Fella út kröfu um að meirihluti stjórnarmanna búi innan EES

Iðn­að­ar­ráð­herra hefur birt drög að laga­frum­varpi þar sem lagt er til að fellt verði úr lögum það skil­yrði að fram­kvæmda­stjórar og meiri­hluti stjórn­ar­manna íslenskra fyr­ir­tækja þurfi að vera búsettir innan Evrópska efna­hags­svæð­is­ins.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra Mynd: Bára Huld Beck

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, leggur til að felld verði úr lögum sú krafa að fram­kvæmda­stjórar og meiri­hluti stjórn­ar­manna í íslenskum atvinnu­fyr­ir­tækjum þurfi að vera búsettir í aðild­ar­ríkjum EES-samn­ings­ins, EFTA eða í Færeyjum. 

Drög að frum­varpi um málið hefur verið birt í sam­ráðs­gátt­inni. Með frum­varp­inu er brugð­ist við athuga­semdum ESA um að skil­yrði um búsetu stjórnar­manna og fram­kvæmda­stjóra í íslenskum fyr­ir­tækjum sé ekki í sam­ræmi við EES-samn­ing­inn.

Ef ekkert er aðhafst þá er von á frekari aðgerðum af hálfu ESA

Í núgild­andi lögum um fjár­fest­ingu erlendra aðila í atvinnu­rekstri er gerð krafa um að fram­kvæmda­stjórar og meiri­hluti stjórn­ar­manna í íslenskum atvinnu­fyr­ir­tækjum skulu vera búsettir hér á landi, óháð eign­ar­hlut, atkvæð­isrétti eða öðrum yfirráðum erlendra aðila.

Búsetu­skil­yrði lag­anna gera þó und­an­tek­ingu fyrir rík­is­borg­ara Fær­eyja, þeirra ríkja sem eiga aðild að samn­ingnum um Evr­ópska efna­hags­svæðið eða þeirra ríkja sem eru aðilar EFTA. Hins vegar gera lögin kröfu um að við­kom­andi rík­is­borg­arar séu búsettir í fyrr­nefndum ríkj­um ef þeir vilja vera stjórn­endur í íslenskum fyr­ir­tækjum.[adspot]

Til­efni frum­varps­ins eru athuga­semd­ir ESA, eft­ir­lits­stofn­unar EFTA, við fyrr­greint búsetu­skil­yrði í íslenskum lögum en stofn­unin vakti fyrst ­at­huga­semd­ir við skil­yrðið í jan­úar 2014. Sam­kvæmt EES­samn­ingum er ekki hægt að setja höft á rétt rík­is­borg­ara á EES-­svæð­inu til að öðl­ast stað­festu á yfir­ráða­svæði ein­hvers ann­ars ríkis á svæð­inu. Stað­festu­rétt­ur­inn felur meðal ann­ars í sér rétt til að hefja og stunda sjálf­stæða atvinnu­starf­semi og til að stofna og reka fyr­ir­tæki.

Nú þegar hefur ESA sent íslenska ríkinu form­legar athuga­semdir með bréfi dags. 4. nóvem­ber 2015. Næsta aðgerð ESA verður í formi rökstutts álits. Í frum­varps­drög­unum segir að ef ekk­ert verður aðhafst í kjölfar þess getur ESA vísað málinu til EFTA-dómstólsins.

Ef frum­varp Þórdísar nær fram að ganga þýðir það að ­stjórn­ar­menn og fram­kvæmda­stjórar ís­lenskra fyr­ir­tækja mega búa hvar sem er í heim­in­um, svo fram­ar­lega ­sem þeir eru rík­is­borg­arar í Færeyjum, aðild­ar­ríkjum Evrópska efna­hag­svæð­is­ins eða EFTA.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár