Eigið fé Stoða 23,2 milljarðar króna

Stoðir eru nú umsvifa­mesti inn­lendi einka­fjár­festir­inn á íslenska hluta­bréfa­mark­aðnum. Félagið hagn­að­ist um tvo millj­arða króna á sex mán­uðum. Eigið fé þess jókst um 5,7 millj­arða króna á sama tíma­bili.

Jón Sigurðsson, stjórnarformaður Stoða.
Jón Sig­urðs­son, stjórn­ar­for­maður Stoða. Mynd: N1

Hagnaður Stoða, sem einu sinni hétu FL Group, var rúm­lega tveir millj­arðar króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2019. Það er rúm­lega tvö­faldur hagn­aður félags­ins á öllu árinu 2018, þegar slíkur nam 1,1 millj­arði króna.

Eigið fé Stoða hefur auk­ist veru­lega það sem af er ári. Það var 23,2 millj­arðar króna í lok júní síð­ast­lið­ins var 17,5 millj­arðar króna í lok árs 2018. Það hefur því auk­ist um 5,7 millj­arða króna á sex mán­uðum. Þetta kemur fram í frétt sem birt hefur verið á heima­síðu félags­ins.

Vert er að taka fram að hlutafé í Stoðum var aukið um 3,7 millj­arða króna í maí. Hluti þeirra hlut­hafa sem tóku þátt í þeirri aukn­ingu greiddu fyrir með hluta­bréfum í Trygg­inga­mið­stöð­inni.

Stóraukin umsvif á örfáum mánuðum

Stoðir hafa farið mik­inn í íslensku við­skipta­lífi það sem af er ári. Félagið keypti stóran hlut í Arion banka í vor og eru sem stendur stærsti íslenski einka­fjár­festir­inn í bank­anum með 4,96 pró­sent eign­ar­hlut. Auk þess hefur félagið verið að bæta veru­lega við sig í Símanum og er orðið stærsti eig­andi þess félags með um þrettán pró­sent eign­ar­hlut. Þau upp­kaup hófust í apríl síð­ast­liðnum. Stoðir eru líka stærsti hlut­hafi trygg­inga­fé­lags­ins TM.

Þá vakti athygli þegar greint var frá því í Frétta­blað­inu í sumar að Stoðir hefði lánað fjár­mála­fyr­ir­tæk­inu GAMMA, sem var þá í þeim fasa að sam­ein­ast Kviku banka, einn millj­arð króna haustið 2018. Lánið var veitt til að bæta lausa­fjár­stöðu GAMMA, sem var þá mjög döpur. Stoðir fengu 150 millj­ónir króna í þóknun fyrir að veita lánið sem var að fullu greitt upp í byrjun mars 2019.

18 milljarðar sátu eftir þegar Refresco var selt

Stoðir voru stærsti eig­andi Glitnis banka fyrir banka­hrun. Félagið fór í greiðslu­stöðvun þegar sá banki fór á haus­inn og kröfu­hafar þess tóku það yfir. Vorið 2017 keyptu svo félög, í eigu stórra hlut­hafa í Trygg­inga­mið­stöð­inni (TM) sem voru margir hverjir lyk­il­menn í FL Group á árunum fyrir hrun, ráð­andi hlut í Stoðum.

Þá áttu Stoðir ein­ungis eina eign af viti sem átti eftir að vinna úr, hlut í hol­lenska drykkj­ar­vöru­fram­leið­and­anum Refresco. Sá hlutur var seldur í mars 2018 eftir yfir­tökutil­boð og eftir sátu um 18 millj­arðar króna í Stoðum. Þeir fjár­munir hafa verið not­aðir í fjár­fest­ingar á und­an­förnum miss­erum.

For­maður stjórnar Stoða er Jón Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri FL Group á árunum fyrir hrun, en með honum í stjórn sitja þeir Sig­ur­jón Páls­son og Örvar Kærne­sted. Fram­kvæmda­stjóri félags­ins er Júl­íus Þor­finns­son.

Á meðal stærstu eig­enda, auk Jóns, eru Magnús Ármann og Einar Örn Ólafsson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár