Enn lítil umræða um kynbundna áreitni á vinnustöðum

Afar fátítt er að fólk leiti til sinna stétt­ar­fé­laga vegna kyn­ferð­is­legrar eða kyn­bund­innar áreitni.

Í kjöl­far #metoo tóku heild­ar­sam­tök launa­fólks ASÍ, BSRB, BHM og KÍ upp sam­tal um næstu skref og var meðal ann­ars rætt um hversu margir hefðu leitað til sinna stétt­ar­fé­laga vegna kyn­ferð­is­legrar áreitni eða kyn­bund­innar áreitni. Upplifun allra var að slíkt væri afar fátítt og aðild­ar­fé­lög BSRB hafa ekki fundið fyrir aukn­ingu þar á í kjöl­far #metoo-bylt­ing­ar­innar. Þetta segir Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir, for­maður BSRB, í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans varð­andi það hvort margir hefðu haft sam­band við aðild­ar­fé­lög sam­tak­anna til að til­kynna áreiti á vinnu­stað.

Sonja Ýr bendir á að nokkrar rann­sóknir hafi verið gerðar á umfangi kyn­ferð­is­legrar áreitni í starfi innan til­tek­inna starfs­greina. Þar má sem dæmi nefna að 41 pró­sent starfs­fólks í þjón­ustu­störfum hefur orðið fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni í starfi, þar af 50 pró­sent kvenna og 25 pró­sent karla og þriðj­ungur kvenna í lög­regl­unni hefur orðið fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni í starfi á móti 4 pró­sent karla.

Hún segir að málin sem BSRB viti af varði nær öll kyn­ferð­is­lega áreitni og enn sé lítil umræða um kyn­bundna áreitni á vinnu­stöðum sem er þó bönnuð með lögum. Samtök launa­fólks hafi hvatt til þess að þessi mála­flokkur verði tek­inn föstum tökum, og hafi meðal ann­ars verið skip­aðir tveir starfs­hópar á vegum stjórn­valda, með þátt­töku aðila vinnu­mark­að­ar­ins.

Fræðsla ekki síður mikilvæg fyrir stjórnendur

„Von er á stórri rann­sókn um umfang kyn­ferð­is­legrar og kyn­bund­innar áreitni á íslenskum vinnu­mark­aði, og verða nið­ur­stöður von­andi birtar á haust­mán­uðum. Í kjöl­farið munu koma fram til­lögur um breyt­ingar, og hefur meðal ann­ars verið rætt hvort þurfi reglu­gerð­ar­breyt­ingar eða hvort veita þurfi Vinnu­eft­ir­lit­inu auknar heim­ildir. Einnig hefur mikið verið rætt um mik­il­vægi fræðslu, ekki síst til stjórn­enda,“ segir Sonja Ýr.

Hún segir jafn­framt að reynslan sýni að fólk leiti almennt ekki til stétt­ar­fé­laga fyrr en það hafi reynt að upp­ræta áreitn­ina sjálft og þá sé vanda­málið því miður oftar en ekki orðið afar íþyngj­andi fyrir við­kom­andi. Margir þeirra sem leita sér aðstoðar stétt­ar­fé­lags hafi þegar sagt upp störfum vegna áreitni. Það sé algengt að upp­lifun þeirra sé að stjórn­endur á vinnu­staðnum hafi ekki brugð­ist við með réttum hætti eða í sumum til­fellum brugð­ist við að neinu leyti. „Það er ekki bara miður fyrir við­kom­andi ein­stak­ling heldur gæti ferlið haft áhrif á fjöl­skyldu við­kom­andi, sam­starfs­fólk, vinnu­stað­inn sjálfan og jafn­vel sam­fé­lagið, til dæmis í formi kostn­aðar vegna heil­brigð­is­þjón­ustu.“

Yfirleitt hafa allir þátttakendur upplifað eða orðið vitni að áreitni

For­mað­ur­inn greinir enn fremur frá því að þau hjá BSRB veiti reglu­lega fræðslu um kyn­bundna og kyn­ferð­is­lega áreitni og ofbeldi á vinnu­stöðum og þá mynd­ist alltaf áhuga­verð umræða þegar fjallað er um birt­ing­ar­myndir áreitn­innar. Yfir­leitt hafi allir þátt­tak­endur upp­lifað eða orðið vitni að áreitni og í sumum til­fellum ekki áttað sig á því að um áreitni væri að ræða fyrr en síðar. Algengt dæmi séu ein­stak­lingar sem reyna ítrekað við sam­starfs­fé­laga og hunsa nei-ið. Annað dæmi séu per­sónu­legar spurn­ingar um einka­líf eða kyn­líf ein­stak­lings.

„Það er mis­jafnt hvar mörk fólks liggja en einmitt í því liggur vand­inn oft, fólk getur verið ólíkt en öll höfum við rétt á að setja okkar eigin mörk. Þess vegna er jafn­framt gott fyrsta skref til að hefja umræð­una á vinnu­staðnum að ræða birt­ing­ar­mynd­irnar til að skapa sam­eig­in­legan skiln­ing á því,“ segir hún.

Hægt er að sjá dæmi um birt­ing­ar­myndir í fræðslu­bæk­lingi sem til er á íslensku, ensku og pólsku og má finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
InnlentMetoo

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár