Kostnaður vegna þingmanna lækkar

Kostn­aður Alþingis vegna þing­manna hefur lækkað á milli ára. End­ur­skoð­aðar reglur og lægri launa­kostn­aður eru helstu ástæð­urnar.

Kostn­aður vegna þing­manna fyrstu tvo mán­uði árs­ins er tíu millj­ónum króna lægri en fyrstu tvo mán­uði síð­asta árs. Séu bið­laun sem greidd voru fyrstu mán­uði síð­asta árs tekin með í reikn­ing­inn lækk­aði kostn­að­ur­inn um 43 millj­ónir. Samkvæmt upp­lýs­ingum af vef Alþingis virð­ist lækk­unin, að teknu til­liti til bið­launa fyrr­ver­andi þing­manna, að stærstum hluta koma til vegna lækk­unar á kostn­aði við ferða­lög og lægri launa­kostn­aðar.

Minni ferðakostnaður

Í byrjun sein­asta árs voru end­ur­greiðslur til þing­manna vegna akst­urs á eigin bíl í fyrsta skipti opin­ber­aðar. Þá komst upp um mik­inn kostnað sem þing­menn höfðu fengið end­ur­greiddan vegna akst­urs á eigin bif­reið. Í kjöl­farið voru end­ur­greiðsl­urnar tak­mark­aðar við fimmtán þús­und kíló­metra akstur á ári og ákvæði um hvenær þing­menn skuli not­ast við bíla­leigu­bíla gerð skýr­ari.

Þetta hefur skilað sér í minni kostn­aði fyrir Alþingi enda voru end­ur­greiðslur vegna akst­urs 1,7 millj­ónum króna lægri á fyrstu tveimur mán­uðum þessa árs en þær voru fyrstu tvo mán­uði 2018. Kjarninn hefur áður bent á að end­ur­greiðsl­urnar hafi lækkað eftir að farið var að birta upp­lýs­ingar um þær.

Þá greiddi Alþingi minna í ferða­kostnað utan­lands fyrir þing­menn. Þegar horft er til flokk­anna „gisti- og fæð­is­kostn­aðar, flug­ferðir utan­lands, dag­pen­inga og ann­ars ferða­kostn­aðar utan­lands” nemur lækk­unin sam­tals 2,4 millj­ónum á milli ára.

56 milljónir í biðlaun

Þingmenn sem falla út af þingi eiga rétt á bið­launum í þrjá til sex mán­uði eftir kosn­ingar, eftir því hvað þeir hafa setið lengi á þingi. Í kosn­ing­unum 2017 féllu 19 þing­menn út af þingi og fengu þeir sem lengst höfðu setið á þingi greidd bið­laun fram í apríl 2018. Alls kost­uðu bið­laun þing­manna Alþingi rúm­lega 56 millj­ónir árið 2018, og lækk­uðu um 82 millj­ónir á milli ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár