Greiðir 6,7 milljarða fyrir hlutinn í Icelandair Hotels

Berjaya Land Berhad, sem stofnað var af millj­arða­mær­ingnum Vincent Tan, mun greiða 53,6 millj­ónir dala, jafn­virði um 6,7 millj­arða króna, fyrir 75 pró­sent hluta­fjár í Icelandair Hotels og þeim fast­eignum sem til­heyra hót­el­rekstr­inum.

Vincent Tan
Vincent Tan Mynd: EPA

Malasíska fyrirtækjasamstæðan Berjaya Land Berhad mun greiða 53,6 milljónir dala, jafnvirði um 6,7 milljarða króna fyrir 75 prósent hlutafjár í Icelandair Hotels og þeim fasteignum sem tilheyra hótelrekstrinum. Stofn­andi og stjórn­ar­for­maður Berjaya er Tan Sri Dato Vincent Tan, kaup­sýslu­maður frá Malasíu, en hann er eig­andi breska knattspyrnufélagsins Cardiff City. Frá þessu er greint í Markaðinum, fylgiriti Fréttablaðsins, í dag.

Tan segir, í við­tali við Við­skipta­Mogg­ann í dag, að hann sjái mikil tæki­færi á íslenskum hót­el­mark­aði en hann kannar nú mögu­leika á því að reisa nýtt hágæð­alúx­us­hótel hér á landi.

Háð endurfjármögnun skulda

[links]Í til­kynn­ingu Berjaya til mala­sísku kaup­hall­ar­innar segir að kaup Berayja séu háð því að skuldir Icelandair Hotels verði end­ur­fjár­magn­aðar með nýjum lánum upp á 64 til 72 millj­ónir dala sem jafn­gildir átta til níu millj­örðum króna. Kaupin eru einnig háð sam­þykki dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins á grund­velli laga um eign­ar­rétt og afnota­rétt fast­eigna,.

Kaup­samn­ing­ur­inn gerir ráð fyrir að Berjaya eign­ist 75 pró­sent hlut, og að við­skiptin gangi í gegn um ára­mót­in. Við­skiptin gera ráð fyrir að Icelandair haldi eftir 25 pró­sent hlut í að minnsta kosti þrjú ár, en eftir það muni Berjaya eign­ist þann hlut. Icelanda­ir Hot­els er með fjöl­breytta gist­i­­mög­u­­leika um land allt og heild­­ar­­fjöldi her­bergja­fram­­boðs fé­lags­ins er 1.811. Að auki hygg­st fé­lag­ið, í sam­­starfi við Hilt­on Hot­els, opna nýtt 145 her­bergja glæsi­hót­­el á Land­símareit árið 2020.[adspot]

Í til­kynn­ingu sem Icelandair Group sendi kaup­höll­inni á Íslandi kom fram að að heild­ar­virði hót­el­keðj­unnar og tengdra fast­eigna, hlutafé og vaxta­ber­andi skuldir, væri 136 millj­ónir dala, um 17,1 millj­arður króna, í við­skipt­unum. Aftur á móti segir í til­kynn­ingu Berjaya að hlutafé Icelandair Hotels og fast­eign­anna sé metið á 71,5 millj­ónir dala í við­skipt­unum miðað við stöðu vaxta­ber­andi skulda keðj­unnar, sem séu 64 millj­ónir dala, og veltu­fjár­muna hennar. Áætlað kaup­verð á 75 pró­sentum hluta­fjár­ins sé þannig lið­lega 53,6 millj­ónir dala en end­an­legt verð mun ráð­ast af fjár­hags­stöðu hót­el­keðj­unnar þegar kaupin ganga í gegn í lok árs­ins.

Tekj­ur Icelanda­ir Hot­els námu 97 millj­­ón­um USD árið 2018 og heild­­ar­­fjöldi starf­­manna var 699. EBITDA hót­­el­­rekstr­­ar­ins var 7 millj­­ón­ir USD og leig­u­­tekj­ur fast­­eigna tengd­um hót­­el­­rekstr­in­um námu 5 millj­­ón­um USD. Heild­­ar­flat­­ar­­mál fast­­eign­anna er 17.738 m2 og sam­an­standa af Hilt­on Canopy Reykja­vík, Icelanda­ir Hót­­el Ak­­ur­eyri, Icelanda­ir Hót­­el Mý­vatni og Icelanda­ir Hót­­el Hér­að­i.

Mikil tækifæri í íslenskri ferðaþjónustu

Vincent Tan seg­ist sjá mikil tæki­færi í íslenskra ferða­þjón­ustu til lengri tíma í við­tali við Við­skipta­mogg­ann í dag og þá sér­stak­lega fyrir vel þá borg­andi ferða­menn sem koma til lands­ins. „Ég tel að það sé pláss á mark­aðnum fyrir alvöru lúx­us­hótel og við erum að kanna mögu­leika á að bæta slíkri ein­ingu inn í eigna­safnið hjá Icelandair Hotels.“

Félag Tan á eign á Geirs­götu 11 þar sem nú stendur fisk­vinnslu­hús. Aðspurður hvort að sú eign komi til greinar sem stað­setn­ing fyrir slíkt lúxus hótel segir hann að það muni tím­inn leiða í ljós. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár