessu ferða­lagi og höfðu af því óspart og ósvikið gaman.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

jóngnarr

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár