Stjórnvöld þurfa að styrkja rödd neytenda

Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, gagn­rýnir að almenn­ingur sé aldrei spurður um árangur eft­ir­lits­starf­semi, heldur ein­ungis fyr­ir­tæki sem þurfa að sæta slíkri. Til­gangur eft­ir­lits­ins sé enda almanna­hagur.

„Það er aug­ljóst í okkar huga að það er þetta sem skiptir mestu máli. Hver sé upp­lifun almenn­ings, neyt­and­ans. Við höfum talað fyrir því lengi að stjórn­völd þurfi að koma að því með ein­hverjum hætti að styrkja þessa rödd. Við finnum þetta ójafn­vægi svo í okkar starfi.“

Þetta sagði Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni.

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Páll segir að ójafn­vægið birt­ist í því að á Íslandi séu mjög sterk hags­muna­sam­tök fyr­ir­tækja­megin á meðan að neyt­endur eiga í mjög miklum erf­ið­leikum með að taka þátt í hags­muna­bar­átt­unni fyrir sína hönd.

Það sé afleið­ing slíkrar bar­áttu í okkar litla sam­fé­lagi sem verði oft per­sónu­leg. „Annars staðar á Norð­ur­lönd­unum sjáum við stutt mun mynd­ar­legra við neyt­enda­sam­tök heldur en hér er gert.“

[adspot]Í þætt­inum ræðir Páll Gunnar einnig nýbirta könnun sem ráð­gjafa­nefnd um opin­berar eft­ir­lits­reglur lét Mask­ínu gera til að kanna eft­ir­lits­menn­ing­una á Íslandi, og var birt nýver­ið. Í nið­ur­stöð­unum kemur fram að af mati á 16 mis­mun­andi eft­ir­lits­stofn­unum kom Sam­keppn­is­eft­ir­litið hvað verst út. Hann gagn­rýnir að ein­ungis fyr­ir­tæki, ekki almenn­ingur, séu spurð um árangur eft­ir­lits. „Ef maður horfir á þessar stofn­anir sem spurt er um í þess­ari könnun þá eiga þær eig­in­lega bara eitt sam­eig­in­legt, og það er að þær eru að vinna að ein­hvers­konar almanna­hags­munum. Það er ein­hvern veg­inn í þess­ari umræðu að enda­not­and­inn er aldrei spurður. Það er að segja neyt­and­inn, laun­þeg­inn, við­skipta­vin­ur­inn eða hvaða nafni sem við kjósum að nefna almenn­ing.“

Hann segir að á kynn­ing­ar­fundi á nið­ur­stöðu könn­un­ar­innar hafi ýmsum aðilum verið boðið að leggja orð í belg en að for­svars­menn neyt­enda hafi ekki verið þar á meðal.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár