Cardiff eigandinn kaupir Icelandair Hotels

Icelandair Hotels hefur verið í sölu­ferli und­an­farna mán­uði.

Stjórn Icelanda­ir Group hf. hef­ur skrifað und­ir kaup­samn­ing við fé­lagið Berjaya Property Ire­land Lim­ited, dótt­ur­fé­lag mala­sísku fyr­ir­tækja­sam­stæð­unn­ar Berjaya Land Ber­had, um að fé­lagið eign­ist meiri­hluta í Icelanda­ir Hotels ásamt þeim fast­eign­um sem til­heyra rekstri hót­ela keðj­unn­ar.

Frá þessu er greint í til­kynn­ingu til kaup­hallar. Stofn­andi og stjórn­ar­for­maður Berjaya er Tan Sri Dato Vincent Tan, kaup­sýslu­maður frá Malasíu, en hann er eig­andi Cardiff City, sem lands­liðs­fyr­ir­lið­inn Aron Einar Gun­ars­son lék með árum saman þar til í sumar.

Icelanda­ir Hotels er með fjöl­breytta gisti­mögu­leika um land allt og heild­ar­fjöldi her­bergja­fram­boðs fé­lags­ins er 1.811. Að auki hygg­st fé­lagið, í sam­starfi við Hilt­on Hotels, opna nýtt 145 her­bergja glæsi­hót­el á Land­símareit árið 2020

„Tekj­ur Icelanda­ir Hotels námu 97 millj­ón­um USD árið 2018 og heild­ar­fjöldi starf­manna var 699. EBITDA hót­el­rekstr­ar­ins var 7 millj­ón­ir USD og leigu­tekj­ur fast­eigna tengd­um hót­el­rekstr­in­um námu 5 millj­ón­um USD. Heild­ar­flat­ar­mál fast­eign­anna er 17.738 m2 og sam­an­standa af Hilt­on Canopy Reykja­vík, Icelanda­ir Hót­el Ak­ur­eyri, Icelanda­ir Hót­el Mý­vatni og Icelanda­ir Hót­el Héraði,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Kaup­samn­ing­ur­inn gerir ráð fyrir að Berjaya eign­ist 75 pró­sent hlut, og að við­skiptin gangi í gegnum um ára­mótin. Við­skiptin gera ráð fyrir að Icelandair haldi eftir 25 pró­sent hlut í a.m.k. þrjú ár, en eftir það muni Berjaya eign­ist þann hlut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár