Rúmlega helmingur landsmanna andvígur innflutningi á fersku kjöti

Kjós­endur Fram­sóknar, Mið­flokks og Vinstri grænna eru mest á móti inn­flutn­ingi á fersku kjöti frá Evrópu. Lands­byggðin er mun harð­ari í afstöðu sinni en íbúar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Bann á inn­flutn­ingnum verður að óbreyttu afnumið síðar á þessu ári.

Alls segj­ast 55 pró­sent aðspurðra í nýrri könnun MMR vera and­vígir inn­flutn­ingi á fersku kjöti frá löndum Evrópska Efna­hags­svæð­is­ins (EES) til Íslands. Alls sögð­ust 27 pró­sent vera fylgj­andi slíkum inn­flutn­ingi. 17 pró­sent aðspurðra tók ekki afstöðu.

And­staðan er lang­mest á meðal kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks (81 pró­sent), Mið­flokks­ins (80 pró­sent) og Vinstri grænna (78 pró­sent). Auk þess var rúmur helm­ingur kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins and­vígur slíkur inn­flutn­ingi, eða 55 pró­sent.

Kjós­endur VIð­reisnar voru mest fylgj­andi inn­flutn­ingi á fersku kjöti (68 pró­sent) og þar á eftir komu kjós­endur Sam­fylk­ing­ar­innar (51 pró­sent). Kjós­endur Pírata voru með ólíkar mein­ingar, en 46 pró­sent þeirra voru fylgj­andi inn­flutn­ingi, 14 pró­sent tóku ekki afstöðu og 40 pró­sent voru á móti.

Eldra fólk var mun lík­legra til að vera andsnúið inn­flutn­ingi en það yngra. Þannig voru 70 pró­sent 68 ára og eldri and­vígir honum en 49 pró­sent 30-49 ára.

And­staðan við inn­flutn­ing á fersku kjöti var mun meiri á lands­byggð­inni en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Alls sögð­ust 69 pró­sent lands­byggð­ar­fólks vera and­víg inn­flutn­ingnum en and­staða mæld­ist hjá 48 pró­sent höf­uð­borg­ar­búa. Þar sögð­ust 33 pró­sent vera fylgj­andi og 20 pró­sent tóku ekki afstöðu á meðan að ein­ungis 17 pró­sent íbúa lands­byggð­ar­innar studdu inn­flutn­ing­inn en 14 pró­sent þar tóku ekki afstöðu.

Hömlur eiga að falla niður í haust

Krist­ján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, kynnti í febr­úar frum­varp sem felur í sér að frysti­skylda á inn­fluttu kjöti verði afnumin og heim­ilt verði að flytja inn ferskt kjöt, fersk egg og vörur úr óger­il­sneyddri mjólk.

Á sama tíma kynnti ráð­herra aðgerða­á­ætlun með mót­væg­is­að­gerðum til þess að verja íslenska búfjár­stofna og bæta sam­keppn­is­­stöðu inn­­­lendrar mat­væla­fram­­leiðslu. ­Nái frum­varpið fram að ganga munu hömlur á inn­flutn­ingi falla niður þann 1. sept­em­ber næst­kom­and­i.

Árið 2007 tóku íslensk stjórn­völd ákvörðun um að heim­ila inn­flutn­ing á ófrystu kjöti frá öðrum ríkjum EES og afnema þannig skil­yrði fyrir inn­flutn­ingi á til­teknum land­bún­að­ar­af­urðum innan EES í því skyni að tryggja stöðu Íslands á innri mark­aði EES. Þá skuld­bind­ingu stað­festi Alþingi árið 2009 en þrátt fyrir það var íslenskum lögum ekki breytt til sam­ræmis við þá skuld­bind­ingu. Á síð­ustu tveimur árum hafa bæði EFTA-­dóm­stóll­inn og Hæsti­réttur Íslands stað­fest að íslensk stjórn­völd hafi með þessu brotið gegn skuld­bind­ingum sínum sam­kvæmt EES-­samn­ingn­um. Þá hefur skaða­bóta­skylda íslenska rík­is­ins vegna þessa verið stað­fest.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár