Kaupthinking tilnefnd til Blaðamannaverðlauna Íslands

Bók eftir rit­stjóra Kjarnans er á meðal þeirra blaða­manna­verka sem hljóta til­nefn­ingu til Blaða­manna­verð­launa Íslands í ár. Verð­launin verða veitt eftir viku.

Mynd: Samsett RÚV
Mynd: Samsett RÚV

Bókin Kaupt­hink­ing - Bankinn sem átti sig sjálfur, eftir Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, er til­nefnd til Blaða­manna­verð­launa Íslands fyrir árið 2018, en til­nefn­ing­arnar voru birtar í nótt.

Bókin byggir á tíu ára vinnu höf­undar og á miklu magni trún­aðar- og rann­sókn­ar­gagna, íslenskum og erlendum, sem hann fékk aðgang að snemma á síð­asta ári. Á meðal þeirra gagna eru, ógrynni tölvu­pósta, frum­gögn innan úr Kaup­þingi, yfir­heyrslur yfir sak­born­ingum og vitnum, grein­ar­gerðir rann­sak­enda í risa­vöxnum málum og hlust­anir í síma sem flestar áttu sér ann­að­hvort stað um það leyti sem skýrsla rann­sókn­ar­nefndar Alþingis birti skýrslu sína í apríl 2010 eða um mán­uði síðar í kjöl­far þess að helstu stjórn­endur Kaup­þings voru hnepptir í gæslu­varð­hald vegna gruns um stór­fellda brota­hegðun. Flestir þeirra hlutu síðar fang­els­is­dóma fyrir efna­hags­brot sem eiga sér enga hlið­stæðu í Íslands­sög­unni.

Verð­launin verða veitt næst­kom­andi föstu­dag í Pressu­klúbbnum, félags­heim­ili blaða­manna í Síðumúla 23 næst­kom­andi föstu­dag, kl 17:00.

Þrír eru til­nefndir í hverjum flokki verð­laun­anna en alls er um fjóra flokka að ræða.

Hér að neðan er hægt að sjá til­nefn­ingar í hverjum flokki fyrir sig og rök­stuðn­ing dóm­nefndar fyrir til­nefn­ing­unum.

Viðtal ársins

Jóhann Páll Jóhannsson, Stundinni

Fyrir við­tal við Báru Hall­dórs­dóttur sem steig fram í kjöl­far þess að hafa tekið upp hat­urs­orð­ræðu þing­manna á Klaust­ur­bar og sent fjöl­miðlum til úrvinnslu.

Milla Ósk Magnúsdóttir, RÚV

Fyrir við­tal við hjónin Stefán Þór Gunn­ars­son og Elísu Rós Jóns­dóttur sem misstu son sinn vegna ofneyslu fíkni­efna. Hjónin lýsa eigin úrræða­leysi og áfall­inu sem fylgdi and­lát­inu.

Ragnheiður Linnet, Mannlífi

Fyrir við­tal við Merhawit Bar­ya­mik­ael Tes­faslase, ekkju plast­barka­þeg­ans, Andemariam Beyene, um aðdrag­anda ígræðsl­unnar og hvernig líf fjöl­skyld­unnar umturn­að­ist eftir þá örlaga­ríku aðgerð.

Rannsóknarblaðamennska ársins

Freyr Rögnvaldsson og Steindór Grétar Jónsson, Stundinni

Fyrir umfjöll­un­ina Landið sem auð­menn eiga sem veitir ríka yfir­sýn yfir umfang fyrrum bújarða sem nú eru í eigu inn­lendra og erlendra auð­manna og inn­sýn í hverjir þeir eru.

Helgi Seljan, RÚV

Fyrir frétta­skýr­ingu um stöðu erlendra verka­manna og sjálf­boða­liða sem hingað koma, búa við bágar aðstæður og eru sviknir um laun.

Ingólfur Bjarni Sigfússon, RÚV

Fyrir frétta­skýr­ingu um um vopna­flutn­inga Air Atlanta og van­höld Sam­göngu­stofu á því að fram­fylgja sátt­málum um vopna­flutn­inga sem Ísland hefur full­gilt.

Umfjöllun ársins

Aðalheiður Ámundadóttir, Fréttablaðinu

Fyrir umfjöllun með fréttum og frétta­skýr­ingum um for­sögu, end­ur­upp­töku og eft­ir­mála Guð­mundar- og Geir­finns­mála.

Guðrún Hálfdánardóttir, Morgunblaðinu/Mbl.is

Fyrir greina­flokk­inn Gætt að geð­heil­brigði um úrræði og úrræða­leysi þegar kemur að því að hjálpa fólki sem glímir við geð­sjúk­dóma og/eða fíkn.

Hólmfríður Helga Sigurðardóttir, Stundinni

Fyrir umfjöllun með frá­sögnum átta kvenna sem opin­bera bit­leysi nálg­un­ar­banns sem úrræðis í heim­il­is­of­beld­is­málum.

Blaðamannaverðlaun ársins

Sigríður Halldórsdóttir, RÚV

Fyrir umfjöllun um óábyrga notkun plasts, þar sem sýnt er með slá­andi hætti hvernig það mengar umhverfið, neyslu­vatn okkar og mat­væli.

Viktoría Hermannsdóttir og Þórhildur Ólafsdóttir, RÚV

Fyrir útvarps­þátta­röð­ina Kverka­tak þar sem lýst er birt­ing­ar­myndum heim­il­is­of­beldis frá sjón­ar­horni þolenda, aðstand­enda þeirra og sér­fræð­inga.

Þórður Snær Júlíusson, Kjarnanum

Fyrir bók­ina Kaupt­hink­ing sem dregur fram skýra mynd af hug­ar­fari og ólög­legum fjár­mála­gjörn­ingum innan Kaup­þings í aðdrag­anda banka­hruns­ins og afleið­ingum þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kaupthinking

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár