Frjósemi aldrei verið minni

Yfir­leitt er miðað við að frjó­semi þurfi að vera um 2,1 barn til að við­halda mann­fjöld­anum til lengri tíma litið. Árið 2018 var frjó­semi íslenskra kvenna 1,707 börn á ævi hverrar konu og hefur hún aldrei verið lægri frá því að mæl­ingar hófust árið 1853.

Frjósemi kvenna á Íslandi árið 2018 var minni en nokkru sinni áður, en þá var frjó­semi íslenskra kvenna 1,707. Með­al­aldur frumbyrja hélt áfram að hækka og var 28,2 ár. Tæplega þriðj­ungur barna sem fædd­ist á Íslandi árið 2018 voru börn for­eldra í hjóna­bandi. Þetta kemur fram í frétt Hag­stof­unnar.

Fleiri börn fædd­ust í fyrra en árið 2017 Árið 2018 fædd­ust 4.228 börn á Íslandi, sem er fjölgun frá árinu 2017 þegar 4.071 barn fædd­ist. Alls fædd­ust 2.242 drengir og 1.986 stúlkur, en það jafn­gildir 1.129 drengjum á móti hverjum 1.000 stúlkum.

Helsti mæli­kvarði á frjó­semi er fjöldi lif­andi fæddra barna á ævi hverrar konu. Yfir­leitt er miðað við að frjó­semi þurfi að vera um 2,1 barn til að við­halda mann­fjöld­anum til lengri tíma litið. Árið 2018 var frjó­semi íslenskra kvenna 1,707 börn á ævi hverrar konu og hefur hún aldrei verið lægri frá því að mæl­ingar hófust árið 1853. Árið 2017 var frjó­semi 1,710 en það er næst lægsta frjó­semi sem mælst hefur hér á landi.

Algengasti barneignaaldurinn er á milli 25 til 29 ára

Með­al­aldur mæðra hefur hækkað jafnt og þétt síð­ustu ára­tugi og eign­ast konur nú sitt fyrsta barn að jafn­aði síðar á ævinni en áður. Frá byrjun sjö­unda ára­tug­ar­ins og fram yfir 1980 var með­al­aldur frumbyrja undir 22 árum en eftir miðjan níunda ára­tug­inn hefur með­al­aldur farið hækk­andi og var 28,2 ár í fyrra. Algeng­asti barn­eigna­ald­ur­inn er á milli 25 til 29 ára. Á þessu ald­urs­bili fædd­ust 109 börn á hverjar 1.000 konur árið 2018. Fæð­ing­ar­tíðni mæðra undir tví­tugu var í fyrra 5,3 börn á hverjar 1.000 konur. Það er afar lágt í sam­an­burði við tíma­bilið 1961-1965 þegar hún fór hæst, en þá fædd­ust 84 börn á hverjar 1.000 konur undir tví­tugu.

Í frétt Hag­stof­unnar kemur fram að tæp­lega þriðj­ungur barna á Íslandi hafi fæðst innan hjóna­bands árið 2018, eða 29,5 pró­sent. Frá 1961 til 2018 hefur hlut­fall þeirra barna sem fædd­ust innan hjóna­bands lækkað úr 74,3 pró­sent niður í 29,5 pró­sent. Hlutfall þeirra barna sem fædd­ust innan sam­búðar hækk­aði úr 13,4 pró­sent í 56,4 pró­sent á sama tíma. Hlutfall barna sem fæð­ast utan sam­búðar eða hjóna­bands er því nokkuð svipað og það var á árunum 1961 til 1965. Á þeim árum fædd­ust 12,4 pró­sent allra barna utan sam­búðar eða hjóna­bands en 14 pró­sent árið 2018.

Hvort barn fæð­ist innan eða utan hjóna­bands fer mikið eftir því hvar í systk­ina­röð­inni það er, sam­kvæmt Hag­stof­unni. Árið 2018 fædd­ist tæp­lega fimmt­ungur frum­burða, eða 17,5 pró­sent, innan hjóna­bands og 62,8 pró­sent frum­burða móður áttu for­eldra í sam­búð. Eftir því sem aftar dregur í fæð­ing­ar­röð­inni fjölgar börnum sem fæð­ast innan hjóna­bands en börnum sem eiga for­eldra í sam­búð fækkar að sama skapi. For­eldrar ann­ars barns móður voru í 32,7 pró­sent til­vika í hjóna­bandi árið 2018 og 58,1 pró­sent í sam­búð, en við fæð­ingu þriðja barns eru hlut­föllin orðin nokkuð jöfn en þá eru 47,3 pró­sent for­eldra í hjóna­bandi og 44,2 pró­sent í sam­búð.

Flest börn mæðra sem ekki voru í hjóna­bandi eða sam­búð voru fyrsta barn, 19,7 pró­sent frum­burða móður áttu for­eldra sem voru ekki í sam­búð, sam­an­borið við 9,2 pró­sent for­eldra ann­ars barns, 8,5 pró­sent þriðja barns og 15,1 pró­sent fjórða eða seinni barna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár